Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.09.1915, Side 8

Heimilisblaðið - 01.09.1915, Side 8
72 HEIMILISBLAÐIÐ Hjón nokkur, sem sjaldan unnu i félagi sam- an, höfðu lítinn akur hjá húsi sinu, og án þess aS ráðfæra sig hvort við annað, sáðu þau í hann Spinat o. fl. jnrtum. Þegar plönturnar eftir nokkurn tíma fóru að koma í ljós, hélt maðurinn að það væri illgresi, og reitti það vandlega burt. A sama hátt bar konan sig að En hvorugt ráðfærði sig við annað. Og að síð- ustu voru engar ræktaðar jurtir til i akrinum. En illgresið óx og þroskaðist. „Það er óhugsandi, að nokkur maður sé svo heimskur að haga sér þannig", segir þú máske kæri lesari. En þessu er einmitt svo varið. Það eru margir smá akrar til, sem ekki eru betur hirtir, en veist þú hverjir þeir eru? Það eru hin smáu barnshjörtu. Þegar faðir og móðir sá ólíku sæði í hjörtu þeirra, og uppræta jafnharðan það, sem hitt sáði, þá fær illgresið leyfi til að festa rætur, uns það hylur allan akurinn. Ef nokkuð er til, sem hverjir foreldrar ættu að starfa að í sameiningu, þá er það, að sá góðu sæði í hinn dýrmætasta akur sem þeim er trúað fyrir, barns- hjartað. Og með því að vinna samhuga að því að hirða vel þessar ungu, veiku plöntur, með hönd í hönd, er hægt að framleiða hin fegustu blómstur, og nytsama ávexti. Þýtt. Ikuggsjá. Hið fyrsta silki á að hafa verið spunnið '2600 árum fyrir Krists burð af kinverskri keis- arafrú. 350 árum fyrir Krist, talar Aristoteles um silki hjá Grikkjum. Silkivefnaður byrjaði fyrst að ráði í Evrópu á 12. öld, var það á Sikiley, þaðan barst hann til Italíu, Spánar og Suður-Frakklands. Fyrsta hljóðfærið, sem sögur fara af er bumban. Ikritlur. Jóhanna litla (sem i fyrsta skifti sér mann með tréfót): Nei sko mamma, þessi maður hefir þá göngustaf í staðin fyrir fót. Mamma: Láttu ekki manninn heyra þetta Jóhanna litla. Jóhanna: Á, veit hann það ekki sjálfur? J ó n : Þú vilt fá lánaða hjá mér peninga. Hefirðu veð að setja mér? Bjarni: Orð heiðursmanns. J ó n: Jæja farðu þá og sæktu manninn. Hjálmar litli: Stækka gleraugun þín amma ? Amma hans: Já, vinur minn. Hjálmar: Ó, góða amma mín, taktu þau þá af þér meðan þá skerð brauðsneiðina mina. FANNEY, barnabók með myndum, 5 hefti alls, kostar 50 aura hvert. Ágæt barnabók. Fæst hjá öllum bóksölum. Barnablaðið „Æskan“ kemur út í Reykja- vík mánaðarlega, 12 blöð á ári, og auk þess sérstakt jólablað. Árg. kostar aðeins kr. 1,20. Utg.: Aðáíbjörn Stefávsson og Sigurj. Jónsson. Dýra verndarinn kemur út í Reykja- vík fjórum sinnum á ári í 16 blaða broti. Kost- ar 50 aura árgangurinn en 15 aura í lausasölu. Utgefandi Dýraverndunarfélag Islands. Fæst hjá Jóh. Ogm. Oddssyni kaupmanni Laugeveg 63. Kaupið málgagn munaðarleysingjanna! SKINFAXI, 16 síður á mánnuði. Flytur myndir. Verð 2 krónur. Gefur skilvis- um kaupendum „Þjóðfélagsfræði“, eftir Einar Arnórsson prófessor. Ritstjóri: Jónas Jónsson frá Hriflu. Utgefaudi og ábyrgðarmaður: Jón Helgason prentari. Félagsprentsmiðjan.

x

Heimilisblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.