Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.07.1925, Qupperneq 15

Heimilisblaðið - 01.07.1925, Qupperneq 15
HEIMILISBLAÐIÐ 101 Draumur Sigurðar eál. Porgeirssonar, sem hann dreymdi 2. okt. 1903. Hann andaðíst 0. janúar 1904. Eg þóttist eina nótt úti staddur vera við Lauganesspítala, og var par á gangi með öðrum manni, er mér var samrýndur. Eg tal- aði við hann á pá leið, að það væri næsta merkilegt, livað hér væri alt af dimt, og svar- aði hann, að Jiað væri vanalegt hér. En það væri strax bjartara austur hjá Fagurhól, sent hér er skamt frá. Sagði eg, að við skyldum Þá fara pangað. Héldum við svo af stað, og er við vorum komnir pangað, sem nefnt var Fagurhóll, verður strax fyrir okkur feikna stór garðiu'. og þótti mér hann allur vera úr sementi. Pví næst fórum við að leita að úliði á garðinum, og fundum það von bráðar, °g Ijúkum pví upp án dvalar. I’etta ldið var alt skreytt nteð útskornum laufum og pílár- oin. En er við komum inn fyrir hið téða itiið, sáum við að par voru pétt settar brautir, allar úr marmara, að mér pótti vera. og með Lam pessum brautum voru mjög péttar stóla- raðir og pannig lagaðar, að pær voru nokk- llð lengri á annan veginn og fastur bekkur alt í kring og stórt borð í miðjum pessum úring. Á petta borð var breiddur rauður dúk- llr og á pessum dúk lá afarstór bók. Pá pyk- lst eg spyrja félaga minn, hvaða bók petta væri, og sagði hann, að pað væri lofgerðar- úók Drottins. í pessu verður mér litíð á fjölda Þessara stóla, og svo livað margir voru í hverjum fyrir sig; mig minnir að 10 væru í sumurn, en 20 í sumum. Pessir stólar voru Ldlir af fólki á ölluin aldri. Par næst göng- um við enn lengra, Þar til við sjáum afar stórt hús, var pað með þremur dyrum, og tyrir hverjum voru prjár steintröppur. En sú shínandi fegurð í kringum pessar dyr, verður mer í minni. Pá verður mér litið í norðvestur °g sé eg par líka marga stóla, á sama hátt °g hina, en petta fólk var alt vanalega klætt. há spurði eg félaga minn, af hverju petta fólk væri ekki í hvítum kyrtlum eins og hinir. hfann sagði, að pað væri svona klætt af pví, að ekki væri búið að fyrirgefa pví. Eg spurði pá ennfremur, livenær pví yrði fyrirgefið; hann sagði, að flestu af pví yrði ekki fyrir- geflð fyr en eftir 20 ár. 1 þessu vetfangi hringdi klukka í hinu milda liúsi, og alt í einu opnast pá pessar þrennar dyr, og sé eg eg pá sjálfan frelsarann, hvar hann kemur fram og með honum tveir englar í hvít- um dragkyrtlum. En frelslarinn var í svo tignarlegum messuskrúða, að engan iieíi eg slíkan séð. Og ganga þeir út um brautirnar og pá gerir alt fólkið bæn sína, og að pví búnu, er pað alt iiafði fallið fram, stendur pað upp og fylgir frelsaranum aftur til þess mikla liúss. Eg var sem steini lostinn að sjá alt petta, og póttist eg enn þá spyrja félaga minn, livort fólkið mundi alt komast ínn í einu, og sagði hann að pað mundi ekkert gera til, pví par væri alt af án enda verið að halda lofsöngva. Pá póttist eg spyrja hann, hvort okkur mundi óhætt hér á meðan, og sagði hann það vera. Pá fer fram hin himneska lofgerð, sá inndæli söngur, sem gegnum smaug hverja mína æð og fyltist hjarta mitt þeirri unun, er eg ekki lýsa má. Petta gekk nokkra stund. En aö pví búnu streymir fólk- ið úr pessu mikla musteri Drottins og út urn hinar téðu brautir, og steig ]>að aftur upp í stólana, sem fyr er frá sagt, Pegar petta alt var um garð gengið, stóðu opnar dyrnar á hinu heilaga húsi, og varð okkur litið par inn ; pá sáum við frelsarann, hvar liann stóð fyrir miðju altari, en pað var fyrir miðjum gafli Jiessa mikla húss, og var sinn engill til hvorrar handar honum. Sú himneská sjón líður mér aldrei úr minni. Eftir að liafa séð þessa undra dýrð og fegurðarljóma, fórum við fé- lagar og gengum á sömu braut, er við kom-, um og fórum um samá' lilið. Síðan yaknaði eg, utan við sjálfan mig. Guð geymi öllum sönnum börnum sínum pessa dýrð, sem hér er sagt frá. Amen, í nafni ]»ess sæla frelsara, sem ljómaöi fyrir mínum augum pessa sælu nótt. — Friður Guðs sé með öllum, um aldir alda, í nafni Guðs föður, Guðs sonar og heilags anda. Amen. -------------

x

Heimilisblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.