Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.08.1917, Blaðsíða 10

Heimilisblaðið - 01.08.1917, Blaðsíða 10
92 HEIMILISBL AÐIÐ gætum um stund varist átta af Sínans dul- klæddu ræningjum“. „Þið hafið unnið hraustlega, en þetta var hin mesta fífldirfska11, svaraði soldán. Siðan rétti hann þeim hönd sína og mælti: „Bidd- arar, Salah-ed-dín á ykkur lífgjöf að launa, og fari svo að líf ykkar verði einhvern tíma í hættu, mun hann minnast þess“. Næsta morgun voru þeir Fedejar, er á lífi voru eftir, yfirheyrðir, og játuðu þeir hik- laust, að þeir hefðu komið í þeim tilgangi, að myrða Salah-ed-dín, er rænt hefði brúði húsbónda þeirra, ásamt bræðrunum, er hefðu komið henni undan og Masondu. Þeir voru því píndir til dauða. Margir þar í borginni, er grunaðir voru um að vera í vitorði með þeim, voru teknir og drepnir, svo launmorð- ingjana var ekki að óttast um stund. * * * Frá þeim degi voru bræðurnir í miklum metum hjá Saladín. Hann sendi þeim gjafir, og bauð þeim metorð og völd, en þeir höfn- uðu því, og sögðu, að þeir óskuðu aðeins eins af honum, og hann vissi hvað það væri. Við það svar varð hann alvarlegur á svip. Einn morgun sendi hann eftir þeim og tók á móti þeim í viðurvist Hassans, ýmsra helztu höfðingja sinna og múhamedansks prests. „Qngi maður“, sagði hann stuttlega við Godvin. „Eg veit að þér elskið systurdótt- ur mína, prinsessuna af Baálbec. Takið trú vora og þá mun eg gefa yður hana fyrir konu, og þá mun hún einnig taka hina sönnu trú, sem eg hefi svarið að þvinga hana ekki til að taka. Fallist á þetta, og við það vinn eg hraustan hermann og paradís hugrakka sál. Presturinn þarna mun fræða yður í trú vorri.“ „Herra, eg þakka yður, en eg get ekki skift um trú til þess að vinna mór konu, hversu heitt sem eg elska hana“, svaraði God- vin. „Eg bjóst við þessu“, sagði Saladín og andvarpaði, „þó það sé sorglegt, að þröngsýni skuli blinda svo hraustan og góðan dreng. Nú, hr, "Wulf, kemur til yðar kasta. Hvað segir þér um tilboð mitt? Viljið þór taka prinsessuna og eignir hennar og völd, og blessun mína sem brúðargjöf? 'Wulf hugsaði sig um eitt augnablik. Hann mintist haustkvöldsins, er nú var iiðið fyrir mörgum árum, er þeir stóðu ásamt Eósamundu hjá altari St. Shads á ströndinni í Essex, og einmitt töluðu um trúarskifti. Síðan svaraði hann brosandi: „Já, herra, en eftir mínum skilmálum en ekki yðar, þvi gengi eg að þeim myndi hjóraband mitt verða blessunarsnautt. Rósamunda myudi ekki held- ur vilja giftast einum þjóni spámanns yðar, er gæti tekið sér flein konur, ef honum þókn- aðist“. Soldán laut höfði. „Lozelle riddari tilbað einnig krossinn“, sagði hann, „en þið eruð honum gagnólíkir, því hann tók þá trú er honum var boðin“ — „Til þess að vinna vinfengi yðar“, sagði Godvin biturt. „Eg veit ekki,“ ansaði Saladín, en það er satt, að henn virðist hafa verið kristinn með- al sinna trúbræðra þar' vestra, en tilbað spá- manninn hór. En hvað sém því líður, tmm er nú fallinn fyrir hendi yðar, og þó hann hafi brotið móti mór og svikið frænku mi'nn. i hendur Sínans, þá segi eg: Friður só með sál hans. Eg hefi fleira að segja yður. Frank- inn, prins Arnat af Karek, sem þér nefnið Eeginald af Chatillon, bölvað veri nafn hans hefir rofið friðinn milli mín og konungsins í Jerúsalem, með þvi að ráðast á kaupmenn mína og drepa þá niður og ræna fé þeirra. Eg vil ekki þola þá skömm lengur, og mun því bráðlega draga upp merki mitt, og vefja það ekki saman fyr en það blaktir yfir Omar- musterinu og öllum virkisturnunum í Gyð- ingalandi. Trúarbræður yðar eru dauðadæmd- ir. Eg Jósuf Salah-ed-dín,“ og hann reis á fætur er hann mælti þetta, „boða hið heilaga stríð og sópa þeim í hafið. Yeljið nú, bræð- ur. Viljið þór berjast með mór eða móti? Eða viljið þér láta vopn yðar af hendi og dvelja hér sem fangar mínir?“

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.