Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.01.1915, Síða 8

Heimilisblaðið - 01.01.1915, Síða 8
6 HEIMILISBLAÐIÐ ■og það enda svo, aS móðir mín fór að hafa orð á ])ví, hvað Onnu litlu væri að fara fram til skapsmunanna. En Anna lét mig aldrei í friði. Hún var sí og æ aö biðja mig um að fara nú að svara honum Kára. Eg kom því að máli við þau Jón og Þóru, og sagði þeim, að nú yrðu þau að segja Önnu satt og rétt frá öllu; þau lofuðu því, og einn góðan veðurdag kallaði Þóra á hana útí heyhlöðu. „Ileyrðu, Anna“, sagði hún, „þú mátt ekki reiðast mér, en — en —“ „En hvað, — hvern fj .. . ertu að þvæla —“ Anna var ekkert mjúk í máli þessa stundina. ^Vertu róleg“, hélt Þóra áfram, — það var bréfið, þú veist — eg ætlaði að segja þér — þetta var bara spaug, Anna min; það var frá mér og honum Jóni.“ P'yrst starði hún steinþegjandi á Þóru, svo rak hún upp hátt hljóð, og reiddi hnefann til höggs, Þóra hröklaðist undan, og hófst nú all- snörp viðureign í hlöðunni. Loks settist Anna á heymeis, grúfði andlitið í höndum sér og hágrét. Þóra laumaðist út og var furðu alvarleg þegar hún fór að segja mér frá samtali þeirra Önnu. Eg sáriðraðist eftir, að hafa skrifað bréfið. Atti eg að vera að leiða inn í hug aumingjans myndir og vonir. sem voru ekki annað en tál? Hún hafði i einfeldni sinni fest trúnað á fram- tíðardrauma þá, er hún bygði á bréfinu, sem allir heilvita menn gátu séð að var markleysa ein. En Önnu var ekki gefið að sjá það. Hún sá þar á móti rofa í lofti fyrir einhverri til- breytingu frá daglegu stritverkunum og slitinu, — hún sá vonarbjarma sem virtist lýsa og verma hugskot hennar — en svo komu von- hrygðin, sár eins og ávalt, engu síður henni heldur en öðrum— og eg hét því þá að eg skyldi nldrei fylla þann flokkinn, sem leggur það í vana sinn að særa aumingja. (j. ^ Enginn umber hetur last en sá sem á mest lof skilið. Kærleikurinn er bjartsýnn. lánaðanöfnin. Janúar er nefndur þannig eftir rómverska guðinum Janus, sem er táknaður með tveim andlitum; annað snýr að framtíðinni en hitt að fortíðinni; eða seinna meir eftir latneska orðinu janua — er þýðir hurð — af því mánuöurinn er hurðin eða inngangurinn inn í nýja árið. Febrúar, er komið af latneska orðinu fe- bruare, — að hreinsa — því það var siður hjá Rómverjum að halda hreinsunar- og betr- unarhátíð dagana 18,—28. febrúar, sem voru síðustu dagar ársins hjá þeim. Mars er nefndur eftir stríðsguðinum Mars, og var fyrsti mánuöurinn hjá Rómverjum. Apríl er komið af aperire latneska orðið sem þýðir: að opna, því þá byrjaði alt að vaxa. Mai er nefndur eftir móður Merkúriusar, er hét Maja. Júní er nefndur eftir gyðjunni Juno. Júlí heitir í höfuðið á rómverska keisaranum Julius Gœsar, Agúst. Sá mánuður hét upphaflega Sextilis en seinna var hann nefndur eftir Agústus keisara. September. Þetta nafn er komiö afseptem (7) af því að mánuðurinn var sá sjöundi í ári Rómverja. Október er komið af octo (8), og var hann áttundi mánuðurinn hjá Rómverjum. Nóvember er komið af novem (9), því að hann var níundi mánuðurinn hjá Rómverjum. Desember, kemur af decem (10) og var hann tíundi mánuðurinn hjá Rómverjum. E. P. Br. þýddi. Jólakveðju hafa dönsk sunnudagaskólabörn sent íslensk- um börnum, nú um nokkur ár, og er hún í þetta sinn búin undir prentun af hr. cand. theol. S. Á. Gislasyni. Ritið flytur islenskum börnum hugð- næmar jólaóskir ýmsra vina suður í Danmörku, smásögur og fl., og er, sem að undanförnu, skreytt góðum myndum.

x

Heimilisblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.