Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.02.1918, Side 11

Heimilisblaðið - 01.02.1918, Side 11
HEIMILISBLAÐIÐ 27 handa ]>eim hjónum í héraði, þar sem ættmenn konunnar áttu bólfestu, til þess aö hún, eins og hún komst aö orði, stæði ekki uppi alveg ein- mana í heiminum, ef Kobbi iiéldi áfram að drekka. Þar næst var farið að undirbúa brúð- kaup þeirra, Hinriks og Esterar. Og livað sagði nú Georg eldri um allar þess- ar ráðstafanir? Hann skrifaði heim, að Iiann væri sam- þykkur öllum gjörðum konu sinnar og vonaði að árangurinn færi að óskum hennar og von- uni, Og Anna var nú um ekkert jafnviss sem það, að svo mundi fara; en til þess að íyrirbyggja til vonar og vara, að nokkurt babb gæti komið í bátinn, þá kom hún því svo fyrir, að maður hennar skyldi eigi koma heim fyr en kvöldið fyrir brúðkaupsdaginn, og svo setti hún þá skil- mála, að þau Kobbi skyldu fara jafnskjólt sem brúðkaupið væri úti; með þessu móti hugðist hún að geta komið i veg fyrir, allan möguleika til þess, að þeir legðu lag sitt saman aftur, Georg og Kobbi. Á fögru júní-kvöldi sátu þær Anna og Ester úti fyrir húsdyrum sínum með tengdum hönd- um og biðu eftir póstvagninum, þeim sem Georg eldri álli að koma með. En hvað þar voru nú glaðar og ánægðar! Hinrik var nýfarinn frá þeim til móður sinnar; hann ætlaði að vera hjá henni, veslings mömmu, seinast kvöldið, og eins og hann komst að orði, hafa augastað á því, hvað faðir hans hefðist fyrir. Georg yngri var enn á skrifstofunni; en næsta daginn átti hann að eiga sjálfur, til þess að hann gæti set- ið brúðkaup systur sinnar. Loksins heyrðu þær þjóta í vagnhjóli. „(), þarna kemur vagninn“, hrópuðu þær mæðgur báðar, þegar þær sáu vagn með fulifermi koma úti á veginum. En vonbrigðum þeirra er ekki hægt að lýsa: ökumaðurinn nam ekki staðar, held- ur kastaði hann gömlu ferðatöskunni hans Ge- orgs eldri niður til þeirra, en með þumalfingrinum benti hann í áttina til kaupstaðarins og gaf þeim með þeim hætti bendingu um, að hann hefði skiiið eiganda töskunnar eftir þar, þegar hann ók þar um. Anna fölnaði upp. Hversvegna kom maður hennar ekki með vagninum? Var hann kom- inn í kast við Kobbn? Henni lá viö örvilnun. Ester var vonbetri; hún var ekki i vafa um, að faðir hennar hefði átt einhver erindi að reka í kaupstaðnum; en hins vegar væ.ri honum ekki ókunnugt, hversu þær biðu lians með mikilli óþreyju, af þvi að þær lúökkuðu svo til að sjá hann, og mundi lians þvi ekki langt að bíða. En samt sem áður leið nú hver stundin af annari. Þær gengu alt af á víxl til dyra maiðgurnar, til þess að vita, hvort þær sæju ekki til hans; en þær sáu engan Georg koma. En lolcs, þegar dimt var orðið af nóttu, þá sáu þær grilla i einlivern úti á vegirmm, senr var á leið til þeirra; en þegar liann færð- ist nær, þá sáu þær, að hann reikaði á fótum, en ekki gátu þær séð andlitsfarið. Þá þreif Ester í handlegginn á móður sinni og hrópaði upp : „6 mamrna, mamma!" Þegar maðurinn færðist enn nær, þá sáu þær, að það var ekki húsfaðirinn Georg,* held- ur Kobbi, og svo ókærkominn gestur sem hann annars varð þeim, þá varð þeim næstum gleði að sjá hann. Þeim var fró í því að sjá, að það var ekki heinúlisfaðirinn. En þær þóttust vissar um, að hann mundi koma og það bráð- lega; iiann var seunilega ekki langt undan, og nú lá freistarinn eins og í launsátri fyrir hon- um. Þær mæðgur gengu nú inn og lokuðu dyrunum; þær fundu sárt til leiða og andstygð- ar. Þegar þær komu inn, gat Anna ekki tára bundist, en þegar hún var búin að útheila tár- unum, þá réð hún af að senda ungan pilt, sem var hestamaður hjá henni, út á veginn, til þess að liann mætti Georg og reyna svo að koma honum í kyrþey um bakdyr inn í húsið. Dreng- urinn fór; en þegar hann var búinn að ganga lengi lengi, og orðinn leiður á því, þá snéri hann aftur heimleiðis og sagði, að hann hefði farið alla leið tii kaupstaðarins, en hvergi séð bóla á manni hennar. Hann liafði samt liitt Hinrik, og Hinrik lofað að leita hann uppi og koma honum heim. Anna varð þess nú vís, að Kobbi steinsvaf úti fyrir dyrunum; lét hún þá dóttur sína og vinnuhjúin ganga til rekkju, en sjáif ætlaði húu að vera á fótum, til þess

x

Heimilisblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.