Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.10.1922, Blaðsíða 7

Heimilisblaðið - 01.10.1922, Blaðsíða 7
HEIMILISBLAÐIÐ 135 lauk með þeim »mömmu Bess« og Brian, og nú vissi hún, að frú Scrutton mundi renna með alt sem gerst hafði út um alt nágrennið. Og það var alls ekkert undarlegt, þó að sú hugsun hvarflaði að Myrtle, að héðan, ni' þessari vistarveru, yrði hún að flýja; hér var henni alveg óbærilegt að vera; hún yrði aldrei laus við ónot og skammir frú- urinnar og heldur eigi við heimsóknir Barges. Eftir skamma stund var drepið á dyr. »Lofaðu mér að ltoma inn, Myrtle«, sagði Minnie í blíðum og titrandi bænarrómi. Myrtle reis hægt á fætur og opnaði hurð- lna» og meðan Minnie var að þreifa sig ufram, þá læsti hún hurðinni aftur. Minnie leitaði fjTÍr sér með hendinni eftir vinu sinni, en Myrtle stóð og vísaði henni alveg frá sér. »Ó, elsku M}rrtle, það tekur mig svo sárt«, sagði Minnie, og dró nú Myrtle með ser að rúminu, »það er skömm mikil að frúin skuli fara svona með þig, og að Barge skyldi fara til þín, þó að hann vissi, að þú værir ein þíns liðs heima. Tad segir, að hann hafi séð frúna fá Barge lykilinn að herbergjum ykkar. En ungi maðurinn kom þá í tæka tíð til að hjálpa þér, eða var ekki svo? Var það ekki fallega gert af honum? Tad segir, að hann sé góðmann- legur og fríður og sé víst afburðamaður að alli. Eg vildi óska, að eg hefði ekkert farið nt í kvöld! Eg hefði svo fegin viljað vera hjá þér, ef eg hefði vitað, að þú værir ein heima. Þú mátt ekki titra svona, Myrtle, Þvi að nú er alt fallið í ljúfa löð«. »Nei, þvi fer nú fjarri«, svaraði Myrtle °g herti á, »þvi að frúin dregur taum Barges og hún hjálpar honum til að ná ínndi minum aftur og við því get eg ekki húist, að altaf verði einhver við hendina til að hjálpa mér«. »Já, en Giggles er nú næstum altaf heima«, sagði Minnie. Myrtle hristi höfuðið. »Hann er gamall °g megnar ekkert«, sagði hún, »og svo get- ur Barge komið einhvern daginn, þegar hann er ekki heima. Hann getur lika setið um mig á götunni, þvi að nú er hann orð- inn verulega grimmur í minn garð«. »Hvað eigum við þá að gera?« sagði Minnie vandræðaleg. »Eg veit það ekki«, svaraði Myrtle, »eg get ekkert hugsað í kvöld, eg er svo ringl- uð í höfðinu«. »Og þú hefir svo mikinn hjartslátl«, sagði Minnie sorgdöpur. »Eg verð að velta því lyrir mér«, sagði Myrtle, »hvað eg á að gera. Eg vildi svo fegin geta unnið mér fyrir einhverju, því að þetta lítilræði, sem eg geri fyrir Giggles, er sem ekkert að telja. En mér getur hreint ekkert hugkvæmst í kvöld. Eg vildi helzt að þú færir, Minnie; það var svo vingjarn- legt af þér að lita inn til mín, en eg vildi helzt af öllu vera ein míns liðs«. Hún dró nú að sér höndina og strauk þykka, dökka bárið af enni sér, eins og henni fyndist það liggja eins og farg á brennheitum gagnaug- unum. Minnie skildi hana, stóð upp og kysti Myrtle á kinnina að skilnaði. »Við erum aldrei alveg einar, Myrtle, ávalt vakir einn yfir okkur, mundu það Myrtle og reyndu að sofna, góða«, sagði Minnie að lokum hljóðlega. »í fyrra málið verður alt orðið skárra, vona eg, og þá skaltu koma ofan til min, jafnskjótt sem þú vaknar — er ekki svo? Bá gelum við talað um það betur«. Myrtle vissi ofboð vel að Minnie gat ekki hjálpað henni, en þó sagði hún já við boði hennar, svona hálfvegis, og þrýsti brenn- heitum vörum á mjúku en köldu kinnina á blindu vinkonunni sinni, leiddi hana svo til dyra. Tad sat á efsta þrepinn, hryggur og reiður út af þvi, sem dunið hafði yfir Myrtle og varð nú heldur en ekki karla- legur á svipinn. »En sú ráðvendni, Myrtle«, sagði hann hljóðlega. »Þar fékk Barge mann á móti sér, eða hvað? »Já, reyndist hann ekki al- veg framúrskarandi vel, þessi ungi maður?

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.