Heimilisblaðið - 01.10.1922, Síða 8
136
HEIMILISBLAÐIÐ
Eg vona, að Barge hafi fengið ósvikna
ráðningu hjá honum. t*ú skalt ekki taka
þér þetta nærri«, sagðí Tad, þegar hann sá,
að Myrtle roðnaði, »þú mátt ekki fást um,
hvað annar eins ræfill og hann Barge segir;
það vita allir, að hann er siljúgandi og
honum trúir enginn. En það verð eg að
segja, að guðleg ráðstöfun var það, að eg
skyldi hitta þennan unga mann á götunni.
Og þú veizt það, Myrtle, að þeir eru ekki
allmargir, sem eg treysti, en eg bar óðara
traust til þessa manns — mér leizt svo vel
á hann. Eg vildi gjarna hitta hann aftur.
Hann sagði vist ekkí til nafns síns, Myrtle?«
Myrtle hristi höfuðið.
»Hann sagði mér það heldur ekki«, sagði
Tad, »því að eins og þú getur skilið, þá
höfðum við ekki tíma til að segja hvor
öðrum til nafns okkar, en hann kemur
víst aftur, sjáðu til«.
Myrtle roðnaði og um leið og hún skelti
hurðinni aftur, þá sagði hún hljóðlega:
»Góða nótt, Tad, — góða nótt, Minnie«.
»Hún er alveg utan við sig, sýnist mér«,
sagði Tad, »eg vildi óska, að hún hefði
ekkert óráð í huga«.
»Hvað áttu við, Tad«, sagði Minnie í
hljóði, um leið og hún opnaði herbergis-
dyrnar.
»t*að er ekkerl«, sagði Tad og tók tvö
þrep í einu spori. »Nú er alt i góðu
lagi. Segðu henni bara á morgun, að eg
skuli vist gæta hennar — hún þarf ekki
að vera hrædd«.
^rsévinix í hjónabandi,
Frá því er sagt um Kyros konung Persa,
að hann lét einu sinni handtaka höfðingja
nokkurn, konu hans og börn.
Þegar bandingjarnir voru leiddir fyrir
hann, þá mælti Kyros við höfðingjann:
»Hvað viltu gefa til þess, að eg láti þig
lausan?«
»Helming landa minna«, svaraði höfðing-
inn hiklaust.
»En ef eg léti laus börn þín?«
y>Allar lendur mínar«.
»En ef eg léti konu þína lausa?«
»Þá vildi eg gefa sjáljan mig. Þetta svar
geðjaðist Kyrosi svo vel, að hann lét þau
öll laus, endurgjaldslaust.
Á heimleiðinni spurði höfðinginn konu
sína, hvort hún hefði veitt eftirtekt því
göfuglyndi, sem Kyros hefði auðsýnt þeim
og hvort hún hefði tekið nákvæmlega eftir
honum.
»Nei«, svaraði konan, »eg sá engan,
nema hann, sem vildi gefa sjálfan sig mér
til lausnar«.
Kvittanir.
Júlimánuður.
J. Ó. Vík, ’22 kr. 72; G. B. Viðvík '21—22 kr. 10;
R. E. Djúpav. ’22 kr. 5; S. S. Grásíðu ’21—’'22 kr.
50; J. S. B. Dynjanda ’22 kr. 10; G. P. Geiteyjar-
strönd ’22 kr. 5; S. B. Arnarvatni ’22 kr. 5; Kr. A.
S. Bolungarvík ’22 kr. 45; M. Eskif. ’22 5; M. S.
Melura ’22 kr. 32; J. V. Karabi ’21—22 kr. 10; Ól.
Ó. L. læknir Brekku ’21—’22 10; V. S. Fuglav. '22 kr. 5
K. H. Hrauni ’22 kr. 5; Kr. Kr. Fáskrúðsfirði ’22
kr. 112; J. O. Skaftabæ Sf. ’22 82; G. P. Nesi Nf.
’22 kr. 70; E. Sv. Lambav. ’22 32; G. P. Holti Rf
’22 kr. 36; Ó. G. Brekkug. 19, A. kr. 88; S. P. Ping.
eyri ’22 kr. 44; H. M. Bíldudal ’22 kr. 40; H. Tr-
Halldórsst. ’22 5; G. S. JSldleysu ’22 kr. 5; I. V.
Bakka ’22 kr. 40; P. M. Alftaf. ’21—’22 kr. 10; K.
Tr. Halldórsstöðum ’22 kr. 5;
Ágúslmániiður.
S. A. Kollabúðum ’22 kr. 5; Á. S. Urðum ’22 kr.
20; B. P. Hælavík ’22 kr. 5; Rv. K. Ögurnesi ’21
—’22 kr. 10; M. A. Gerfidal ’22 kr. 5; S. M. Kvig-
indisdal ’21—22 kr. 10; V. E. Keldhólum ’22 kr. 15;
A. P. Hólum ’22 35; H. P. Lambafelli ’22 kr. 5;
G. M. K. Alftamýri ’22 kr. 5; L. G. Hesti ’22—’22
kr. 10; J. V. Brekku ’22 5; L. Á. Mýri ’22 kr. 5;
S. J. frá Arnarbæli ’22 kr. 5;
Septembermánuður.
St. Tr. Arndisarstöðum '21—22 kr. 10, B. B.
Borg ’22 kr. 28; J. P. Sandbrekku ’22 kr. 32; G. Fr.
Skálavík ’22 80; St. P. Skáleyjum ’22 kr. 20; Kr. A.
St. Bolungarvik ’22 kr. 20; S. B. Keflavík ’22 kr. 75;
.1. Kr. G,. Hnífsdal ’22 kr. 5; Fr. N. Siglufirði ’22
kr. 30; Á. T. Lambastöðum ’22 kr. 25; V. J. Reyk-
húsum ’22 kr. 18,75; Jóh. G. S. Dalvik ’22 kr. 40;
St. Har. Hvalgröfum ’22 kr. 15; St. B. Sveðjust. ’22
20; P. S. Garði ’22 kr. 5; J. F. Arnarbæli ’22 kr. 5;
G. F. Pétursey ’22 kr. 20.
Útgefandi: Jón Helgason, prentari.
Prentsmiðjan Gutenberg.