Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.03.1920, Síða 6

Heimilisblaðið - 01.03.1920, Síða 6
38 HEIMILISBLAÐIÐ Og þá er það, að Kaífas æðsti prestur brýnir það fyrir ráðinu — að vísu af illum hvötum, en þó um leið af spámannlegri andagift — að gagnlegra væri að einn maður dæi fyrir lýðinn, en að öll þjóðin fyrirfærist (J. 11, 47-áfr.). Nú var annaðhvort að gera: að hrökkva eða stökkva, — og »upp frá þeim degi voru þeir því ráðnir í að lifláta hann«. 5. Þeir leituðu Ijúgvitnis gegn Jesú, til þess að geta liflátið hann. Á krókaleiðum svikráðanna voru nú óvinir Jesú lentir i þeim ógöngum, sem þá mundi annars hafa hrylt við. Þau ein úrræði voru nú fyrir hendi, að æðstu prestarnir og alt ráðið teitaði tjúgvitnis gegn Jesú, til þess að geta líflátið hann (Mt. 26, 59). Vel má það vera, að falsvitnin hafi ekki beint orðið sökuð um meinsæri. í þá átt virðist það benda, er nefnd eru, sem dæmi um falska framburði, ummæli Jesú um að brjóta niður »musteri þetta« og reisa annað á þrem dögum (Mk. 14, 57—8). En það er í öllu falli auðsætt, að guð- spjallamennirnir hika hér ekki við að tala um falska framburði, og það sökum þess, að andlegum leiðlogum Gyðinga hafi hlotið að vera það vel ljóst, að það sem þeir reyndu að nota lil að sakfella Jesú, var ekki sann- leikanum samkvæmt; að minsta kosti hafi það ekki verið þeim hulið, að þau ummæli Jesú, sem nú var snúið gegn honum, þau hafði hann sagt í annari merkingu. — Hatrið hafði sem sé leitt þá svo langt, að þeir létu sér ekki í augum vaxa að Ieiða fram Ijúgvotla gegn Jesú. 6. Burt með þenna mann, en gef oss Barrabas lausan! Barrabas var »alræindur bandingi«, er hafði gert sig sekan um upphlaup og mann- dráp (Mk. 5, 6—11). Því þótlist Pílatus viss um það, að ef velja skyldi um þá tvo, Barra- bas og Jesúm, þá mundi lýðurinn einum rómi biðja um, að Jesús yrði látinn laus. Að sleppa Barrabasi úr haldi var sama sem að stofna til vandræða í borginni, og þess mundi enginn óska, að öllu sjálfráðu. En svo afskapleg var bræði leiðtoganna orðin, að þeir æstu lýðinn til að heimta, að Barrabas skyldi látinn laus — en ekki Jesús. 7. Peir ajneituðu œðstu hugsjón og vegsemd Guðs útvöldu þjóðar. Með ýmsum hætti hafði Pílatus reynt að fá Jesúm sýknaðan. En umfram alt vildi hann þó sjá sjálfum sér borgið. Þess vegna sá hann sér að lokum ekki annað vænna, en að dæma Jesúm til dauða, til að þóknast leiðtogum Gyðinganna. Ekki gat hann þó neitað sér um að svala hug sínum ofurlítið, áður en málinu lyk1, Þegar hann því settist á dómstólinn, sagði hann við Gyðinga — vafalaust i hæðni-róm, til að auðkenna sem bezt merkingu orð- anna —: Sjáið, þar er konungur yðar! (J. 19» 14). Slikan mann kallið þér konung! Og svona farið þér með konung yðar! Og þegar þeir svo svöruðu ekki öðru en að æpa: Burt með bann! Krossfestu hann! hélt Pílatus áfram i sama tón og spurði: A eg að krossfesta konung yðar? En æðstu prestarnir svöruðu: y>Vér höfu’n engan konung, nema keisarann /« Þar með var haturs-hámarkinu náð. »PíIatus seldi þeim hann í hendur, til þesS að hann yrði krossfestur«. En hve mjög mundi þeim ekki á öðrum tímum hafa ofboðið jafnvel tilhugsunin um það, að þurfa að vinna það sér til sigurs< að gefa slíka yfirlýsingu: Israel hefir engaíl konung, nema keisarann! Sé Jehóva ekki Israels-konungur, — hva er þá Israel? Andlegt þjóðar-sjálfsmorð — það var bið ógurlega iðgjald, sem Krists-hatrið knúðr Gyðinga-leiðtogana til að inna af hendi, ý1 þess að ryðja honum úr vegi, sem þeir böt' uðu. III. Orsakirnnr. Þegar vér förum að athuga guðspjöllin til að komast að raun um, hvað það var i farI

x

Heimilisblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.