Heimilisblaðið - 01.01.1912, Page 9
HEIMILISBLAÐIÐ
7
varir um yður að þér ekki verðið tekiiin á
ný. Það er svo erfitt að fá menn náðaða,
sem herra Cromwell hefir kveðið upp dauða-
^lóm yfir“.
-----o~o~o——---
Skug'g’sjá.
Pegar Karl XV. einusinni var á ferð í .Nor-
egi lá leið hans í gegnum Guðbrandsdalinn.
Þar hitti hann drenghnokka, sem sat við veg-
inn og var að snæða. Konungur settist hjá
honum og gaf sig á tal við hann. Eftir litla
stund tók konungur eftir því að drenginn
vantaði eitthvað, sem hann var að svipast
eftir. Konungur epurði nvað hann hefði mist.
Hann kvaðst ekki finna hnífinn sinn. Kon-
ungur spurði hvort hann væri hræddur um
að hann hefði tekið hnífinn. „Ekki segi eg
neitt um það“, mælti drengurinn, „en hitt
veit eg, að hefði eg verið hér einn, þá væri
-hnífurinn vís1'.
#
Á Svisslandi er mikið af vasaþjófum, og
stunda þeir atvinnu sína með dugnaði. Árið
1909 reiknaðist svo til að þeir hefðu stolið
úrum fyrir fjárupphæð sem svaraði 800,000 kr.
Fullvaxta maður þarf daglega 9000 iítra
at andrúmslofti.
#
Veitingahúsin í Sviss græða árlega um
144,000,000 kr. á útlendum ferðamönnum.
#
Sótið úr kgl. peningasiáttu-verksmiðjunni i
Beriín er uppleyst efnafræðislega og kemur
úr þvi gullguft, sem nemur 3600 kr. á ári.
#
Nýlega dó í Suður-Ameríku maður nokkur.
Hann lagði svo fyrir áður en hann dó, að í
•kistuna hjá sér skyldi láta 1 tóbakspípu, 2
-Aóbakspund, 2 eldspitukassa og göngustaf.
Rússneskur stóriióndi einn á 1,750,000 fjár,
enda er hann talinn mestur fjárbóndi í heimi.
Hann þarf 3500 fjárhunda til smalamensk-
unnar.
#
Stórbóndi einn í Vesturheimi heldur því
fram, að því betur sem kýrnar séu stundaðar,
þess meir mjólki þær og þess betri verði
mjólkin úr þeim. Fetta er nú í sjálfu sér
ekkert nýtt. En hitt er vanséð, hvort menn
alment treysta sér tíl að sýna kúm sínum
eins mikla umönnun og hann. Hann lætur
t. d. baða þær daglega og bursta tennur
þeirra þrisvar á dag með silkimjúkum bursta.
Á sumrin er hver kýr klædd hvítu líni, er
það gert til þess að verja þær flugnabiti.
#
Yfirlögreglan í Berlín og Dresden á Þýzka-
landi hefir fundið upp gott ráð til þess að
koma upp um innbrotsþjófa. Teppi er hengt
fyrir framan þær herhergisdyr, þar sem pen-
ingar eru geymdir. Um teppið liggja leyndir
rafmagnsþræðir, sem aftur standa í sambandi
við dyrabjölluna i húsinu, og stundum lög-
reglustöðina, en þannig er frá gengið, að sjá
má í hvaða húsi þjófarnir eru. Hvað lítið
sem þjófarnir hreifa við tjaldinu, þá syngur í
við endastöðina og eru þá „refirnir gegnir í
gildruna".
#
1785 fór maður að nafni Blanshand yfir
sundið milli Frakklands og Englands á ioft-
fari. Lúðvík 16. veitti honum 900 kr. að
verðlaunum.
#
Stærsti skógur í heimi er í Amazondalnum
í Ameríku. Hann er 3000 kílómetrar á lengd
og 2000 km. á breidd. Eða með öðrum orð-
um nálega 60 sinnum stærri en alt ísland.
•