Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.02.1918, Side 16

Heimilisblaðið - 01.02.1918, Side 16
HEIMILISBLAÐIÐ þrjóta, mun tráverö fyrst hækka svo um munar. En hvenær þaS verSur, er ekki gott aö segja, ef til vill aö einum mannsaldri liSnum, og þ á spáir höf. sá er fyr er nefndur, aö skógarnir í SvíþjóS veröi landinu drjúg tekjulind, sem betra sé aö aiga en án aS vera. Úr sögu stálpennans. Englendingur nokkur, Henry Bare a’ö nafni, hefir samiö ítarlega ritgerö um þetta efni, og með nákvæmni mikilli safnað saman öllu því er snertir hið alkunna áhald vorra tíma, s t á 1- p e n n a n n. Af ritgerð þessari má sjá, að stálpenninn er ekki uppfundning síðustu alda, eins og sumir hafa haldið fram. Þvert á móti; sögu hans má rekja til miðaldanna (13. eða 14. aldar), eða jafnvel alt aftur i fornöld. Til dæmis er sagt frá því í handriti einu eftir Robert d’Artois, að skjalafalsari nokkur hafi notað málmpenna, svo fölsunin reyndist sem allra líkust frumriti. í Aosta heíir fundist róm- verskur stálpenni, og það verður að teljast sann- að, að málmpennar hafi verið notaðir á 15. öld, eða um það leyti, sem prentlistin var fundin upp. Fyrir nálægt 150 árum síðan, smíðaði Mr. Harrison í Birmingham, stálpenna; voru nokkrir þeirra lengi vel i eign Sir Josiah Masons, en nú. eru þeir glataðir. Fyrsti stálpenninn, sem menn vita um með vissu, er nefndur í hollenskri einkaleyfisbók 1717. Er enginn vafi á, að skáldið Pope bendir til þess í kvæði einu, þar sem hann segir frá stál- og gullpennum, sem ekki hafi náð neinni útbreiðslu. Þa& er ekki fyr en 100 árum síðar, 1816—'17, sem alment er farið að nota stálpenna, og 1823 —'24 var gerð uppgötvun, sem flýtti fyrir smíð- inni og útrýmdi þá fjaðrapennum að mestu. Heiðurinn að hafa fundið upp vél til stálpenna- gerðar, verður að skiftast milli þeirra John Mit- chell, Josef Gillot og Josiah Mason. Síðustu rann- sóknir virðast þó benda til þess, að John Mit- chell hafi fyrstur gert uppfundningu sína not- hæfa og tekið hana til verklegra framkvæmda. Ný pappírsíegund. í amerískum blöðum er þess getið, aö ein af nýjustu uppfundningum Edisons sé, að nota. málmþyhnur í stað pappírs. Með rafmagni hefir hann unnið þunnar plötur úr stáli, kopar og nikkel, sem eru móttækilegar fyrir prentsvertu, eins og pappír. Tilraunir hans kváðu sýna, að nikkel reynist best; úr því má gera næfurþunnar plötur, sem. bpeði eru ódýrari, seigari og beygjanlegri en vanalegur pappír. — En ekki er sagan sem trúlegust, — hver veit þó? — K. Eldhúsíð. Kaí'fibollur. 375 gr. hveiti, 125 gr. smjör, 3 egg, 1 tesk. hjartarsalt. Þelta er alt hnoðað vel saman og því næst húnar til smábollur rúllaðar niður við borðið með hendinni og svo þrýst ofaná þær til að gera þær ofurlítið ílatar, þeim er svo dyfið síðast í stórsteyttan hvítasykur og svo bak- aðar á plötu við góðan hita. Úr þessu eiga að geta orðið um 30 bollur. Dráttur sá, sem hefir orðið á úlsendingu blaðsins verður unnin bráðlega upp. Það er örðugt að láta blöðin fylgja áætlun nú eins og margt annað. Óvíst altaf t. d. með pappír, í þau, því nú er pappírinn svo dýr, að Heimilis- blaðið getur ekki keypt sér birgðir, eins og það gerði áður. Nú eru það vinsamleg tilmæli til kaupend- anna að senda blaðgjaldið með næstu póstum. Ef kaupendur blaðsins verða nú samtaka um það að greiða götu þess með því að verða skil- samir, þá væntir blaðið að geta séð það við þá í einhverju að styrjöldinni lokinni. Útgefundi og ábyrgðarmuður: Jón Helgason prenlarii Félagsprentsmiðjan, Laugaveg 4.

x

Heimilisblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.