Heimilisblaðið - 01.02.1914, Qupperneq 6
14
HEIMILISBL AÐIÐ
að eg er yíirmaSur yðar. Þetta vildi eg biðja
yður aS segja konu yðar.
Með þessum orðum stóð ungi forstjórinn á
fætur og gaf með því til kynna, að samræðun-
um væri lokið.
Að loknum störfum um kvöldið, flýtti Karl
Broard sér heim til konu sinnar, til þess að
flytja henni fréttirnar.
Þessa nótt — og næstu nætur á eftir —
var EIísu Broard varnað svefns. — Hversu
mjög óskaði hún nú þess, að hún mætti taka
aðeins örfá skref aftur á bak í tímann, og byrja
■aftur breytni sína, bygða á reynslu siöustu fót-
mála hennar. —
ieonardo da linGi.
í Flórens málaði hann einnig myndina af
<Önnu hinni helgu með dóttur sína, Maríu mey,
og barnið Jesú. Mynd þessi vakti sérstaklega
mikla eftirtekt vegna þess, að aðrir málarar höfðu
á undan honum málað myndir þeirra svo stíf
ar, sem steingerfingar væri, en svipbrigðin og
lipurð í hreyfingum gerir myndir hans sem
lifandi.
A þessu tímabili málaði hann ennfremur
hina heimsfrægu mynd af „Mona Lisa“, konu
Francesco del Giocondes i Florens. Það er ein-
hver hin frægasta, og jafnframt talin einhver
hin bezta mynd, af ungri, þroskaðri konu, sem
til er, enda er mælt, að hann hafi unnið að
henni í fjögur ár. Það af þessu Iistaverki, er
sérstaklega vekur aðdáun manns, er hin fín-
gerða lifandi myndun andlitsins, og hið bliða
bros, er leikur um varir hennar. Slíkt blíðu-
bros kemur að vísu fram í mörgum andlits-
myndum hans.
Eftir þetta vann Leonardo að ýmsum störf-
um hingað og þangað um Italíu. Arið 1509
vann hann að skurðgreftri við Milano; einnig
stóð hann fyrir því að skreyta borgina við inn-
ireið Lúðvíks XII., og gerði konungur hann þá
að hirðmálara sínum. Við San Christoforo
bygði hann stýflugarð, sem talinn er eitt af
meistaraverkum mannvirkjafræðinnar. Loks
fylgdist hann með Frans I. Frakkakonungi, eftir
áskorun hans til Frakklands, og fékk þar höll-
ina Cloux í nánd við Ambois til aðseturs, og
dvaldi þar til dauðadags.
Leonardo dó 2. maí 1519. A banasæng-
inni var honum hjúkrað af einum uppáhalds-
lærisveini sínum og vini, Francesco Melzi, að-
alsmanni frá Milano, sem hann hafði arfleitt að
öllum handritum sínum, teikningum og áhöld-
um. —
Gröf hans er algerlega týnd.
Þ. F.
ikuggsjá.
I Irlandi ríkir nú mikil neyð meðal fátækra.
Talið er að eymd sú, stafi mikið af hinum
tiðu verkföllum þar. Víða eru hin fátæku börn
orðin sjúk af hungri. Ymsir hafa tekið sér fram
um að likna þessum aumingjum. Er þar talin
fremst í flokki greifafrú ein í Dyflin. Hún hefir
ásamt nokkrum stúlkum, sem hún hefur feng-
ið í liö með sér, tekið að sér að gefa 1000 fá-
tæklingum mat á hverjum degi. Þetta hefir
haft góð áhrif á heldri konur landsins, svo að
ýmsar hafa fetað í fótspor hennar, þótt smá-
tækari séu á gjafirnar.
Rockefeller gamli græðir 2 milj. dollara
þriðja hvern dag, þó eru ekki taldar með rent-
ur af stofnfé hans.
Miljónamæringurinn P. Morgan, sem nýlega
er látinn, átti einkennilegt safn af úrum. Hið
elzta þeirra var smiðað á Englandi árið 1571.
Einu sinni keypti hann á uppboði gamalt úr
snn'ðað 1633: það kostaði hann 22 þúsund
franka.
Eftir því sem næst. verður komist, etur
svalan daglega kringum 6000 smápöddur.