Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.05.1916, Blaðsíða 11

Heimilisblaðið - 01.05.1916, Blaðsíða 11
HEIMILISBLAÐIÐ 75 „Vegna þess“ , svaraðikaupmaðurinn og horfði á þá rannsakandi, það flestir menn hafi mætur á lifi sínu, en þessi maður er höfðingi töfranna og dauðans. Marga undarlega hluti er að sjá í höll hans, og umhverfis hana eru óviðjafnan- lega fagrir skemtigarðar, og byggja þá, fagrar konur, sem eru illir andar er steypa sálurn manna í glötun. Gamli maðurinn í fjöllunum er líka svo voldugur og mikill morðingi, að allir höfðingjar Austurlanda óttast hann, því segi hann aðeins eitt orð við Fadija eða böðla sína, er hann laus við hvern sem hann hatar. Ungu menn, mér líst vel á yður og aðvara yður því. Hér á Sýrlandi sér maður rnargt óvanalegt, en forðist það sem fram fer í Masyaf ef þið óskið eftir að sjá aftur æskustöðvar ykkar“. „Ottist ekki“, svaraði Godvin. „Við komum hingað til þess að heimsækja hina heilögu staði en e«ki til þess að verða illir andar“. „En“, hætti Wulf við, „þó er þetta land þess vert, að heimsækja það“. Það komu nú bátar frá landi til þess að bjóða þá velkomna, því Beirut var á þeim tíma i höndum Frakka, og í hávaðanum og þrönginni mistu þeir sjónir af Tómasi kaupmanni, enda leituðu þeir ekki að honurn, því þeir töldu það óheppilegt að vera altof forvitnir eftir upplýsing- um um Sheik Al-é-bal. Það hefði líka verið árangurslaust að leita að honum, því kaupmað- urinn hafði lagt frá skipinu tveim stundum áður en þeir fengu leyfi til að yfirgefa skipið, því haun hafði leynst burt aleinn í sérstökum bát. Loks stóðu þeir nú í hinum margbreytilega fjölda austurlandahúa á bryggjunni, og voru að hugsa um, hvar þeir gætu fengið rólegt gistihús fyrir sanngjarnt ’verð, því þeir vildu ógjarnan vera skoðaðir sem menn af háum stigum. Þar sem þeir voru á reiki kom til þeirra há kona, með blæju fyrir andliti, og höfðu þeir áður veitt því eftirtekt að hún veitti þeim athygli mikla. Henni fylgdi eftir maður með asna í togi. Þessi maður greip umsvifalaust farangur þeirra, og með aðstoð þeirra er stóðu umhverfis, batt hann það .á asnann i skyndi. Þegar þeir ætluðu að banna honum það benti hann á konuna með blæjunni er stóð þar hjá. „Fyrirgefið“ — sagði Godvin loks á frönsku „en þessi rnaður —“. „Flytur farangur yðar til gistihúss míns. Það er ódýrt, þægilegt og rólegt, einmitt það sem ég heyrði yður óska eftir rétt áðan, eða skjátlast mér?“ svaraði hún á ágætri frönsku með að- laðandi rödd. Þeir litn hvor framan í annan, og þeir báru ráð sín saman um það hvað gera skyldi. Þeim kom saman um að varasamt gæti verið, svona umsvifalaust, að gefa sig á vald ókunnrar konu, en þegar þeir gættu að, var maðurinn með asnann farinn af stað. „Eg er hrædd um að það sé nú em seinan að segja nei“, sagði hún hlæjandi, „svo að þér verðið fyrst um sinn að láta yður lyndaað búa hjá mér, ef þér viljið ekki missa farangur yðar. Komið, eltir svo langa ferð hafið þér þörf fyrir bað og eilthvað að éta. Fylgið mér herrar mínir“. Hún gekk síðan gegnum mannfjöldann er vék úr vegi fyrir henni, að súlu einni þar skamt frá, er múldýr var bundið við. Hún leysti þuð og hljóp hjálparlaust í söðulinn og reið af stað, en leit öðru hverju aftur til þess að ganga úr skugga um, að hinir tveir ungu menn fylgdust með. „Mér þætti fróðlegt að vita hvert við kom- umst“, sagði Godvin er þeir þrömmuðu gegn- um hinar sendnu götur Beinets í brennandi sól- arhita. „Það er ekki gott að vita, þegar ókunn kona er leiðlogi vor“, svaraði Wulf hlæjandi. Loks reið konan inn um hlið á háum múr- vegg er bygður var af brendum tígulsteini, og stansaði þar við dyrnar á háu húsi. Um- hverfis þ8ð var garður er gróðursett voru í móber-, appelsínu- og önnur ávaxta tré er þeim voru ókunn. Húsið lá i útjaðri borgarinnar. Þar steig konan af baki og fékk múldýrið í hendur núbiskum manni er beið þar. I skjótri svipan brá hún af sér blæjunni, og snéri sér að bræðrunum, eins og til þess að gefa þeim tækifæri til þess að dáðst að fegurð hennar. Og hún var sannarlega fögur með sínar yndislegu.

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.