Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.04.1914, Side 10

Heimilisblaðið - 01.04.1914, Side 10
32 HEIMILISBLAÐIÐ í fat og egg]arau5urnar hrærðar, ein í einu, því næst kryddið og síðast hvíturnar vel þeytt- ar. BakaS í kringlóttu móti með föstum botni, sem skal smurt vel og stráð í muldum tvíbök- um, líka skal strá tvíbökum ofan á. Bakist í vel heitum ofni í liSugan 1 tíma. Borðist með vanalegri brúnni steikarsósu sem Iíka má búa til úr nýju kjötsoði og dekkja með sósulit. Mótið skal bera inn á kringlóttu fati eða bakka ■og binda pentudúk utan um það. leimilisráð, Hrákar. Leiðinlegt er að sjá, livað fólk yfirleitt er hugsunarlaust með að hrækja á gólfin, nærri því að segja hvar sem það er statt i samkomu- húsum og kirkjum og stundum þá i heimahús- um lika, úti á miðjar götur og hvar sem vera skal, það er fremur ógeðslegt að ganga fram hjá eða stíga ofan í gulgrænar viðbjóðslegar hrákaklessur eða sjá pilsfaldana eða önnur föt dragast ofan í þá, eða börn veltast og ganga í þeim, svo þegar þetta þornar upp, vita þá að það iðulega þyrlast upp i ryki og fer þá oft ofan í mann, — Óskandi væri, til þess ögn að ráða bót á þessu, að hver og einn ætti sér hráhabauk (þeir fást í lyfjabúðum). Það fer ekki meira fyrir þeim i vasa eða tösku en t. d. tóbaksdósum, í þeim á að hafa ögn af kar- bólvatni eða öðru sótthreinsandi efni, hreinsa þá dagl. og þannig: helzt brenna þvi sem í þeim er, skola þá síðan úr heitu sódavatni og passa að ekki sé neitt eftir, skola þá svo og þvo hendurnar vel á eftir. — Margur segir nú líkl. sem svo: „Ekki held ég að ég fari að hafa hrákaílát í vasanum þó að það komi fyrir að ég þurfi að hrækja. Það er svo leiðinlegt að bera þetta á sér, og svo heldur fólk að það séu einhver veikindi í mér ef það sér mig með glasið“. En gáið að, það er ekki þrifalegra að hrækja í vasaklút sinn eins og oft á sér-stað — og hvað hitt snertir, er það einmitt meiningin að fólki skiljist, að það er oft sóttnæmi i hrákunum — og fari því varlega með þá. Presturinn: Hvað hafið þér nú hugsað }d5ur að drengurinn yðar taki sér fyrir hendur, þegar hann er fermdur. Kláus Petersen: Hann segist helzt vilja læra að leika á hljóðfæri, og verða tónfræðingur. Pr.: Já, það er nú undir því komið að hann hafi „eyra“. K.: Eyra,já, ekki vantarþað, nógustóreruþan. Konan (nýgift): Maðurinn minn segist ekki vilja láta mig fá eldabusku. Vinkonan: Ó‘ bídda bara róleg. Þegar hann er búinn i viku að borða matinn, sem þú býrð til, þá lætur hann þig áreiðanlega fá eldabusku Dóttirin: Hvað geturðu eiginlega sett út á hann Hans, pabbi. Faðirinn: Hann er flón, og það eru bara peningarnir þínir sem hann vill ná í. Dóttirin: Nei, hann vildi mig víst þó eg væri bláfátæk. Faðirinn: Nú, þá er hann enn meira flón en eg hélt hann væri. Spakmæli. Veldu þér fáa vini en góða. Heimurinn metur þig eftir ytra atgerfi, auð- legð og upphefð. En Guð lítur aðeins á hjarta- lag þitt. Þegar þú ert mitt í raunum og erfiðleikum, þá sérðu bezt hverjir eru vinir þínir. Barnablaðið „Æskan“ kemur út í Reykja- vik, 12 blöð á ári, og auk þess sér staktjóla- blað. Arg. kostar aðeins kr. 1,20. Utg.: Aðalbjörn Stefánsson og Sigarj. Jónsson. SKINFAXI, 16 síður á mánuði. Flytur myndir. Verð 2 krónur. Gefur skilvís- um kaupendum „Þjóðfélagsfræði“, eft- ir Einar Arnórsson prófessor. Ritstjóri Jónas Jónasson frá Hriflu. Utgefandi og ábyrgðarmaður: Jón Helgason prentnri, Félagsprentamiðjan.

x

Heimilisblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.