Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.02.1918, Qupperneq 2

Heimilisblaðið - 01.02.1918, Qupperneq 2
18 HEIMILISBLAÐIÐ um og særburn, bjargarár bágstoddum, líknar- ár aumum, og sáluhjálparár öllum, sem á því <teyja. — Matth. 6, 5-13. Hið fyrra er orsök hins síöara, og hið eft- irkomandi er afleiðing hins undanfarna. Það sem á undan er, bendir því líka til ]>ess, sem á eftir fer; og það, sem síðar kemur, minnir á það, sem fyr er farið. Og það, sem yfirstend- ur, eða gengur og gerist í dag, það rifjar upp sögu dagsins í gær, og spáir fyrir um daginn á morgun. t dag er nýársdagur, fyrsti dagur- inn í 1918. ári tímabils vors. Og hanu er, eins og hver annar nýársdagur, að þvi leyti, að hann þrýstir hverri mannlegri sál til þess, að nema staðar í huganum, til að hvíla sig eflir gamla árs gönguna, um leið og hún lítur aftur yfir farinn veg, og lil þess að safna kröftum undir nýársferðina, sem framundan liggur, ab sumu leyti fyrirsjáanleg, en að ílestu leyti dimmu hulin eða þoku vafin. Og eins er því nú þessi nýársdagur og hver annar nýársdagur, að því leyti, að margt og mikið gefur hann að hugsa og finna til; margt að óttast og margt að vona, margs að sakna og ti! ýmislegs að hlakka, margt og rnikið að þakka, og ótalmargs að óska og hiðja, öllum þeim sem nokkuð hugsa og skilja, og nokkuð geta fundið til. En þó hefir aldrei, síðan sögur hófust, upp- runnið yfir þennan heirn annar eins nýársdag- og þessi; jafnkallandi og knýjandi til endur- minningar hins umliðna, og umhugsunar um hið ókomna, jafn yfirskygður af ótta og kvíða og harmaskýjum; jafnríkur að neyð og nauða- horfum, sjaldan eins fátækur af þessa lífs gæð- um og gæfuútliti yfir höfuð, og jafn vekjandi og þrýstandi til ákalls og bæna, og til breyt- inga frá býsna mörgu og miklu, sem verið hef- ir og við'gengist á gamla tímanum liðna. Sið- an mannkynssagan hófst, hefir engin nýárssól risið upp og skynið yfir annað eins alsherjar- stríð og óguðlegt miljóna morð eins og np er orðið um þelta nýár. Eins og kunnugt er, standa öll höfuðríkin í heimsálfu vorri í afskaplegustu vígaferlum sín á milli, og ekki nóg með það, heldur er þetta Evró|)ustríð orðið að alheims- stríði, því allar hinar heimsálfurnar laka meiri og minni blóðugan og grátlegan þátt í þessari styrjöld, svo að kal’Ia má nú að allur heimur- inn berjist. En aðalvigvöllurinn er álfa vor, sú álfan sem síst skyldi ætla slíkt um, sú álfan, sem kölluð er bezt mentuð, og lengst og mest hefir lært og lifað við þella boðorð: „þú skalt ekki mann deyða“. Þór vitið, að þegar stór hernaðarstyrjöld geysar í hcj.skyldulöndum, þá er þar eigi lengur um neina vægð eða miskun að ræða. Eiginmenn og synir eru hlífðarlaust teknir frá konum og mæðrum, hræður frá systr- um, unnustar frá unnustum, alt þar til, að ekk- ert er eftir heima nema konur, börn og gamal- menni; og þegar hernaðurinn harðnar, þá er alt heimtað og tekið frá heimilunum, dautt og lif- andi sem hernaðurinn þarfnaðist; frjálsræði ekk- ert, og enginn er þar óhnltur um líí, æru og eignir. Og þér hafið heyrt frá orustunum og vígvöllunum, og jafnvel séð myndir af þein). „Þar berjast hræður ok að hönum verðask“, eius og ti-ylt villidýr, eðli sínu og viti fjær. Og þar hníga dauðir og dauðvona eiginmenn, feð- ur, synii-, bræður og unnustar samtals þúsnnd- um, og jafnvel miljónum saman; og á sömu stund verða jafnmargar ekkjurnar og hinir föllnu eiginmenn, og enn þá tleiri munaðarlausu börn- in, og harnlausu foreldrarnir, og þannig áfrarn. A heimilunum er harmakvein og grátur, en á vígvöllunum og sjúkrahúsunum kvalaóp og vein. Alslaðar þar, sem óvinaher fyr yfir, þár eru í sannleika „Borgirnar hrundar og löndin auð“. Þar er engu hlíffc, ef viðnám er veitfc þúsund- urn saman flýr fólkið boi-gir sínar og bæi, og deyr af hungri, nekt og hælisleysi, og allur þorri hernaðar-þjóðanna inissir flesta heiðarlega at- vinnu, og skortir því föt og fóður, einkum þeg- ar ófriðurinn dregst á Ianginn. Slíkt og þvílíkt er nú og fer meir og meir að verða ástandið í ílestum löndum álfu vorr- ar og víðar og víðar um heim allan. Og þó að sjálf styrjöldin nái ekki lil allra landa með aðal viðurslygð eyðileggingarinnar, þá ná þó margar, illar og grátlegar afleiðingar hennar til allra mannabygða þessarar jarðar, og þar á

x

Heimilisblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.