Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.08.1917, Page 7

Heimilisblaðið - 01.08.1917, Page 7
HEIMILISBLAÐIÐ Hver er þá niismunurinn á þessari tvenns- .konar óánægju? Skyldi hans ekki vera að leita i viljanum? Á bak við aðra þeirra er vilji, en ekki á bak við hina. En viljakrafturinn og táp- ið er einmitt það, sem kemur öllum stórvirkj- um af stað. Sá, sem vill eitthvað, getur það lika. Hann verður nefnilega sterkur. Það er ■afl í viljanum og aflið er almáttugt. Sá, sem vill verða ánægður, verður það. En allir þessir sem segja: Við erum of gamk ir, eða of ungir, eða of lítilfjörlegir, eða of veikburða, allir þeir sem segja að sig vanti fé- lagsskap við aðra, i stað þess að segja: Eg verð að vera mér úti um félagsskap; allir þeir sem segja: Lánið flýr mig, og í einu orði sagt, •þeir sem kenna öllu öðru um en sjálfum sér, þeir ná aldrei því hnossi, sem þeir sækjast eft- ir, og hin sífelda óánægja, sem kvelur þá, nag- ar og eyðir undirrót þeirrar ánægju, sem felst i hvers manns brjósti. Þeir verða aldrei ánægð- ir, af því þá vantaði viljann. Þeir óskuðu aðeins, en þá vantaði viljokraftinn. Sá, sem vill, lifir í friði við sjálfan sig; hann getur aflað sér friðarins og er jafnframt ainnar eigin og annara gæfu smiður. (Lausl. þýtt). g r 02 ð u r n i r. Eftir i§gi] Rider Haggard. g.-=L=réi^gi= [Frh.] „Eiddarar, vér böfum vora siði fyrir okk- ar. Þar að auki tel eg ykkur fyrir beztu, að þið sjáið prinsessuna af Baalbec sem sjaldn- ast, og sömuleiðis fyrir mig, er bíð þess að 'fiýn sú uppfyllist, er engillinn birti mér.“ Bræðurnir yfirgáfu hann hryggir í huga. í*eir sáu að það myndi verða ómögulegt að ná henni burt frá Damaskus. Hún bjó í sinni eigin höll, og voru þar sveitir úr lífverði keisarans á verði nætur og úaga og vissu þeir fyrir víst, að þeii- myndu 89 ■ verða að láta líf sitt, ef hún hyrfi eða nokk- uð yrði að henni. En innan hallarveggja var hennar gætt af geldingum undir stjórn geldings er Mesrour hét, er var hinn mesti refur, og allar þernur hennar voru njósnarar og mjög athugular. Eina huggun höfðu þeir samt sem áður. Þegar Eósamunda kom til hirðarinnar, hafði hún beðið soldán þess að hafa Masondu hjá sér, og fékk hún því framgengt, þó stirt gengí, vegna þátttöku hennar í flótta og frelsun prins- essunnar. Hjá henni fréttu þeir, að Eósamunda væri að vísu að nokkru leyti ánægð, og hafði hún ástæðu til þess, þar sem hún var nýsloppin frá Al-je-bal, en hún var þó þreytt á þessu undarlega Austurlandalífi, og allri þeirri þving- un er hún varð að sæta, og hrygg yfir því að fá aldrei að tala við bræðurna. En þá kom fyrir atburður, sem jók aðdá- un soldáns á þeim og heiður Masondu. Þeir sátu einn morgun við gosbrunninn í garðinum hjá húsi því er þeir bjuggu í, og horfðu á þá er fram hjá gengu gegn um grind- urnar í hliðinu. Hús þeirra lá við eina fjölförnustu götu Damaskusborgar, og þar var því sífeldur straumur af alls konar fólki um götuna. Alt í einu heyrðu þeir mannamál við hlið- ið, og varð þnim litið þangað. Þeir komu þá auga á konu, er var sveipuð síðri kápu, og var að tala við vörðinn, er rétti út hand- legginn hlæjandi, eins og hann ætlaði að leggja liann um mitti hennar. Þeir sáu þá blika á hnífi í hendi liennar, svo vörðurinn vék til baka Qg opnaði hliðið brosandi. Konan kom svo inn í garðinn. Það var Masonda. Þeir stóðu upp og hneigðu sig fyrir henni, en hún gekk fram hjá þeim inn í húsið. Þeir fylgdu henni eftir, en vörðurinn við hliðið hló aftur, og roðnaði Godvin er hann heyrði hláturinn. ILún varð þess vör, þó. svalt og skugga- legt væri inni í herberginu, og sagði sorgbitin: „Hvað gerir það til? Slíkar móðganir eru mér daglegt brauð, sem þeir halda“ — og hún hikaði.

x

Heimilisblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.