Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.03.1914, Page 5

Heimilisblaðið - 01.03.1914, Page 5
HEIMILISBL AÐIÐ 21 og áhrifamikið, og stöðugt er bætt við; það er eins og það ætli aldrei að taka enda. En þetta eru líka skilnaðargjafirnar til látnu ungmeyjar- innar frá ástvinum hennar og vandamönnum, og, eins og vani og siður bjóða, hluttekningar- gjafir til riku, velmetnu hjónanna. Það er tekið að rökkva. Nokkur blóm- anna eru farin að lúta höfði. Morguninn eftir á að jarðsyngja, en þangað til þurfa blómin að lifa. Dauðakirð ríkir í salnum. Hjónin eru inni í svefnherbergiunum; þjónninn einn er á ferli, en fer hljóðlega úr einu herberginu i annað og sér um alt það, sem gera þarf fyrir jarðarför- ina. Fyrra hluta dagsins voru þar smiðir og listamenn, að undirbúa og skreyta. — Þá kom þar ung stúlka með öskjur; í þeim var svartur kvenhattur, með langri slæðu. Það er sorgar- hattur móðurinnar. Um leið og stúlkan kom með hattinn og gekk framhjá salsdyrunum, bað hún þjóninn leyfis að mega líta inn í salinn, á öll blómin. Fyrir framan hana lá stór sveigur úr Maréchall-Rial- rósum og dökkum Pensées-blómum. Hún var ein. Henni ílaug í hug eins og færi elding: „Með þessum rósum gæti eg bezt skreytt óbreytta, lóslitna kjólinn hennar mömrnu sálugu fyrir dansleikinn annað kvöld.“ Hún fyrirvarð sig í fyrstu fyrir þessa synd- samlegu ágirnd, en freistingin varð sterkari en hún fengi við ráðið. Hver misti eiginlega nokkurs við það? Þarna var samanhópað kynstrum af blómum og sveigum, og enginn mundi sakna fáeinna blóma. Og þótt svo yrði, hver mundi fara að spyrjast fyrir um það, þegar slík sorg ríkti í húsinu? Sannarlega! Hún vann engum mein með því, en aftur á móti gat henni hlotnast með þessum blómum fagurt skraut. Hún greip blóm- sveiginn, lagði hann í öskjurnar, þar sem hatt- urinn hafði verið, og skundaði heim. Þetta var María — skartbúðarkonuþernan. * * * Dansleikurinn var á enda. María var kom- in heim í kalda, fátæklega herbergið. Henni fanst það nú hálfu ömurlegra en nokkru sinni áður. Hafði nú dansleikurinn fært henni ham- ingu og gleði? Hafði hann fært henni hið þráða, undurfulla, eins og hún hafði vænst? Víst hafði verið dáðst að henni og hún höfð í hávegum. Víst hafði hún heyrt gull- hamrana og smjaður danssveinanna, skiftst á augnaskotum við þá o. s. frv., en það var þó eitthvað enn annað hugljúft og sæluríkt, sem hún hafði vænst að finna þar og búist við að geta geyrnt í endurminningu lengi — lengi. — Hann hafði verið þar líka, ungi útlendi stúdentinn, sem hún hafði kynst lítillega áður, og hún geymt mynd hans æ síðan. Hann hafði dansað við hana, verið fjörið sjálft, og beðið hana þess að lokum, að fundum þeirra mætti bera saman sem oftast. Og að dansleiknum enduðum bauð hann henni fylgd sína heim. En þá hafði hún orðið hálf-hrædd og laumast burt heinrleiðis; hún fyrirvarð sig lr'ka fyrir að láta nokkurn mann sjá götóttu regnhlífina sína, hún skar svo af við skrautið á henni sjálfri. Hán yfirgaf því danssalinn á laun, og hélt heimleiðis fótgangandi, i kuldanum og rigning- unni, á þunnu, hvítu dansskónum, — og þó hafði hún átt kost á að aka heim í lokuðunr vagni — við hliðina á honum, sem lijarta henn- ar hafði kjörið. — Nóttin var napurköld og niðadimm. Mariu var kalt, hún skalf og nötraði af kuldanum þegar hún kom heim. Henni varð litið í speg- ilinn. Kinnarnar glóðu eins og í hitasótt, augun voru stór og gljáandi, en rósirnar, fögru, gulu rósirnar voru fölnaðar og dánar. — Hún flýtti sér að afklæðast, og datt brátt í fasta svefn. En það var ekki hressandi svefn ungmeynnar; hún var óróleg, ýmist heit eða köld. Þó hafði hún ekki sofið lengi, þegar húu hrökk upp við sáran sting í hjartað. Hvað olli því? Hún settist upp. Hún sá ljósrák skína inn á milli hurðar og stafs á herbergi hennar. Hvaðan mundi það Ijós koma? Hafði hún gleymt að slökkva ljósið? Hún stóð á fætur, til þess að aðgæta þetta nánar. Það greip hana afskapa-kuldahrollur, og

x

Heimilisblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.