Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.05.1916, Blaðsíða 14

Heimilisblaðið - 01.05.1916, Blaðsíða 14
78 HEIMILISBLAÐIÐ Nýir ísl. skartgripir izzzz— • (kgl. lögvarðar gerðir.) m H Framleiösla meö einkarétti. £3 m l m m Auka-verðskrá send ókeypis, ef um er beðið. Gripirnir fást hvarvetna á íslandi í vel birgum glys- verzlunum eða beint frá framleiðanda: Nordisk Vareimport, Griffenfeldtsgade 8, Köbenhavn N. m m m m m m m m N i m m m m i m m M „Dýraverndarinn" talar máli dýranna. Kemur út 4 siun- um á ári, 16 síður í hvert sinn. Arg. kostar 50 aura. Er með myndum. Gerist kaup- endur í dag. Afgreiðsla hjá Jóh. Öym. Oddssyni Laugaveg 63. FANNEY, barnabók með myndum, 5 hefti alls, kostar 50 a. hvert. Agæt barnabók. Fæst hjá öllum bóksölum. Iíarnahlaðið „Æskan“ kem- ur út í Reykjavík mánaðarlega, 12 blöð á ári, og auk þess sérstakt jólablað. Árg. kostar aðeins kr. 1,20. Utg.: Aðal- hjörn Stefánsson og Sigurjón Jónsson. Kartöfiuhollur. 100 gr. smjör, 25 gr. kartöflumjöl, 125 gr. rifnar soðnar kartöflur, 3 egg, framan í tesk. múskatsblóm, 2 matsk. mjólk, ofurlítið sykur óg salt. Smjörið er brætt, þar i er svo látið kartöflumjölið og kartöflurnar og hrært vel sam- an, þegar deigið losast frá potfinum, er það látið í fat og látið kólna, þá eru eggin hrærð i, eitt í einu, svo mjólkin og siðast kryddið, þegar þetta er vel hrært saman, eru búnar til bollur með skeið og soðnar í saltvatni. Þessar bollur má hafa i brúnar súpur, skal þá móta þær með teskeið, líka eru þær ágætur morgunrétt- ur, eru þær þá mótaðar með matskeið og búin til á þær brún sósa (vanaleg steikarsósa) sem svo er helt yfir bollurnar á fatið og raðað smjör- deigi í kring. Skuggsjá. I Japan er það siður, að aðstandendur hinna dánu grafa sjálfir gröfina, en fá ekki til þess „líkmenn“ svo sem siður er hjá oss. í jarðskjálftakipp allmiklum, sem fyrir nokkr- um árum kom í Ástraliu, hafði stórt tré slitn- að upp með róturn. Þegar farið var að lima sundur tréð, fundust í moldinni, sem fylgdi með rótinni, allmikið af gullstykkjum. Héldu menn að maurapúki einn, sem fyrrum hafði búið þar skamt á braulu, mundi hafa falið gull sitt þarna i jörðu. I Rochester, borg i Minnesóta, kviknaði í háu húsi. Einn maður sem bjó i húsinu varð of seinn að komast ofan stigana, áður en þeir brunnu. Hann þandi þá út regnhlíf sina og vatt sér út um glugga á 3. hæð með hana út- þanda yfir höfði sér og kom með hægri ferð niður á jafnsléttu.

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.