Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.04.1920, Blaðsíða 2

Heimilisblaðið - 01.04.1920, Blaðsíða 2
50 HEIMILISBLAÐIÐ ^ceknr og kcimili. Það eru til uýtízku heimili, þótt ótrúlegt kunni að þykja, er tæplega hafa eina einustu bók innan veggja sinna. Bað eru líka til heimili, og þau eigi all-fá, þar sem hugþreyta og andlegur óstyrkur virðist hafa náð yfir- tökunum. Á milli þessara tveggja ómótmæl- anlegu atriða, liggja fleiri leyniþræðir en nokkurn dreymir um. Bóklaust heimili fer á mis við svo og svo mikinn skerf af andlegum læknislyfjum, er á sama tíma mundu hafa stuðlað hlutfallslega jafnmikið að líkamlegri velliðan og hreysti. Menning nútímans krefst af sérhverjum einstaklingi þjóðfélagsins, konu sem karli, meiri manndóms og voldugra hugarþreks en nokkru sinni fyr. Hin stórkostlegu iðnaðarfyrirtæki nútímans leggja hverjum borgara á herðar hundrað sinnum meira strit og þúsund sinnum víð- tækari ábyrgð en nokkurt einasta mannsbarn rendi grun í fyrir tiltölulega fáum árum. Alt þetta, að því þó viðhæitu, sem nú reynir svo mjög á þol manna — hið hörmu- lega ástand í heiminum — veldur því að margur missir móðinn, sökum vanrækslu við sál sína; ver t. d. kvöldstundunum til þess að drepa limann, í stað þess að nota þær til lesturs nytsamra bóka, og brynja sig með því gegn erfiðinu, sem morgundeginum er ávalt samfara. Hvíldartíminn er nauðsynlegur; en hver einasta mínúta verður eitruð hefndargjöf, sé henni ilia varið. Og eigi er unt að verja ver augnabliki, en með þvi, að brjóta heilann um það, hvernig skuli að því farið að drepa næstu minútuna! — Eigi ber það ósjaldan við, jafnvel á þess- um háalvarlegu tímum, að sjá má menn og konur kasta höndum að þýðingarmiklum störfum á heimilinu, til þess að komast í leikhús og bíó i tæka tíð, — minna hirt um, þótt heimilisstörfin, sem ættu að ganga fyrir öllu, sitji á hakanum eða biði morguns. Nokkuð mætti þó afsaka þessa háttsemi, ef fólk þetta sækti samkomur, sem haft gætu mentandi og fegrandi áhrif á hugarfarið, svo sem sjónleiki eftir beztu höfunda og fagran söng, En því miður á hið gagnstæða sér stað. — Fjölsóttustu leikirnir eru oft skrípa- læti, og það ærið ófögur, á kvikmyndaljald- inu, ekki ósjaldan, að sýndar eru beinlínis siðferðisspillandi myndir. Mandi ekki oftasi nokkru hlýrra og heil- nœmara við arineld heimilisins? Hugsandi maður metur heimilissæluna mest allra jarðneskra gæða, en sá er litt hugsar, setur kvikmyndahúsið skör ofar. Hugsandi maður ver kvöldstundunum heima hjá fjölskjddu sinni og les góðar bækur, eða dvelur þá í hópi siðsamra vina. Stefnulegsinginn hugsar upp öll möguleg ráð, til þess að koma klukkutímanum, sem fram undan er, fyrir kattarnef. Öll störf, sem manninum er trúað fyrir í lífinu, eru vandasöm. Þessvegna er það líka vandasamt að tesa. Það er stór vandi að velja bækur. Sá, sem les góðar bækur og blöð, þroskar andann, víkkar sjóndeildar- hringinn og nemur þá einu sönnu heimspeki, er að haldi kemur í baráttu tilverunnar, sem enginn getur umflúið. Við lestur góðra skáldsagna, fagurra kvæða, sögu, lista og vísinda, en þó fyrst og fremst við lestur Guðs orðs, brynjast hin fróðleiks- þyrsta sál gegn hinum margvíslegu örðug- leikum, sem morgundagurinn hefir í för með sér. Heimili bókelskra manna varpa frá sér hlýjum, skínandi geislum út í samfélagslífiö- í góðum bókum geymast göfugustu hugs- anir, göfugasta upplýsingarstarf mannsand- ans — arfurinn bezti frá kynslóð til kyn* slóðar. Blindur er lóklaus maður, segir máltsekið okkar gamla og góða. Vér íslendingar höfum til allrar hamingju verið lestrar og bókaþjóð, og til viöhalds þjóðerni voru hér í álfu1) þurfum vér að lesa og lesa góðar bœkur; lesa fyrst og fremst 1) Pessi grein er að mestu lckin eftir Lögbergi. Hún á er- indi einnig til okknr hér heima.

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.