Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.12.1915, Page 10

Heimilisblaðið - 01.12.1915, Page 10
94 HEIMILISBLAÐID Matthías sháld Jochumsson varð áttræð- ur 11. nóvember og var þá mildð um dýrðir, sér- staklega á Akureyri, þar seni skáldið dvelur. Var honum þar haldið samsæti og heillaóska- símskeytum hafði rigut yfir „skáldið af Guðs náð“. Það stóð til samtímis að afhjúpa stand- mynd afMatthíasi, sem Akureyringar höfðu lát- ið Ríkarð myndhöggvara Jónsson móta i leir, þegar skáldið var hér syðra i vor. En myndin þurfti auðvitað að leggja krók á hala sinn til Kaup- mannahafnarogsat þar á áttræðisafmæli skáldsins. Arthur litli: „Mig langar til að fá 1 pd af stöngulberjum." Ávaxtasalinn: Stöngulber eru ekki seld eftir vikt, heldur eftir máli.“ Arthur litii: „Þá ætla eg að fá 1 meter af stöngulberjum.“ þess, að allir, sem unna blaðinu fagni þvi, að það „færir út kvíarnar“ til fullkomnunar og fjölbreytni, enda þótt þá um leið sé auðvitað óhjákvæmilegt að hækka verðið. En fáir munu láta sig muna um 1 krónu á ári, eða sem næst 8 aurum á mánuði. Þegar tillit er tekið til þess, hvað vandað er að öllum frágangi blaðsins, og hve alt, sem að blaðaútgáfu lítur, er nú dýrara en áður, sökum stríðins, er Heimilisblaðið ódýrasta blaðið, sem út er gefið í landinu. Stefna blaðsins og innihald verður sama og verið hefir, nema fjölbreyttara. En framvegis verður blaðið þá 16 síður myndum skreytt og kostar 2 krónur árgangurinn. Ég óska svo öllum velunnurum blaðsins gleðilegra jóla og heilla og hamingju á því ári, sem í hönd fer og þakka hjartanlega sýnda velvild á liðna árinu. Reykjavik 6. deseraber lí)15. Jón Helgason. Helmlllsblaðið 1916. í nóvemberblaðinu gat ég þess, að fram- vegis mundi Heimilisblaðið flytja myndir. En þá ekki gert ráð fyrir að blaðið stækkaði og verðið þar af leiðandi breyttist. Við nánari íhuggun hefi ég komist að þeirri niðurstöðu, að breyta nú til og stækka blaðið þannig, að út komi 16 síður á mánuði í stað 8 nú og verðið hækkar upp í 2 krónur árgangurinn. Ég hefi komist í gott samband erlendis með myndir, en get sáralítið notað mér þau sambönd, ef blaðið er aðeins 8 síður. Það hefir og hvatt mig til að gera þessa breytingu, að ýmsir styrktarmenn blaðsins út um land hafa látið í ljós þá ósk, að blaðið stækkaði og flytti myndir. Og þó ég hafi ekki getað borið þessa breytingu undir álit kaupend- anna, sem eg helzt hefði óskað, þá vænti ég „Dýraverndarinn" talar máli dýranna. Kemur _út 4 sinnum á ári, 16 siður í hvert sinn. Árg. kostar 50 aura. Er með myndum. Gerist kaupendur í dag. Afgreiðsla hjá Jóh. Ögm. Oddssyni Laugaveg 63. FAJíNET, barnabók með myndum, 5hefti alls, kostar50a. hvert. Ágæt barnabók. Fæst hjá öllum bóksölum. Barnablaðið „Æskan“ kemur út i Reykja- vík mánaðarlega, 12 blöð á ári, og auk þess sérstakt jólablað. Árg. kostar aðeins kr. 1,20. Utg.: Aðalbjörn Stefáusson og Sigurj. Jónsson. SKINFAXI, 16 síður á mánnuði. Flytur myndir. Verð 2 krónur. Gefur skilvis- um kaupendum „Þjóðfélagsfræði“, eftir Einar Arnórsson prófessor. Ritstjóri: Jónas Jónsson frá Hriflu. Útgefandi og ábyrgðarmaður: Jón Helgaaon prentari. FélagsprentBmifijan.

x

Heimilisblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.