Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.07.1925, Page 11

Heimilisblaðið - 01.07.1925, Page 11
HEIMILISBLAÐIÐ 97 Ló eg sé bundin við bæinn minn, og beri’ ekki hrífu að strái um sinn, sein var pó mín kærasta vinna, þá fær mér gleði hin fagra sýn, því faðma eg ánægð börnin mín og ber þau til bóla sinna. Mamma. ----^XSX^----- Dutlungar harðstjórans. [Niðurl.] Um kvöldið, þegar liúmið liafði læðst yfir borgina, þá læddist Klódía náföl, en með tindrandi augum út úr húsi föður síns; hún var sveipuð síðri, dökkri kápu og hafði hettu á liöfði. Pegar óvæntur skarkali barst henni að eyrum, þá nam hún óðara staðar og hljóp fyrir eitthvert dimt húshorn og faldi sig þar; nienn hefðu getað heyrt hjarta hennar slá. Svona gekk hún lengi, og leitaði uppi þær götur, þar sem umferðin er minst. Pegar hún var komin fram hjá hinu nafnkenda leiksviði Rómaborgar, lá leið hennar út á víðavang alt 1 einu; óbygðar lendur og mannlausir vegir •'áðu svo langt sem augað eygði. Hún nam staðar efablandin og titraði. Hún bugsaði með sér, að sig mundi alt af bresta það áræði, sem til þyrfti. Hvað var það, sem leiddi hana áfram yfir allar þessar auðnir al- eina, fylgdarlausa í náttmyrkrinu, þar sem Þjófar og óbótamenn annars voru á reiki? Hún hljóp og hljóp. Loks þreifaði hún upp niúrvegg í myrkrinu. Hún gekk meðfram veggnum og hraðaði sér því meira. I’egar 'ninst varði, bar liana að göngum; þar blik- nðu hjúpuð ljósker í myrkrinu, eins og stjörn- nr. Hún gerði sér í hugarlund, að þetta væru grafhvelfingar borgarínnar. Hún áræddi að bætta sér inn í göngin. I’egar hún var búin ab ganga svo sem 5—G faðma, J)á var hún komin inn i nokkurskonar völundarhús. er ’nyndaðist að svölum lábogahvelfingum. Pess- ar lágu og þröngu svalir urðu rýmri, hingað °S þangað; ljóskerin lýstu henni á leiðinniog var eins og þau væru að flýja undan henni. Loks bárust henni raddir að eyrum; þær ómuðu á móti henni, en ógn óskýrlega. Hún heyrði samt að verið var að syngja sálmalag, þá fyltist hjarta hennar hinum mesta fögnuði; kom hún nú inn í víða hvelfingu. Pá sá hún þúsundir manna við Ijósið af kyndlunuin; lágu þeir þar allir á knjám og gerðu krossmark fyrir brjósti sér, játuðu syndir sínar og trú sína. Pað voru karlar og konur og jafnvel börn og ákölluðu allir nafn Jesú. Klódía skygndist um eftir manni sínum á meðal mannfjöldans, hún vissi, að hann hlaut þar að vera; hún kom líka fljótt auga á liann, því að hann var auðþektur, og fór {)á hjarta hennar óðara að slá harðara. Hún virti fyrir sér göfuga svipinn hans; sárkvalinn var hann af raunum, sem enginn þekti; hún hafði aug- un á hinum athugulu augum hans; það skein eins og himinljómi úr þeim á þessari stundu; en svo varð henni litið inn í lielli, sem hafði orðið til við það, að bjargi var lyft burtu þaðan. Par stóð gamall maður virðulegur útlits, sem Klódía kannaðist við; það var Pétur postuli. Hann lýsti blessun yfir öllum; allir hneigðu höfuð sin, því að þeir þráðu hina guðlegu vernd. Að því búnn talaði postulinn, og Ivló- día hlýddi á með allri athygli liina Ijósu fræðslu hans og hina föðurlegu rödd hans; hvorki ámælti hann né hótaði, lieldur sagði: »Friður sé með yður!« Sömuleiðis mælti hann: »Elskið hver ann- an, því þar sem enginn kærleikur er milli manna, þar er enginn Guð«. Hann áminti þá ennfremur um að elska dygðina, fátæktina og þjáninguna, því að það eru vegirnir, sem liggja til eilífs lífs. Pað var mikil guðrækni og sakleysi í þess- um einföldu orðum postulans; allir virtust vera lmgfangnir af þeim. Klódía heyrði {)essi orð: »Skírðu oss, Pétur, skírðu oss!« Og postulinn tók steinker fult af vatni og vætti höfuð þeirra. Pá var eins og björtu himinljósi brygði með undrakrafti á sál Klódíu; nú var afturhvarfs- starfið fullnaö í sálu hennar, það sem byrjað

x

Heimilisblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.