Heimilisblaðið - 01.06.1934, Page 4
86
HEIMILISBLAÐIÐ
setuliði ríkisins og lét loka öllum olíulind-
unum, þangað til olíuverðið væri orðið
hæfilega hátt. Og enginn blandaði sér i
það mál, því að þetta atferli ríkisstjóra
var að öllu samkvæmt lögum, því að ríkis-
lögin í Oklahoma taka það fram, að enga
olíu megi úr jörðu taka, þegar verð olíunn-
ar samsvari ekki raunverulegu gildi henn-
ar. Murray lét sér ekki nægja að loka ol-
íubrunnunum, með aðstoð setuliðsins, held-
ur skipaði hann vörð hermanna á brúna,
sem liggur milli Oklahoma og Texas-rík-
isins, til að hefta allan innflutning af olíu
til hreinsunarstöðvanna.
Tímaintin í Bandaríkjum eru sí og æ að
tala um persónuleg séreinkenni Murrays
ríkisstjóra. Þau segja að hann sé maður,
sem aldrei taki ofan á ríkisþinginu, skrif-
stofunni né heima. Þegar hann á annríkt,
hefir hann morgunmatinn sinn með sér
að heiman í bréfpoka. Það er honum yndi
og eftirlæti að leggja fæturna upp á skrif-
borðið sitt og aldrei ritar hann nafn sitt
undir skjöl, nema á hné sér. Þeim, sem
koma til fundar við hann, tekur hann með
nöldri og segir: »Nú, hvað er yður á hönd-
um?« og lætur þá svo frá sér fara með
þessum orðum: »Getið þér þá ekki hypjað
yður burtu, ég á svo annríkt.« Hann hefir
ótrú á öllum ríkismönnum, en brjóstgóður
er hann við fátæka. Aldrei gefur hann
sér tóm til að skemta sér eða lyfta sér
upp; en stundum má sjá hann á gangi
úti í garðinum sínum kl. 3 að morgni og
er hann þá að brjóta heilann um úrlausn-
arefni næsta dagsins.
En hið sanna er, að hann er einn af
hinum góðu og gömlu og heiðarlegu stjórn-
málamönnum. áafnvel óvinir hans játa, að
ráðvendni hans sé óvinnandi i>org. Har.n
hirðir ekkert um peninga og er nú fyrst
nýsloppinn úr skuldum sínurn. Fyrstu mán-
aðarlaunin sín eftir það, er hann tók við
ríkisstjórninni, varði hann til að byggja
hús yfir fátæka, þá er urðu að standa
og bíða hópum saman eftir matvæla-skömt-
um.
Bill er nú 63 ára gamall. Hann er bor-
inn og barnfæddur í Texas, í »kafaldsbyK
eins og hann sjálfur segir, og fór að heinr-
an tólf ára gamall. Kjör fátækra manná
þekkir hann út í æsar af persónulegi'i
reynzlu, hefir sjálfur verið á verðgangi og
orðið að basla fyrir lífinu.
Hann sá, að bráðnauðsynlegt var að afla
sér mentunar, ef hann ætti að verða að
manni, og svo las hann af kappi við vinnu
sína, hver sem hún var. En er hann hafði
náð háskólamentun, þá gerðist hann skóla-
kennari, ritstjóri og málaflutningsmaður.
Fór hann þá til nýlendu þeirrar, sem kend
er við Indíána, er það var hluti af hinu
núverandi Oklahomaríki, og gekk í flokk
Chickasaw-Indíána. Hann gerðist þá sak-
sóknari þeirra og kvæntist bróðurdóttui'
höfðingja þeirra, og þá tóku þeir hann
til samlags við sig.
Hann var nú önnum kafinn við að gera
samninga fyrir þessa Indíána; en jafn-
framt tók hann af kappi að kynna sér
stjórnarskipun og lög að fornu og nýju.
Þegar Indíánanýlendan var sameinuð Okla-
homa og það ríki stofnað 1907, þá var
Murray kosinn til forseta stjórnskipunar-
nefndarinnar. Og er hann hafði sjö utt
þrítugt, þá samdi hann aleinn stjórnar-
skipun hins nýja ríkis. Hann bauð sig Þa
fram til ríkisforseta, en náði ekki kosn-
ingu.
Hann var kosinn til að sitja á sambands-
þingi Bandaríkjanna 1912, en var feldur
frá kosningu 1916, og sömuleiðis 1918, ei’
hann reyndi að nýju að ná ríkisforseta-
tigninni.
Það leit svo út, að nú væri úti um frama
Bill Murrays. En æfintýralöngun hans var
sí og æ jafn lifandi. Tók hann sér þá fÖr
á hendur til Suður-Ameríku, til að freista
hamingjunnar þar.
Hann kyntist þá landnáms-skilyrðum 1
Bólivíu og fluttist þangað búferlum 1924
og sex aðrar fjölskyldur með honum til
að nema land; hafði hann vakið áhuga hjá
þeim á þessu máli. En fyrirtæki þetta fór