Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.03.1920, Side 8

Heimilisblaðið - 01.03.1920, Side 8
40 HEIMILISBLAÐIÐ ur einnig kallaði Guð föður sinn og gjörði sig sjálfan Guði jafnan«. En lögðu Gyðingar ekki of mikinn þýð- ingar-þunga í ummæli Jesú í það skifti? Hann sagði sem sé ekki annað en þetta: »Faðir minn starfar alt til þessa; eg starfa einnig«. Það virðist ekki vera ástæða til að skilja þessi orð svo, að í þeim væri fólgin guðlöstun, — að minsta kosti ekki frá voru sjónarmiði. En kjarninn felst í framhalds- ummælum Jesú, er hann sá hvernig Gyðing- arnir skildu orð hans og hver áhrif þau höfðu á þá. Hann gerir ekki hina minstu til- raun til að spekja þá eða sýna þeim fram á, að þeir misskilji hann. Nei, þvert á móti tekur hann til að skýra nánar fyrir þeim sambandið milli hans og föðursins, svo að það verður þeim enn rækilegar innrætt, í hve einlægum og einstæðum skilningi hann sé Guðs sonur, sameinaður föðurnum (J. 5, 19-29). Það var þetta sama atriði í kenningu Jesú, sem Gyðingarnir urðu svo æstir af á must- eris-vigsluhátíðinni (J. 10, 31-áfr.), að þeir liugðu að grýta hann. Þeir sögðu það ber- um orðum að þeir œtluðu að lifláia hann »fyrir guðlast og fyrir það, að þú, sem ert maður, gjörir þig sjálfan að Guði«. — Að lítt athuguðu máli mætti svo virðast, að í and- svörum Jesú (í næstu versum, 34—38) hafi verið fólgin skýring í þá átt, að fleiri en hann væru nefndir Guðs heiti. Eða svo eru orðin þau stundum skilin. En við nánari at- hugun er það Ijóst, að í þeim andsvörum leggur Jesús aðal-áherzluna á greinarmuninn milli þeirra, »sem Guðs orð kom til«, og hans sjálfs, »sem faðirinn helgaði og sendiíheim- inn«. — Hér er því enn staðhæfing um guð- legt vald hans, — staðhæfing, sem Jesús lagði á aukna áherzlu, enda þótt hún vekti hneyksli og hatur. Slikt hið sama gerðist við yfirheyrsluna hjá Kaífasi (Mt, 26, 63—66), Há-alvarlega hafði æðsti presturinn spurt Jesú um það, hvort hann vœri Kristur, sonur Guðs. Og við andsvar Jesú varð presturinn svo hryggur og reiður, að hann reif sundur klæði sin. Bæði æðsta prestinum og hinum öðrum Gyðingum, er við voru staddir, fanst málið vera þaf með á enda kljáð: Þeir höfðu nú sjálfir heyrt hann guðlasta; hvað þurftu þeir nú framar vitna við! — hann var dauða-sek- ur! — Aðal-orsök þess, að Gyðingarnir lögðu hatur á Jesú, er þá sú, að hann hélt því hiklaust fram, að hann væri sonur Guðs, honum sam- einaður i einstœðum skilningi. Og tvimælalaust hafa Gyðingarnir skilið þetta rétt; því aö ef um misskilning hefði verið að ræða, mundi Jesús að sjálfsögðu hafa leitast við að koma í veg fyrir hann og sorglegar afleiðingar bans. Og án efa hefir hann talið samband sitt við föðurinn meðal þeirra mikilvægustu kenning- ar-atriða, sem honurn bæri að sannfæra menn um; annars hefði hann ekki haldið því svo fast fram, er auðsætt var orðið hvev hætta mundi af því stafa. Rækileg athugun guðspjallanna virðist þvi alls ekki leiða til stuðnings málstað þeirra, er líta svo á, að Jesús hafi aldrei hugsað sér að orð hans og ummæli um þetta atriði yrðu skilin á þann veg, sem kristin kirkja hefir gjört. Hún hefir sem sé skilið þau alveg á sama hátt og Gyðingarnir. Og e/ þeir mis" skildu þau, þá hefði því ekki verið bót m®l" andi, að Jesús leiðrétti ekki slíkan misskilD' ing. Ekki er heldur að finna í guðspjöllunum neina stoð þeirrar hugsunar, sem ef til vill er þó enn algengari, að hafna beri staðhæf* ingum Jesú um guðdóm hans og guðlegt vald, en telja hann að öðru leyti hinn roesta og bezta — eða að minsta kosti á meðal hinna mestu og bezlu manna —, sem verið hafa hér á jörðu. Nei, hafi Jesús ekki haft satt að mæla, er hann hélt þessu fram svo ótvírætt og kröft* uglega og þrátt fyrir alvarleg mótmæli 06 hörmulega hneykslan, þá er auðveldara a skilja hatur Gyðinganna, en munnflapur uu- tímans um afburða mannkosti Jesú. 2. Hugarfars-mœlikvarði. a) Það var í Nazaret, sem vér urðum fyrst

x

Heimilisblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.