Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.05.1916, Blaðsíða 7

Heimilisblaðið - 01.05.1916, Blaðsíða 7
HEIMILISBLAÐIÐ 71 ^faT=E^E^3ETSEf3E^gfa=T=jt=T=A=T=gFl5f5gTSt=f5:Ef3t= ] 1 S r œ ð u r n i r. Eftir ii^V3EfEEir5i Rider Haggard. [Frh.] Tæpum tíu nu'nútum síðar kastaði bálið óvið- felldum bjarma yfir þakið á Steaple kirkju, og gerði öllum nágrönnum aðvart að aðstoðar þeirra væri þörf. Svo vopnuðu sig allir vopn- færir menn á Steaple, söðluðu alla þá hesta er þeir höfðu og þar á meðal þá þrjá er kaup- maðurinn Georgios hafði skilið eftir,. og allir sem gátu, fyrir timburmönnum og öðrum drykkju- eflirköstum, söfnuðust saman í garðinum. En flýtir þeirra gagnaði ekki neitt, því nú var tungl- ið gengið undir, og nóttin svo niðdimm að varla sást handaskil og þar á ofan féll snjórinn með ákafa. Menn urðu því að bíða birtunnar, full- ir sorgar og gremju, og böðuðu brennheit enn- in með snjó og is. Loks Ijómaði dagur, og við hina fyrstu skímu sást fjöldi fólks ríðandi og gangandi brjótast áfram gegnum snjóinn. Menn hrópuðu bver til annars til þess að fá fregnir af hinum hræði- lega atburði er gerst hafði á Steaple. Það barst brátt mann frá manni fregnin um það, að Sir Andrew hafði verið drepinn af •heiðingjum er rænt hefðu Rósamundu, meðan allir sem tekið höfðu þátt í veislunni hefðu legið meðvitundarlausir af svæfandi víni, er maður æinn í kaupmannsgerfi hafði veitt þeim. Óðar en leitarbjart var orðið lögðu hér um bil 30 manns af stað, þó enginn vissi hvert halda skyldi, því fent hafði í spor óvinanna. „Eitt er víst“, sagði Godvin „að sjóleiðina bafa þeir komið“. „Já, og lent hér í nánd“, ansaði Wulf. „Því hefðu þeir þurft langt að ganga hefðu þeir tekið hestana með sér, og sömuleiðis átt á liættu að villast í dimmunni. Niður að lendingunni! Við skulum athuga lendinguna hjá Steaple!“ Þeir riðu síðan þvert yfir akrana niður að vikinni er lá þar skamt frá. Fyrst gátu þeir ekkert fundið athugavert, því landgöngubryggjan var þakin snjó, en alt í einu kom maður með' þá fregn, að búið væri að brjóta upp skrána á búsi því er bræðurnir geymdu bátinn sinn í, og búið væri að taka bátinn“. „Hann var alt of lítill, hann rúmaði ekki nema sex menn“, hrópaði þá einhver. „Svo stór hópur gat ekki haft rúm í honum“. „Heimskinginn þinn“, svaraði enn annar, „þeir gátu- haft fleiri báta“. Þeir rannsökuðu nú jarðveginn á ný og fundu þá undir hríminu rák eftir framstefni á bát, og skamt frá holu eftir hæl, sem hann hafði verið bundinn við, það virtistþví augljóst hvert þau hefðu haldið, en svo fundu þeir nokkuð, sem tók af allan efa. Wulf sá í dimmunni eitthvað glitra í snjónum, og tók einn leitar- mannanna það upp og rétti honum. „Þetta sýndist mér“, sagði Wulf með djúpri rödd. „Það er bútur af gullsaumuðu slæðunni sem eg gaf Rósamundu i jólagjöf. Hún hefir rifið það af og skilið það hér eftir til þess að vísa okkur leið. Höldum til altaris St. Péturs! Til St. Péturs — — segi eg, þar hlýtur bátur- inn eða skipið að fara framhjá. og verið getur, að þeir séu ekki komnir út á rúmsjó vegna dimmunnar.11 Þeir snéru svo við og þeir sem voru ríðandi riðu gegnum Steaple, St. Lawrence og Brad- well en þeir sem voru fótgangandi rannsökuðu strandlengjuna og fjöruna. Riddaraskarinn með Godvin og Wulf í broddi fylkingar jókst óðum‘ því allir er sjeð höfðu bálið á Sleaple kirkju eða heyrt fregnina af munni sendimanna, komu, og voru þar saman komnir riddarar, skjaldsveinar og bændur, já, jafnvel munkarnir í Stangate klaustri og kaupmenn frá Southminster slóust i förina. Þeir riðu svo hratt sem hægt var, en það var seinfarið vegna fannfergjunnar og vegurinn langur. Það var því liðin heil stund er þeir höfðu Bradwell að baki sér og þó var hálf míla enn til altaris St. Péturs. Það hætti nú alt í einu að fenna, en veður tók að hvessa af norðri og greiddi þá dálítið úr þokunni. Þeir flýttu nú ferðinni eftir föngum uns þeir komu að gamla turninum, þar stönsuðu þeir og stigu af hest- um sínum og biðu þess að birti til.

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.