Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.03.1923, Qupperneq 8

Heimilisblaðið - 01.03.1923, Qupperneq 8
40 HEIMILISBLAÐIÐ 9“ VERK8MIÐJU8TÚLKAN EFTIR CHARLES GARVICE. BJARNl JÓNSSON PÝDDI. (Framh.) „Já, mikið hafið þér orðið að þola, kæri Jósef barón“, sagði Vivien með hluttekningn, „mér skilst af því, hvernig þér talið um hann, að þér munuð hafa haft mikla ást á honum, og að þér hafið verið honum einkar góður. þér vitið víst alls ekki, hvað hann hefir nú fyrir stafni, eða hvernig honum líður?“ „Nei“, svaraði hann hvatskeytlega, „og mér stendur líka á sama um það; eg vil ekk- ert meira um hann vita; hann er bróðurson- ur minn og erfir barónsnafnið eftir mig, sem aldrei skyldi vera, en — „Já, mikill heimskingi má hann vera, þessi ungi maður“, sagði Vivien þegar minst varði, „því að þér gætuð þó staðfest ráð yðar, herra barón, og------ Hún lézt nú aftur fara að virða fyrir sér myndina, en í raun réttri hafði hún augun á baróninum, og sá bregða fyrir dimmum roða í kinnum hans. „Já, það gæti eg auðvitað gjört“, sagði hann, með dálitlum hefðarhósta, en nú vissi Vivien, að hann var einhverra hluta vegna óhæfur til hjúskapar og eignast son, er tek- ið gæti við af honum og komið í stað þessa bróðursonar hans, sem hann hafði svo mikið heiftarhatur á. — „En eins og sakir standa, þá er þetta mjög raunalegt fyrir yður“, sagði hún. „Já, harla raunalegt“, sagði hann og roðn- aði meira, „einkum nú sem stendur, því að — já, eg er viss um, að eg má segja yður alt í trúnaði, kæra lafði Vivien, — eg er metorða- gjarn, og — „Eg veit ógn vel, hvað þér hafið í huga“, sagði hún í hljóði, „þér hafið stutt svo vel og rækilega flokk föður míns, það hefir pabbi sagt mér, en eg má ekki ljósta upp leyndarmálum, Jósef barón“. það brá fyrir kviku leiftri í augum hans, er hann leit til hennar. „Nei, auðvitað, lafði Vivien; það er svo vinsamlegt, að mæla svona uppörfandi orð- um til mín; en eru annars nokkrar horfur á, að mér verði boðin aðalstign, þar sem annar eins maður og hann bróðursonur minn á að erfa tignina eftir mig?“ „Eg skil svo undur vel, hvað þér farið, kæri herra barón; það er þungt fyrir yður, að frændi yðar skuli baka yður sorg, en þér verðið að vona hins bezta; hann getur bætt ráð sitt og vitkast, og þegar öllu er á botn- inn hvolft, þá erum við öll á valdi atvik- anna, — það getur komið fyrir eitt eða ann- að, sem hafi áhrif á hann — eg á við í rétta átt“. — „J>að er vinsamlegt af yður, að segja það“, sagði hann, og tók við myndinni, sem hún nú rétti að honum, og tók fast og hlýlega í hönd henni um leið, „en eg er hræddur um, að engar horfur séu á, að hann breytist til batnaðar. Eg vildi óska, að eg hefði ekki þreytt yður með þessum sögum af fólki mínu, það var hin vinsamlega samhygð yðar, sem kom mér til að segja yður það í trúnaði; eig- um við nú ekki að hverfa inn í hópinn aftur?“ Skömmu síðar bjuggust gestimir til brott- ferðar, en síðast fóru þau Purfleet lávarður og dóttir hans; um leið og lávarðurinn kvaddi Jósef barón, þá mælti hann: „Að því er Róbert Aden snertir, hinn unga vin minn, Jósef barón, þá langaði mig til að hafa hann með mér hingað í kvöld“. Lafði Vivien var að hneppa á sig hanzk- ana; en er hún heyrði orð föður síns, þá snéri hún sér hvatlega að þeim báðum og sagði: „það máttu um fram alt ekki gjöra, pabbi. Jósef barón hefir í svo mörg horn að líta, og eg er hárviss um, að baróninum og' hinum unga vini þínum muni ekki semja vel“. Svo brosti hún áminnilega til JósefS

x

Heimilisblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.