Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.03.1920, Qupperneq 13

Heimilisblaðið - 01.03.1920, Qupperneq 13
HEIMILISBLAÐIÐ 45 því meira sem hún las, því meira fanst henni hún eiga ólesið, og eiga ettir að fá skilning á. Meðfæddir hæfileikar hennar glæddust — það fann hún sjálf sér til mestu gleði. Lára varð nú eitthvað svo örugg með sjálfri sér og það fór henni vel, en foreldrunum fanst fátt um. Þau botnuðu ekkert i henni. En nú fór hún að koma auga á markið álengdar og vona, að hún næði þvi. Upp frá þessu opnaðist henni aðgangur að mentamannaheimilum og þar undi hún sér vel og fann nú ekki til þess, að hún þætti lijáleit lengur. En bezt undi hún sér á efnuðu iðnaðar- mannabeimili. Þar fanst henni hún vera eins og heima hjá sér. Yngri dóttir hjónanna þar hafði sérstaklega miklar mætur á henni, þangað til að svo fór einn dag, að alt það dálæti fór út um þúfur. Lára hafði aldrei árætt, að bjóða þessari ungu vinkonu sinni heim til sín, heldur sneitt hjá því af ásettu ráði. Hún fann, að henni mundi þykja heldur stinga í stúf heima hjá sér við það, sem vin- stúlka hennar átti að venjast, bæði foreldrar hennar og heimilið sjálft; oft gat hún and- varpað með sjálfri sér út af því. Oft óskaði hún þess, að foreldrar sínir væru orðnir eins og það fólk, sem hún nú var samvistum við. Aldrei þorði hún að minnast á þetta áhyggju- efni silt einu orði, hún vissi sem var, að því yrði ekki breytt til batnaðar og þess vegna lét hún sér umhugað um, að enginn kæmi þangað. En svo var það einn daginn, að dyrabjöll- unni var hringt. Lára fann það á sér, að það mundi hafa verið vitlaust af sér, að hún fór ekki sjálftil dyra, en hún gat ekki fengið af sér að gefa sig fram og þarna stóð hún nú í síðdegis- búningnuro, eins og höggdofa. Frúin kom inn að vörmu spori uppveðruð og sagði, eins °g Láru grunaði, að ungfrú Bing væri kom- in og biði eftir henni. »Hví sagðirðu ekki, að eg væri ekki heima, eins og alt lítur út hérna inni?« »Fáðu mér frakkann hans pabba og háls- línið hans«. »Og það kemur nú í sama stað niður — hún er búin að sjá allan ræfilsháttinn hjá okkur, eins og alt af er hérna«. Móðir hennar vissi ekki hvaðan á sig stóð veðrið. Óg af því að Lára hreyfði sig ekki úr sporunum, þá Iæddist hún sjálf eftir frakkanum og hálslíninu. Lára skammaðist sín fyrir heimilið, fyrir foreldra sína og — fyrir sjálfa sig. Og því varð ekki neitað — fagurt var þar ekki um að litast. Leifarnar af miðdegis- verðinum stóðu enn á borðinu og dúkurinn á því var mokóhreinn, svo ekki gerði hann það lystilegra í augum. Jörgensen var ný- lagstur í hægindastólinn til þess að fá sér miðdegisblund. Þarna lá hann á skyrtunni, hálslínslaus og illa til reika. Frúin var búin að setja á sig stóra og skitna eldhússvuntu og ætlaði að fara að þvo upp. Sá sem kom inn utan úr hreina loftinu, hlaut að frnna að húsið var fult af steikaralykt og saman við það blandaöist reykur af vindlum, sem ekki voru af beztu tegund. Inniskór Jörgen- sens stóðu hjá ofninum, hálffullir af ösku og hálfbrendum kolum, því að ofninn hafði ver- ið frúnni óvanalega eríiður viðfangs þennan daginn. Pví fór tjarri, að ungfrú Bing væri nokk- ur tepra; hún var ógn góðlátleg og blátt áfram; en nú þótli henni nóg um, einkum af þvi, að það kom henni á óvart. Hún hafði eiginlega aldrei hugsað neitt út í það, hvern- ig heimili Láru mundi vera, því að henni fanst svo eðlilegt, að það væri eins og heim- ilið hennar, og þvi fremur kom henni þella alsendis óvart. En þetta kom líka flalt á Jörgensen. Hann spratt upp úr stólnum; en það kom fyrir ekki, þó að liann kallaði á konu sína og bæði um frakkann sinn og hálslínið; hann stóð nú þarna alveg ráðþrota og gaut hornauga til inniskónna undir ofn- inum; en um leið var hann að brjóta heil- ann um, hvernig hann ætti að losna úr þess- um kröggum, því að hann sá óðara að ung- freyja þessi var af æðri stigum í mannfélag-

x

Heimilisblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.