Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.03.1923, Blaðsíða 4

Heimilisblaðið - 01.03.1923, Blaðsíða 4
Heímí lí sbLaöíö u og ijaMhúhxFo Eftir Ólaf Ólafsson, trúboða. Mikil er víðáttan hér í Kína. Það getið þið ímyndað ykkar, ef þið lítið eftir í landafræð- inni, hve mörgum sinnum Kína er stærra en ísland. Kristniboðssvæði Kinasambandsins norska eitt, sem er að eins örlítill hluti úr tveimur fylkjum — er á stærð við ísland alt. Nú eru kristniboðar Kínasambandsins, karlar og konur, um 70. Hugsið ykkur að íbúarnir á íslandi væru 7, 8 eða 9 milj. (eins og hér á kristniboðssvæðinu okkar) en prestar eða starfsmenn kírkjunnar væru að eins 70! Getið þið þá betur skilið erfiðleika kristniboðs- starfsins. Guði og mönnum hefir Kinasambandið norska heitið, að innan skamms tíma skuli þessum 7, 8 eða 9 miljónum öllum, verða boðað fagnaðarerindið. Hvernig er það mögu- legt? íslenzkir kristniboðsvinir hafa heitið að taka sinn hluta ábyrgðarinnar, þangað til ís- lenzka kirkjan byrjar sjálfstætt kristniboð. Þetta er því mál, sem oss kemur við. í raun og veru eru að eins ellefu — 11 — kristniboðsstöðvar á öllu okkar starfssvæði, — bugsið ykkur 11 kirkjur á landi á stærð við ísland, með alt að því 9 milj. íbúa! Ör- lítið brot af mergðinni miklu náum við með því móti, en allur fjöldinn er ósnortinn. Er hægt við því að gera? Nú hafa verið settar á fót fjölmargar y>útstöðuar<í, eiginlega fleiri en efnahagur og starfskraftar leyfa. Þessar útstöðvar eru engar kirkjur, oftast illa bygð kínversk hús. Innlendir trúboðar starfa þar stöðugt og kristniboðarnir heimsækja útstöðv- arnar, þegar því verður við komið. Smá söfnuðir hafa myndast á öllum þessum stöðv- um og byrjað með barnaskóla og biblíu- námsskeið. Önnur bezta og mest notaða aðferðin, til þess að ná fjöldanum, eru tjaldbúðir. Hafa þær reynst ágætlega. Kristniboðsstöðvarnar eru svo alt of fáar að þangað geta ekki allir sótt; og við verðum að jara til fólksins, komi það ekki til okkar, fyr höfum við enga af- sökun, bvorki vottar Krists hér né á íslandi. Komi fólk ekki til kirkju, þá flytjum er ndi okkar inn á heimilin, annars vita allir að okkur er ekki alvara, ræður okkar tóm orð og bænir okkar alvörulaust hjal. En þá, sem eitthvað vilja, virða jafnvel heiðingjarnir, og hlusta gjarnan á orð þeirra, sem prestar eru, viðar en í kirkjunni. Kristniboðar, sem hafa tjaldbúð, ferðast á öllum tímum ársins nokkurra vikna tíma, og heimsækja þorpin fjölmörgu, sem fjarri eru kristniboðsstöðvunum, og sveitirnar stóru, þar sem nafn Jesú hefir aldrei verið nefnt, og markaðsstaðina fjölmörgu, þar sem oft er samankomið alt að 50 þús. manna. Oftast hefir hann þá með sér 3 eða 4 innlenda kristniboða; tala þeir svo til skiftis allan daginn, eins lengi og kraftarnir endast; því aðsókn er hér nóg. Tjöldin vekja mjög eftir- tekt manna, því þau eru sjaldséð í Kína; og hafi maður hljóðfæri, handorgel, harmoniku eða gítar o. s. frv. getur maður verið viss um stöðugan húsfyllir. Tjöldin eru misjafnlega stór, rúma 2—3 hundruð manris oftast nær; stundum 6 hundruð. Þau eru vatnsheld og þægileg með- ferðar. Bekkir eða sæti eru óþörf, því i tjald- búðunum eru sjaldan tiiheyrendur, sem, al- vörugefnir eins og íslenzkir kirkjugestir hlýða á Guðs orðið, heldur skvaldrandi og lítt sið- aðir heiðingjar. Og Kínverjum þykir betra að setja á hækjum en okkur á góðum legu- bekkjum. Eg gat um það, í bréfi til vinar míns Fjeldbergs* að tjaldbúð yrði eitt hið fyrsta, sem eg í framtíðinni mundi biðja kristni- boðsvini heima um, til starfs okkar í Kína. En mikið gladdi mig að frétta, að fjársöfnun væri nú hafin í því skyni, löngu áður en eg hafði hugsað að senda beiðni um tjaldbúð. Guð blessi íslenzka kristniboðsvini fyrir slík- an lofsverðan áhuga. *) Norskur maöur, sem starfar með miklum áhuga í kristniboðsfélagi karla í Rvík.

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.