Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.05.1915, Blaðsíða 1

Heimilisblaðið - 01.05.1915, Blaðsíða 1
,Iig langar að íljúga1. Mig langar að fljúga, eitthvað langt út í geim, mér leiðist á þessum slóðum; eg heyri hér engan unaðshreim á ísnum hjá kulnuðum glóðum. ín alt af þrái eg yl og sól og indœla vorsins hljóma, er segja frá ást, er aldrei kól og eilífum dýrðar-ljóma. Mig langar — mig langar að hefja mig liátt frá heimsku og slysum og tárum. Drottinn minn góði, ó gef mér þann mátt að geta á Ijósvakans bárum svifið til landa þar sólin ce skín og sannleikans Ijóshaflð bjarta, og þar sem að altaf ncer ylur til mín frá eilifa kcerleikans-hjarta. Sulitttt. itríðið og trúarbrögðin. Eftir Gudmund Hjaltason. VI. Land vort er ncer því eina friðarlandið á jörðunni. MikiS megum við íslendingar þakka Guði að hafa fengið að lifa í friði i mörg hundruð ár. Og það eins á þessum miklu ófriðartímum. Já, mikið er oss þar lánað. En mikið er líka af oss heimtað. Heimtað að vér séum þeim mun betri öðrum þjóðum sem vér höfum not- ið meiri friðar! En erum vér nú öðrum þjóð- um betri? Hefir friðurinn gert oss friðsamari og yfirleitt mannelskuríkari en aðrar þjóðir? Ef friðarvinirnir útlendu fara að heim- sækja oss og leita hjá oss að þessum ávöxtum friðarins, til þess að sýna þá ófriðarvinunum, ætli þeir gætu þá sagt: „Sjáið nú, hvað friður- inn gerir mennina góða! Hvergi er svipað því eins mikil samúð og mannelska eins og á Is- landi ?“ Eða þá að hernaðarvinirnir kæmu hingað til að skoða dýrðina i friðar Eden vorri. — En niðurstaðan af skoðun þeirri yrði þessi: „Hvergi svipað því eins mikil sundrung og eigingirni eins og á íslandi; — en samt enginn hermenskuandi. Ekki batnar mannkynið þótt bardagarnir hætti. Það þolir ekki tómann frið; þetta sjáum vér á Is- lendingum, sem þó að upplagi eru myndarþjóð.“ Eg var í Noregi, þegar öll þjóðin logaði af vígahug 1905. Eg var í Danmörku, þegar mikil stríð máttu heita ný afstaðin, og allmikið var þá haldið uppá hermensku. Vóru menn nú ófriðsamari, harðgerðari og mannelskusnauðari þá í þessum löndum en hér? Nei, nei, nei! En vér œttum að geta skarað langt fram úr öllum liernaðarþjóðum í mannelskunni. En það gerum vér ekki ennþá, og þetta er vor ábyrgðarhluti. Vér erum þjóða minstir. En samt er það og verður köllun vor, að sýna heiminum hina góðu ávexti varanlegs friðar. — Ef vér gerum það, þá hjálpum vér mikið til að efla friðinn á jörðinni. VII. „Allir erum vér réttlátiru! Þýzkir kirkju- og kristindómsfulltrúar, prest-

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.