Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.05.1916, Síða 12

Heimilisblaðið - 01.05.1916, Síða 12
76 HEIMILISBLAÐIÐ mjúku hreyfingar og hin dökku leyftrandi augu og hið einkennilega óbifanlega andlit, erbarvott um viljaþrek og festu. Hún var ung ennþá, máske tuttugu og fimm ára, alls ekki meir, og ljós á hörundslit eftir austurlandabúum að dæma „Mitt fátæklega hús er fyrir kaupmenn og píjagríma, en ekki fyrir hrausta riddara, samt sem áður óska eg yður velkomna herrar minir“, sagði hún hvatlega um Ieið og hún athugaði þá vandlega í laumi. „I ættlandi voru erum við aðeins skjaldsvein- ar, sem förum pílagrímsför“, svaraði Godvin. „Hve mikils krefjist þér um daginn fyrir að fa>ða oss og gott herbergi til þess að sofa í?“ Þessir ókunnu menn segja ekki satt“, sagði hún við burðarmanninn. „Hvað gerir það yður til“ svaraði hann, er hann var að leysa farangurinn. „Þeir munu borga fyrir dvöl sína, og til þessa lands koma alskonar vitfirringar, sem þykjast vera alt annað en þeir eru. Þér leituðuð þeirra sjálf, hvers vegna veit eg ekki“. „Yitfirringur eða ekki, það eru þó efnismenn“, sagði bún eins og við sjálfa sig, siðan bætti hún við á frönsku: „Herrar mínir, eg endurtek það þetta er aðeins óbreytt gistihús, illa samboðið slíkurn riddurum sem yður, en ef þér vijið gjöra mér þann heiður þá er borgunin — svo og svo mikið“. „Við erum ánægðir“, sagði Godvin, „sérstak- lega þar sem vér erum vissir um að þér munið annast oss vel, þar sem þér fóruð með oss hing- að án þess að spyrja um leyfi“. „Svo vel sem óskið eftir, eg meina eftir þvi sem þér getið borgað'1, sagði konan. „Nei látið mig nú semja við essrekann, því hann gæti prettað yður“. Síðan þráttuðu þau í fimm mínútur, hin ein- kennilega, fagra kona með óbifanlega andlitið og essrekinn, sem eftir austurlenskri venju varð öskuvondur yfir borgun þeirri er honum var boðin, og kallaði hana loks ýmsum ónöfn- um. Hún stóð róleg og horfði á hann, en Godvin, sem skildi alt saman, en lét sem hann skildi ekki neitt, undraðist þolinmæði hennar. Loks sagði essrekinn í ofsareiði, og hreytti"út úr sér skömmum: „Það er ekki furða Masonda spæjari, að þú hefir leigt mig til illverka þinna, fylgir þessum kristnu hundum að máli gegn rétttrú- uðum manni, þú Al-é-bals barn!“ „Hver er það?“, spurði hún kuldalega. „Meinar þú höfðingja þann sem drepur?“ og hún leit á hann ógnandi augum. Fyrir þessu nístandi augnaráði virtist öll reiði mannsins hverfa. „Fyrirgefið mér Masonda ekkja“, sagði hann „Eg gleymdi að þér eruð kristin og eruð því þeim fylgjandi. Þessi upphæð er ekki nóg til þess að borga slitið á hófum asnans míns, en látið mig þó fá peningana og lofið mér að fara til pílagrímanna, sem munu borga mér betur“. Hún fékk honum upphæðina og sagði mjög rólega: „Farðu og hafðu betra taumhald á tungu þinni, hafir þú mætur á lífi þínu“. Hann fór og var nú svo auðmjúkur, aðWulf fanst hann líkari tuskuhrúu en manni, þar sem hann sat á baki asnans með óhreinan vefjahött á höfði, og i gauðrifinni kápu. Honum virtist lika að veitingakonan hefði meira vald en almennir gestgjafar heima á Eng- landi. Þegar hún sá hann ríða úl úr hliðinu snéri Masonda sér að þeim og mælti á frönsku „Fyrirgefið mér, en hér í Reinut eru þessir serk- nestu essrekar oft ósvífnir, sérstaklega við oss, sem erum kristnir. Utlit ykkar vilti hann, hann hélt að þið væruð riddarar, en ekki pílagrímar, eins og þið þykist vera, þó að þér séuð vopn- aðir og búnir sem riddarar undir pílagrímskufl- um yðar“. Henni varð nú litið á hvítu rákina á höfði Godvins, þar seni sverðið hafði hitt hann í bardaganum á steinbrúnni við Víkina dauðu, og bætti nú við: „Þér berið líka riddaramerki, þó auðvitað geti hver hlotið slíkt merki í áflog- um á gildaskála. Þér munuð borga mér vel, og skulið því fá mitt bezta herbergi, þar sem yður þóknast að heiðra mig með návist yðar. Ó! farangur yðar. Þér óskið víst ekki að hann liggi svona. Þræll komdu hingað“. Frh.

x

Heimilisblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.