Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.05.1916, Blaðsíða 13

Heimilisblaðið - 01.05.1916, Blaðsíða 13
HEIMALISBL A'Ð IÐ. 77 Nú flytur Heimilisblaðið myndir af 3 ísaums- bekkjum, sem á slæmu kaupstaðamáli er kallað „milliverk" eða „millumverk", Heimilisblaðið kann illa við slíkt natn og nefnir því þetta tsaums bekki. Þessir bekkir eru i rekkvoðir og koddaver, saumaðir með Harðangurs og Klaustur- saum, í hvítan góðan jafa (Sultanstof). Til klaustursaumsins er notaðurperluþráður nr. 5, en til Harðangurssaumsins isaumsþráður nr. 16. Heimilisblaðið veitir kaupendum sínum þau hlunnindi, að það útvegar þeim áteiknaða dúka og þráð (bródergarn) til isaums þess, sem blaðið %tur myndir af. Rekkjuvoðsbekkurinn, sem blaðið flytur nú mynd af er l1/^ meter á lengd og kostar áteikn- aður kr. 2,00, en efni í koddavers bekk áteiknað- ann kostar kr. 1,50 þeir, sem óska að bagnýta sér ofannefnd hlunnindi, sendi útgefanda Heim- flisblaðsins greinilega ulanáskrift, þ. e. nafn, U-i ; ‘ ■ . v. . , 'NL, • '■A'. IIIIIIIIIIK éf ■«(• heimili, hrepp og næsta póststað, ásamt verði etnisins, í póstávísun eða peningabréfi og greini- legri tilvísum til tölublaðs og blaðsíðu, sem hin pantaða ísaumsmynd er á. A.: Hversvegna gengurðu svona beint á lukt- arstólpana, maður, ertu blindur? Drykkjurúturinn: Ó, nei, már sýnast þeir vera tveir, og eg ætlaði að ganga ámilliþ eirra. Bóndinn: Læt eg þig kanske ekki fá eins mikla peninga eins og þú þarft með? Konan: Jú, en þú lofaðir áður en vjfr giftumst að ég skyldi fá eins mikla peninga og eg gæti eytt. Lífsábýrgðarfólag Daiimark hefir, samkvæmt skýrslum frá stjórnarráð- inu, hlotið löggilding hér á landi og hefur hér varnarþing, sbr. auglýsing hér í blaðinu. Gagn- vart þeim, sem kynni að telja það eigí ábyggi- legt, skulum vér geta þess, að aðalforstjóri þess er einhver helsti þjóðmegunarfræðingur Dana, V. Falbe-Hansen konferensráð, konungskj. landþingsmaður. Er vátryggingarfjárhæð félag- sins 90 milj. króna, en eignir þess 21 milj. kr. Þarf því enginn að óttast, að það sé eigi ábyggi- legt. Rikissjóður Dana tryggir þar fjölda starfs- mönnum sínum, sérstaklega þá, sem gegna póststörfum og járnbrautastörfum, sem sýnir bezt álit félagsins heima fyrir, og ber ljósastan vottinn um áreiðanleik þess. Það er Þorv. Pálsson læknir, sem veitir alla nánari vitnesku um félagið.

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.