Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.01.1915, Side 5

Heimilisblaðið - 01.01.1915, Side 5
HEIMILISBL AÐIÐ 3 T^Ejasfs EFi^F-Er^bt=i=ids^Eia: Wm Prosðurnir. Eftir gg Rider Haggard. EÉÍIíÉÉí í tilliti til nýrra kaupenda birtnm vér liér úldrátt ur því sem komið er af sögunni. (Brœðurnir, Godvin og Wulf eru bróðursynir enska aðalsmannsins Andrews d’Arcy. Faðir þeirra féll sem nddari krossins, fyrir Múhamedstrúarmönnum. Andrew d’Arcy tók einnig á yngri árum þátt í einni krossferð- mni, og var hertekinn, en meðan hann dvaldi í Sýr- landi sem herfangi, vann hann ást Zobeide systur Sala- dins soldáns, og flúði með hana. Þau komust bæði til Englands og giftust þar og eignuðust eina dóttir, Rósa- inundu. Saladin soldán sér þessa systurdóttur sína í draumi hjarga mörgum þúsundum manna frá sverðs- ■eggjum hans, og fær hugboð um, að gæfa ríkisins standi á henni. Hann sendir því skip til Englands til þess að sækja hana, og hittist þá svo á, að þegar sendi- Jnenn hans Jenda bát við „Víkina dauðu“, er Rósa- niunda þar fyrir með frændum sínum). [Frh.] Wulf varð nú gripinn af sama guSmóSi og bróðir hans og sagði með ákafa: „Veri himininn og þessi göfuga kona vitni niitt11, og hann leit á Rósamundu er horfði á þá hljóð og hugsandi. „Farðu bróðir þegar þú vilt og eg skal fylgja þér. Eins og fæðing okk- ar bar að á sömu stundu, skal dauða okkar, ef Unt er, á sömu stundu að bera. Ekkert skal nðskilja okkur!“ Og hann greip fast um meðal- kafla sverðsins er hann lék sér að, og dróg það úr slíðrum og kastaði því upp í loftið, svo sólargeisiarnir glömpuðu af því sem elding eitt augnablik. Hann greip það á lofti og endurtók garnla herópið er hljómað hafði yfir svo marg- an orustuvöll: „Mætið d’Arcy! Mætið dauðan- Uln!“ Svo slíðraði hann sverð sitt og bætti við 1 lægri róm, eins og hann blygðaðist æðis síns: >Aið erum ekki börn er kjósum að berjast þar fem enginn óvinui' er, en bróðir minn, óvinirn- Ir geta þegar minst varir staðið andspænis okk- Ul' Bi'óðirinn brosti lítið eitt en Rósamunda tók til niáls: „Á þann bátt mun burtför ykkar eia að, kæru frændur mínir, og máske komið P' aldrei aftur. Það mun aðskilja okkur“, bætti hún við í óstyrkum róm. „Það er oftast hlutskifti kvenmanna að vera einmana og yfir- gefnar, því menn sem þið, elska sverðið öllu öðru fremur, enda mundi eg ekki virða ykkur mikils væri ykkur öðruvísi varið. En —óWulf! Það sló svo rauðum bjarma á sverðið þitt áðan að eg er hrædd, án þess að vita við hvað. — En það er satt, við verðum að fara að flýta okkur; það er full hálf önnur míla heim og dimman fer í hönd, en eigum við ekki að krjúpa fyrst á þessum helga stað sem frá alda öðli hefir verið helgaður dýrðlingum kirkju vorr- ar, St. Pétri og St. Shad, og biðja guð verndar á heimleiðinni ?“ „Á heimleiðinni ?“ sagðiWulf ákafur. „Hvað ætti að óttast þenna spotta meðfram Blackvates- ströndinni?“ „Á heimleiðinni“. sagði eg, Wult, en heimili okkar er ekki í Steaple-höll heldur þarna uppi“, og hún benti á himininn bjartan og purpuralitan af kveldroða. „Við skulum þá koma," sagði Godvin „og ganga inn i gamla helgidóminn, þaðan hafa svo margir ferðast heim. Margir riddarar hinna horfnu tíma og ýmsir aðrir báðust hér fyrir í hinsta sinni, með- an hér var bænahús.“ Þau gengu því næst inn í gamla bænahús- ið, er hafði verið eitt af þeim fyrstu er bygt var á Bretlandi hinu mikla. Það var bygt úr óhöggnu grjóti, og sögðu múnnmælin að það hefði að nokkru leyti verið bygt af dýrðlingnum Shad með eigin hendi. Þau krupu við altarið og báðust fyrir, stóðu síðan upp og gengu til hesta sinna er stóðu bundnir skamt þaðan. Það var um tvo vegi að velja, eða öllu heldur þröng einstigi heim að Steaple-höll. Annar lá yfir sveitina og gegn um Bradwell-þorp, en sá var skemri er lá meðfram sandbleytu feni við mjóa sjávarvik er kallaðist „Vikindauða“, en frá botni víkurinnar lá vegurinn svo beint inn í landið, með Stangate-klaustrið á hægri hlið. Þau völdu skemri veginn er var góður með lág-sjávuðu, sem ekki var hægt að segja um sveitarveginn þó um hásumar væri. Þau vildu líka vera komin heim fyrir kvöldverð, svo gamli riddarinn d’Arcy, faðir Rósamundu og föðurbróðir bræðranna, skyldi ekki verða hrædd- ur um þau og máske fara að leita að þeim. Þau riðu nú hér um hil hálfa stund með-

x

Heimilisblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.