Heimilisblaðið - 01.12.1914, Side 10
96
HEIMILISBLAÐIÐ
auga á engan. Yarir öldungsins bærðust, eins
og hann vildi svara, og hún heyrði hann segja
á máli landsmanna sinna: „Ekki það, herra.
Því að hvenær varst þú hungraður og þyrstur,
og eg gæfi þér mat og drykk? Og hvenær
varst þú ókunnur og eg vísaði þér veg? Eða
varstu nokkurntíma nakinn og eg klæddi þig
mínum klæðum? Varst þú nokkurntíma sjúkur,
og eg læknaði þig eða i fangelsi, og eg kæmi
til þín? Eg hefi leitað þín í þrjátíu og þrjú ár
lierra, en mér auðnaðist aldrei að sjá ásjónu
þína, og aldrei verið þjónn þinn, konungur
minn ?“
Hann hætti snögglega. Þá heyrðist röddin
aftur í fjarska, en nú gat mærin greint orða-
skil: „Sannlega segi eg yður: Það sem þér
hafið gert einum minum minstu bræðra, það
hafið þér gert mér.“
„Það varð snögglega bjart yfir andliti Arta-
bans, og það lýsti af því ljómandi birta, eins
og þegar fyrstu árdegisgeislar sólar lýsa upp
snæþakinn tjallatind.
Hann hafði runnið skeiðið á enda. Dýrgrip-
unum hans þremur hafði verið veitt móttaka.
Fjórði vitringurinn úr Austurlöndum bafði
náð fundi konungsins.
Þorst. Þ. Thorlacius
þýddi.
ikuggsja.
Allar danskar símalínur eru samtals o:
315,000 kílómetrar. Símasamtöl innanrikisins
eru talin að nema 150 miljónum.
Utfluttar nauðsynjavörur til Rússlands eru
um 896 milj. kr. Aðeins te er tlutt inn fyrir
150 milj. kr.
Tuttugu stórar verksmiðjur í Frakklandi
hafa einkarétt til þess að framleiða alt tóbak
landsins, og ríkið hefir nákvæmt eftirlit með
smásölunni af tóbaki. Sérréttindi til þess að
verzla með tóbak hafa hershöfðingja-ekkjur,
okkjur embættismanna ríkisins og umboðsmanna
þess. — Það er því ekki ólíklegt að fjölgað
geti tóhaksverzlunum núna eftir stríðið. —
íkríiluF.
Hinrik: Voruð það ekki þér, sem gáfuð
mér utanundir.
Hansen: því miður, herra minn, var það
ekki.
Kaupandinn: Úrið. sem eg keypti hjá
yður í gærdag er svikið. Það stansaði eftir að
hafa gengið í 20 tíma.
„Ursmiðurinn: O, blessaðir verið þér.
reynið þér bara sjálfur að ganga í tuttugu
ldukkutíma og vitið svo, hvort þér verðið ekki
uppgefinn.
Ferðamaður: kemur inn á veitingasal og
fær sér keypt kaffi og jólaköku með. Þegar
hann er að borða jólakökuna, verður hann var
við dauðar flugur í henni, og kallar á veitinga-
manninn og klagar þetta fyrir honum.
„Það getur vel verið að eitthvað sé af flug-
um í jólakökunni“. segir veitingamaðurinn“, en
meira hlýtur þó að vera af rúsinum.
Ctóð jólag'jöf handa börnum er barnabók-
in „FANNEY“. — Munið það. — Hún fæst
hjá öllum bóksölum.
Bariiablaðið „Æskan“ kemur út í Reykja-
vík mánaðarlega, 12 blöð á ári, og auk þess
sérstakt jólablað. Árg. kostar aðeins kr. 1,20.
Útg.: Aðalbjörn Stefánsson og Sigurj. Jónsson.
SKINFAXI, 16 síður á mánnuði. Flytur
myndir. Verð 2 krónur. Gofur skilvís-
um kaupendum „Þjóðfélagsfræði“, ettir
Einar Arnórsson prófessor. Ritstjóri: Jónas
Jónsson frá Hriflu.
Utgetándi og ábyrgðarmaður:
Jón Hdtjuson prentari.
Fálagsprentsmiðjan.