Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.04.1920, Blaðsíða 5

Heimilisblaðið - 01.04.1920, Blaðsíða 5
HEIMILISBLAÐIÐ 53 útlöndum. Þeir andæfa ekki að eins Kristin- dóminum, heldur öllum trúarbrögðum. Þessi blöð eru tiltölulega lítill partur af blöðum Kínverja; allur þorri þeirra lætur, eins og áður er sagt, kristindóm og kristni- boð afskiftalaust. Ritstjórar þeirra trúa ekki lengur á óskeikulleik Konfúsíusar. Þeir hugsa sem svo, að kristindómurinn geti verið eins góður eða fyllilega það, og þeir gera sér far um að finna, bvað likt sé í kenningu Jesú og forna spekingsins þeirra. * * • * Fyrir þremur missirum voru ríkistrúarbrögð brennandi áhugamál í Kína. Öll böfuðblöðin í Shanghai réru öllum árum að trúarbragða- frelsi. Stjórnmálaflokkarnir eiga blöðin í Peking, svo að þau dansa eftir pípu þeirra. Sum þeirra fyrirdæma trúarbragðafrelsið, en önnur róa að því öllum árum, að það sé leitt í lög. * * * Hinn víðkunni leiðlogi kristinna manna i Kína V. P. Chon ritar meðal annars: Kristni söfnuðurinn í Kína gæti nú aftur orðið frumkvöðull að þvi, að skapa álit binnar fjölmennu þjóðar (400 miljóna) ef bann stofnaði 5 dagblöð í 5 herstjórnarstöðv- um, nefnilega í Shanghai, Peking, Tientsin, Ka'nton og Hankow. Kirkjufélögin ættu öll i sameiningu að gangast fyrir þessu og stjórna þessu fyrirtæki og leggja fram fé til þess. Það ættu að vera almenn dagblöð, sem þá aðeins styddu kristna skoðun, er sérstakt tilefni gæfist til þess. Eins og sjá má af þessu, þá er líka verið að rita og ræða um »kristileg dagblöð« í Kina, og róa að þvi, að þau verði stofnuð. Þeim, sem byggir á tilfinningum sinum og ier eingöngu eftir þeim, má líkja við seglskip, sem háð er sérstakri vindstöðu og kemst ekkert áfram án hennar. Sá, sem lifir í krafti trúarinnar. vinnur sig ^iram, þótt hann sjálfur verði þess ekki var. gr umskógarnir í porður- Jmcríku. Líf þeirra manna, sem hafast við í frum- skógum Norður-Ameríku, er eigi líkt lífi annara manna; það er stórfenglegt ævintýra- líf. f*að sýnir hvorttveggja i senn, að ferða- þrá manna er óviðráðanlega sterk og hverj- um hæfileikum þeir eru búnir til að gera sér náttúruna undirgefna með tækjum, sem oft og einatt eru næsta ófullkomin. Á síðustu áratugum hafa skógarnir, þvi miður verið stórkostlega eyddir. Það er nú fyrst fyrir fám árum, að augu frænda vorra vestan hafs hafa opnast fyrir því, að það borgi sig ekki að eyða skógunum. En ekki verður sannara sagt, en að þeim hafi verið eytt óþyrmilega. Nú fyrir 50 árum var það algengt næsta, að landnámsmenn ryddu lendur sínar með því að kveykja í skógunum og brenna þá upp til kaldra kola. Þeim þótti seint sækjast að höggva þá niður og þurftu heldur eigi á öllum þeim trjáviði að halda. Markað áttu þeir engan visan, þar sem þeir gætu selt hann; og engin leið var að flytja slika stór- viðu til nokkurs bæjar lengst ofan úr óbygð- um. En nú eru þúsundir bænda á sömu slóðum að planta skóg með ærinni fyrirhöfn á þeim svæðum, þar sem feður þeirra og forfeður létu brenna skógana. Frumskógarnir standa þó víða enn, svo sem í Montana, Oregon og Washington-ríki og norðvesturhluta Kaliforníu. En svo eru þeir höggnir gríðarlega, að nú er skipað með lögum að planta jafnmörg tré og feld eru. Skógarhögginu hefir fleygt svo fram nú síð- ustu árin, að miljónir trjáa eru feldar á ári hverju og fluttar burtu. Skógarnir eru ávalt höggnir sem næst stór- ám og fljótum. Búðir skógarhöggsmanna standa hundruðum saman við Spokane-fljót- ið og Kolumbíu-fljótið hið mikla, sem fellur út í Kyrrahafið. Væru ekki þessi fljót til að flytja viðinn þangað, sem járnbrautirnar liggja, þá yrði engin leið að flytja þá; að minsta kosti yrði flutningskostnaðurinn svo

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.