Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.11.1915, Blaðsíða 5

Heimilisblaðið - 01.11.1915, Blaðsíða 5
HEIMILISBLAÐIÐ 83 ! r œ ð u r n i r, | d^ÍE^Éfi] Rider Haggard. [aM^^faS Eftir [Frl>.] Áður en ár er liðiS frá þeim degi er ég tek móti svari systurdóttur minnar er kall- ast rós heimsins, munu sendimenn mínir gera vart við sig, hvar sem hún svo verður, gift eða ógift, til þess að færa mér hana, með mik- illi viðhöfn sé hún fús að koma, aniiars með valdi sé hún treg. Sem vott um ást mína, sendi ég henni nokkrar dýrmætar gjafir, ásamt útnefningu hennar sem prinsessu og stjórnanda borgarinnar Baalbec og er titill sá, ásamt tekj- um og réttindum sem honum fylgja, skráð í skjalasafni keisaradæmis míns til hagsmuna hennar og réttborinna erfingja hennar, og við- urkent að vera bindandi fyrir mig og eftirmenn mína til eilífðar. Sendimaður sá er færir þér þelta bréf og gjafir er kristinn maður, Nikulás að nafni, og getur þú afhent honum svarið, því hann hefir unnið þess eið að leysa þetta af hendi, enda mun hann gera það, því honum er það full- kunnugt, að geri hann það ekki, hlýtur hann að deyja. Undirritað í Damaskus af Saladín, stjórnanda hinna trúuðu, og innsiglað með innsigli hans vorið 851 eftir múhameðönsku tímatali. Veittu því einnig athygli, að eftir það að ritari minn hefir lesið bréfið upp fyrir mér, áð- ur en ég ritaði nafn mitt undir það og innsigl- aði, varð mér það Ijóst, að þér, Sir Andrew, -eða þér „rós heimsins“ þætti það undarlegt, að óg legði svo mikið kapp á að ná í konu, sem •ekki hefir sömu trú og ég, og sem ég hefi al- •diei séð, og getur því efast um tilgang minn í þessu efni. Ég ætla því að skýra frá ástæðum •minum í fám orðum. Eftir að ég hafði heyrt talað um þig, „kvenlega rós“ heimsins hefir Guð látið mig þrisvar dreyma drauma þér viðvíkj- •andi. Draumurinn er á þá leið, að eiður sá er ég £ór, viðvíkjandi móður þinni, sé einnig bindandi gagnvart þér; auk þess muni nærvera þín, á einn eða annan hátt, sem enn er mér hulið, hindra mig í því að úthella blóði fjölda manna og þar af leiðandi afstýra mikilli eymd og hörmungum. Þess vegna hefi ég fastákveðið að þú skulir koma og búa í húsi minu. Að þetta sé satt, sver ég við Allah og spámenn hans. V. KAP. Vínsalinn. Godvin lagði frá sér bréfið, og þau störðu hvort á annað undrandi. „Vissulega“, sagði Wulf, „er þetta tilraun einhvers þorpara að gabba frænda.“ Án þess að svara bað Sir Andrew hann um að lyfta silkislæðunni er huldi innihald skríns- ins, og gæta að hvað í því væri; hann gerði það, en hrökk svo aftur á bak, eins og sá, er skært Ijós leiftrar framan í, enda gat það átt sér stað, því i skríninu lágu fagrir gimsteinar, er geislar stöfuðu af í allar áttir, svo fagrir, að hann hafði aldrei séð neitt slíkt. Þeir glóðu með öllum regnbogans Iitum, en innan um gat að líta gull og dýrmælar perlur. „0, hve fagurt, hve fagurt!“ hrópaði Hósa- munda. „Já“, svaraði Godvin, „heppilegt til að tæla konu, svo hún þekki ekki rétt frá röngu“. Wulf sagði ekki neitt en tók upp úr skrín.- inu hvern hlutinn eftir annan: kórónu, slæður, hálsmen úr perlum og annað alsett demöntum, belti sett safírsteinum, og nælur skreyttar rúbín- steinum; þar að auki ilskó, kjóla og annað skart, allt úr purpuralitu silki, gullsaumuðu. Innan i öllu þessu lá skjal það, er bréf Sala- díns hafði minst á, viðvikjandi prinsessutign hennar, skrá yfir þar með fylgjandi eignir og árlegar tekjur hennar, er var stærri peninga- upphæð en þau höfðu nokkurntima heyrt talað um. Skjal þetta var innsiglað með innsiglum soldáns, stórvesírsins og ritarans. „Mér skjátlaðíst", sagði Wulf, „jafnvel sol- dán Austurlanda mundi ekki leyfa sér jafndýrt spaug“. „Spaug?“ ansaði Sir Andrew. Það er ekk-

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.