Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.08.1917, Blaðsíða 4

Heimilisblaðið - 01.08.1917, Blaðsíða 4
86 HEIMILISBLAÐIÐ Notkun tímans. Það er margt sem gengur oss úr greipum; Ðest af þvi getum vér öðlast aflur. Vér höfum t. d. orðið að sjá á bak góðum vini. Séum vér réttlátir, vingjarnlegir og vandir að vinavali, getum vér öðlast vináttuna aftur. Vér höfum mist peninga vora eða á annan hátt orðið fyrir eignatjóni. Alt slikt getum vér fengið aftur. séum vér iðnir, umhugsunarsamir og sparsam- ir. Já, jafnvel veiklaða krafta er undir mörgum kringumstæðum hægt að öðlast aftur, með því að fylgja vissum reglum og þá helst að gefa vel gaum að lögum náttúrunnar. — En eitt er þó sem ekki fæst aftur sé því einu sinni á veg vísað, það er tíminn; hann er oss eilíf- lega glataður — kemur aldrei aftur — aldrei að eilífu. Hin dýrmætasta af öllum gjöfum Guðs er tíminn. Hann er grundvöllur alls annars. Öll þessa lífs gæði öðlumst vér í tímanum. Séum vér sviftir tímanum, föllum vér sem fölnuð blóm til jarðarinnar; alt lífið er horfið oss. — — — Vér ættum að temja oss að meta tímann meðan vér höfum hann oss í hendi. — Hve sorglegt er það ekki, að hugsa til þess, að menn svo oft eyða tíma sinum án umhugsunar, í iðjuleysi og ómenningu, eða leita þess, sem er einskis vert, óheilnæmt bæði fyrir sál og likama. Hversu margir eru þeir ekki,.sem klaga og kvarta si og æ yfir því, að timinn sé svo lengi að liða, alt sé svo leiðinlegt, — vilja með öðrum orðum flýja tímann, flýja Guðs dýrustu náðargjöf! — Þetta er sönnun fyrir því að slíkir menn verja timanum illa, þeir vita ek<ki um verðmæti hans. Maður, sem situr í fangelsi sökum þess að hann hefir varið tima sínum til að brjóta landslögin, litur á tímann sem hefndargjöf og óskar að hann liði sem fyrst. En hver er í sökinni ? — Hanu sjálfur. Það virðis svo, sem flestir lifi og starfi að- eins fyrir mat og drykk. Maginn er þeirra guð! Að hugsa um endurnæring handa sálu sinni. Nei það dettur þeim ekki til hugar^ Þannig er því varið, þegar vér svo oft finnum sálir ungra manna, andlega uppþornar, visnar, skrælnaðar, bókstaflega ómóttækilegar fyrir hina lifandi fæðu, uppsprettulindir hins eilífa sanna lífsvatns, tíminn hefir ekki verið notaður til þess að vökva þær, á meðan æðar þeirra voru opnar, en að fá lifandi blóðstraum í stirðnaðar æðar, það er ofurvaxið mannlegum krafti. Stöðugar áklaganir — enginn tími til að lesa eða líta eftir lífsins verulega gildi. — Enginn tími. til að stansa eitt augnablik frammi fyrir Guði alföður og hlusta eftir röddu hans í al- mættisverki hans. Ó þvilík blindni! — En sé náðartíminn frá oss tekinn, berji dauðans gest- ur að dyrum hjá oss, þá dúgar sannarlega ekki hið vanaleg kæruleysissvar hirðuleysingjans; „Eg er ekki viðbúinn, bíddu þar til eg hefi betri tíma“. „Hjálpaðu mér kæri læknir, að eg fái enn lifað aðeins eitt einasta ár, allar eigur rnínar gef eg yður“. Þannig bað hin andríka vinstúlka Schillers í banalegu sinni, er hún sá að dauðinn nálgaðist; en jafnvel þó hún hefði getað boðið keisarakórónu og alt heimsins gull og silfur, þá hefði læknirinn ekki getað gefið henni eina mínútu. Þannig fer jafnvel hinum mestu nirflum, þegar þeir verða þess varir, að tíminn er frá þeim tekinn, þá vildu þeir jafnvel láta alt gull sitt og gersemar fyrir, — ja máske fyrir fáar mínútur. Þetta er oss öllum Ijóst, og þó lifa þúsundir og miljónir manna aðeins fyrir pen- inga, dag og nótt, ár og áratugi þreyta þeir huga sinn á því einu, að finna upp aðferðir til að græða fó, Iifa eftir fýsnum holdsins, sýnast fyrir mönnum, fá á sig hlaðið titlum og kross- um, alt einskis vert, því allur sá tími sem þeir verja til slíks, veitir þeim enga sanna ánægju, varanlegan frið né gleði, og í dauðanum er slíkt minna vert en fúið hálmstrá fyrir drukkn- andi mann að grípa til. Ó, hvílík heimska og blindni! Vér lifum sem moldvörpur lifið út, en í dauðanum opnast máské augu vor, — en þá er tíminn horfinn, horfinn langt inn í hið ómælanlega djúp eilífð- arinnar, Þar bíður hann vor, hinumegin á hin-

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.