Heimilisblaðið - 01.01.1912, Síða 5
HEIMILISBL AÐIÐ
3
Ásgeir Blöndal héraðslæknir á Eyrarbakka,
Bogi Th. Melsteð sagnfræðingux í Kaup-
mannahöfn, dbrm. Brynjúlfur Jóusson frá
Minnanúpi, Einar E. Sæmundsen skógfræð-
ingur, Guðmundur Hjaltason kennari og
cand. theol. Jóhann Briem keunari á Eyrar-
bakka.
Fleiri hafa og lofað að styðja blaðið, þótt
l>eir séu eigi taldir.
Blikan.
#
Nú eru þeir báðir íarnir frá ritstjórn ung-
jnennablaðsins „Skinfaxa" Helgi Yaltýsson og
Guðmundur Hjaltason. Helga var það að
þakka að „Skinfaxi" komst á fót, og hann
hefir ritað í hann með þeim eldmóð og áhuga
sem honum er svo eiginlegt. Bað leggur yl
af því sem Helgi skrifar, manni hlýnar um
hjartað. Og þess vegna er hann flestum færari
að vekja æskuiýðinn og glœða hjá honurn hinar
góðu tilfinningar. Hinar ágætu trúar og sið-
fræðisgreinar Guðmundar Hjaltasonar, sem
birzt hafa í „Skinfaxa", hafa hlotið almenn-
ingshi'lli, og yfir höfuð mun „Skinfaxi" hafa
þótt fyrirmyndarblað í höndum þeirra Helga
Og Guðmundar. Sem betur fer er allur al-
menningur — að minsta kosti til sveita —
svo rétt hugsandi, að sjá og skilja, að það er
þýðingarmesti þátturinn í allri ungmennafé-
lagshreyfingunni. að innræta æskulýðnum trú
og siðgæði, kenna honurn að elska og virða
hinar fegurstu og háleitustu hugsjónir lífsins.
En sambandsþing U. M. F. í., sem háð var
í Reykjavík í vor vék þeim báðum frá ritstjórn
blaðsins, er oss þó kunnugt um, aí viðtali
við þá báða, að þeir vildu fúslega starfa við
„Skinfaxa" áfram.
Hversvegna vék Sambandsþingið þeim frá?
Varia mun það hafa verið vegna fjárskorts,
því Helgi mun enga borgun hafa fengið fyrir
sitt ritstjórnarstarf, og þóknun sú sem Guð-
mundur fékk var svo smá, að tæplega mun
hafa fengist kostnaðarminni ritstjórn. Hitt
mun fremur hafa verið, að sambandsþinginu
hafi ekki geðjast að stefnu blaðsins í höndum
þeirra Helga og Guðmundar, þól.t það um of
andlegt: oí raikið af trúar og siðgæðisgreinum
í því.
ískyggilegt ástand, ef svo væri, af félags-
skap, sem byggir starf sitt á knstiiegum
grundvelli. Og tæplega trúum vér því að
vinur vor, núverandi sambandsstjóri og fleiri
ágætismenn, sem miklu ráða um ungmenna-
félagamálefni, fyili flokk þeirra manna, sem
lítinn gaum vilja gefa undirstöðnatriðum sannr-
ar menningar og láta þau málefni ætíð mæta
afgangi- Vonum vér bvi, að „Skinfaxi“ stefni
í rétta átt héreftir sem hingað til.
Bað eru fagrar hugsjónir að vilja endurvekja
iþróttaáhugann og löngun til að skrýða landið
skógi. En ekki rná þar fyrir gleymast það:
að efla siðferðisþrekið, vekja fegurðartilfinn-
inguna og glæða sannleiksástina í brjóstum
hinna ungu. Minnumst orða þjóðskáldsins góða:
Upp á við til himins horlðu hátt er markið Bett.
Eftir þekking stefn og stunda, styð svo frels'ð rétt
AnnarB lánast ei þitt nýja endurreisnarverk.
Fyrir andans framför eina fólksins hönd er sterk.
Vér þurfum að fá andlega vakningu, trúar-
og siðferðislega vakningu, þar sem ungmenni
landsins standa í broddi fylkingar. Og enga
þekkjum vér syo góða æskulýðsleiðtoga í
þeim efnum, sem þá Helga og Guðmund. —
Bessvegna hefir mörgum þótt draga upp tví-
sýna bliku, er þeim var vikið fiá ritstjórn
„Skinfaxa". — Vonandi eyðist sú blika af
sjálfu sér.
Hin sönnu mikilmenni.
#
Það stendur ekki í sambandi við auð né
hefðurstöður, að verða sannkallað mikilmenni.