Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.02.1918, Qupperneq 13

Heimilisblaðið - 01.02.1918, Qupperneq 13
HEIMILISBLAÐIÐ 29 „Þegar eg kom að mylnutjörninni, þá stóðu sumir' mylnumennirnir við hana“ og horfði ofan í hana sagði Georg. „Veslings pabbi minn er druknaður, það er foann", hrópaði Ester upp yfir sig, og sló hönd- unum saman. „Já“, svaraði Georg undur seinlega, „hvort hann befir fengið ölæðiskast eða orðið fyrir samviskubiti og blygðast sin fyrir að koma heim — frá því kann enginn að segja". — „En Hinrik, hvar er Hinrik!" — hrópaði Ester, því Georg þagnaði aftur. Nú heyrðist niðri fótatak margra manna og eitthvað þungt var borið inn eftir ganginum. „Eg hefi Iátið bera hann hingað Ester; eg vissi að þú mund- ir hafa óskað þess, og það mundi hann líka hafa gert!“ Þelta varð brúðkaupsdagur Esterar! En sú" heljarþunga sorg, sem dundi yfir þetta vesl- ings heimili. Anna náði sér aldrei aftur eftir þelta áfall; hún var altof geðrík til þess, tilfinningar henn- ar alt of örgerðar. Hún varð brjáluð og þeg- ar dauðinn leysti hana frá þjáningum hennar, þá dirfðist enginn að mögla um það. Lánar- drotnar Kobba tóku allar eigur hennar, sam- kvæmt þeirri skuldbindingu sem Georg heitinn hafði gengist undir. Systkinin, Georg og Est- er þráðu nú mest af öllu að flýja þaðan, sem þessi ógæfa hafði yfir þau dunið, eins og Grím- ur ráðsmaður vinur þeirra réði þeim, og leit- uðu sér viðurværis í Lundúnum. Svona lýkur nú þessari stuttu, en raunalegu sögu minni. Eg verð aðeins að bæta því við, að þessi uppástunga um utanför þeirra syst- kina með vini mínum, sem áður er á vikið, varð -að ráði, til ómetanlegra hagsbóta fyrir þau systkinin og vini niínum til fullkominnar ánægju. Við mann. Þú hefur afbragðs Iéfta lund, að lííinu hlegið geta: þegar börn þín heima og hrund hafa ei neitt að éta. Bókafregnir. Þrátt fyrir dýrtíðina er altaf verið að gefa út nýjar bækur af ýmsu tægi, bæði fræðandi og skemtandi. Eg hefi að sönnu eigi séð nema örlítinn hluta af bókum þeim, sem nýkomnar eru á markaðinn, en hin merkasta þeirra, sem eg hefi séð, er án efa skáldsagan: „í fótspor hans“ eftir Ch. M. Sheldon í þýðingu S. Kr. Péturssonar. Sú bók á erindi til allra, því hún hefir sannarlegt lífsgildi í sér fólgið. Það er ekki einn hinna svonefndu „eldhússrómana11, sem ekkert hafa til brunns að bera, en æsa aðeins ástríður lesendanna og spilla þeim. Þessi bók er alt annars eðlis Hún er miklu fremur til þess að göfga menn og bæta. Efni hennar er, eins og nafnið bendir til það, að sýna fram á, að hægt sé að feta í fótspor meistarans mikla, Jesú Krists, og breyta eftir honum nú á þess- um upplýstu tímum sem áður. Og hún lýsir mæta vel sjálfsafneitun þeirri og andstreymi, sem slíkri breytni er samfara, en jafnframt sælu þeirri og fögnuði sem sönn trú hefir í för með sér. En hverjum eigum vér framar að reyna að líkjast en Kristi? E^ nokkra aðra fyrir- mynd að finna? En vér þörfnumst þó allir að verða meiri og betri menn en vér erum. En til þess getur bók þessi orðið oss hjálp, ef vér lesum hana með athygli, því hún beinir huga vorum til hans, sem er „vegurinn, sannleikurinn og lífið“. Þar í er gildi hennar fólgið. Þessvegna ræð eg sem flestum til að kaupa hana og lesa; ekki sist æskulýðnum, því hún getur verið honum gott veganesti út í lífið. Frágangur bókarinnar er prýðilegur að öllu leyti. Bókmentum vorum er efalaust mikill gróði að henni; og þýðandi og útgefandi eiga miklar þakkir skilið fyrir útgáfuna. Frekari meðmæli þarf bók þessi eigi, — því eins og allar góðar bækur, þá mælir hún bezt með sér sjálf. Ricliard Beck, Eskifirði. * * M. G.

x

Heimilisblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.