Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.10.1912, Blaðsíða 5

Heimilisblaðið - 01.10.1912, Blaðsíða 5
HEIMILISBL AÐIÐ 77 Góðar bækur. Til Eins og mönnum er það afaráríðandi að neyta hollrar fæðu, svo hkaminn þroskist og kráftarnir viðhaJdist, svo er og hitt engu síður áauðsynlegt, að neyta hollrar andlegrar fæðu, svo andi vor þroskist og göfgist. Þetta at- huga menn ekki sem skyldi. Menn eru sorg- lega skeytingarlauslr með andlegu fæðuna, sem menn mestmegnis fá við lestur blaða og bóka. Vér viljum þá aðallega snúa máli voru til ungu kynsióðarinnar. Hennar er framtíðin. Á henni byggjast framtiðarvonir þessarar þjóð- ar. ’fá vaxa meiðar þar vísir er nú, ef hún (unga kynslóðin) verður sjálfri sér trú. Hinn valinkunni bókaútgefandi Sigurður Kristjánsson í Reykjavík hefir sent Heimilis- blaðinu tvær bækur til umgetningar: „Bók æskunnar", eftir Skovgaard Petersen, þýdd af fræðslumálastjóra Jóni Þórarinssyni, — og „Dagrenning", eftir hinn þjóðkunna höfund Jón Jónsson sagnfræðing. Allar eru bækur Jóns sagnfræðings hreinasta „gull“ að gæðum til, en þó er Dagrenning þeirra ágætust, sór- staklega fyrir æskulýðinn, enda er hún hon- um tileinkuð- Um Bók æskunnar leyfum vér oss að segja, að trauðla heflr betri bók, lær- dómsríkari og heilnæmari handa ungu kyn- Blóðinni verið snúið á islenzku, og er þá mik- ið sagt, því mörg góð bók hefir verið þýdd og gefin út. Hver sá íslendingur, sem vill á Guð sinn og land sitt trúa, verður að lesa þessar tvær bækur og læra af þeim að lifa. Pjóðfólag vort er heppið, að eiga þá góðu menn, er láta sér ant um að gefa út svona ágætar bækur, en starf þeirra kemur því að eins að notum, að í landinu þeirra búi al- Vörugefln, athugul kynslóð, sem vill tileinka sér og gróðursetja i hjörtum sínum þann heilnæma lifslærdóm og fróðleik sem í bók- unum felst. dbrm. Brýnjúlfs Jónssonar frá Minna-Núpi. ó 74 dro ofmœli fions 26. aepíember 1912 só þér vinur! halur hinn fróði; aldið íturmenni! Sjötíu ára svo og fjögra, stendur þú að starfi. Þökk fyrir ljóðin! þökk fyrir starfann fornra fræða, þulur! Verður ei mældur, né á metum veginn, öldungs æfistarfl. Heil ráð og holl ráð þú höldum kennir, spektar máli mælir. Lengi mun Brynjúlfs hjá lýðum getið. — Mannorð manninn lifir. Hniginn að árum, ungur í sálu, lifðu vel ög lengi! Ljós þitt oss lýsir. Lýsi þér Drottinn, hinnst er sólin hnígur. K. E. B.

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.