Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.06.1934, Page 6

Heimilisblaðið - 01.06.1934, Page 6
88 HEIMILISBLAÐIÐ DnalL QnjoLaJxálLiAiqi anas Shdldsaga eftir Albert M. Treynor. Vegna nýrra kawpemla. Yfirlit yfir það, sem bfiið er af sögunni. Fornfræðingurinn Geraint Caverley hafði ver- ið við fornmenjagröft 1 Tíbestí-fjöllunum í Mið- Afriku, er hópur af Túaregum réðist á hann. Fé- lagi hans, æfintýramaðurinn Carl Lontzen, hafði verið að leita að olíulindum. Hann sneri baki við félaga sínum og komst undan á flótta. En Túaregar tóku Caverley til fanga og seldu hann mannsali ræningjahöfðingjanum Tagar Kredd- ache. Eftir tveggja ára þrautir og þjáningar gefst Caverley loksins tækifæri til að strjúka og hitt- ir þá. á ferðamannalest, og fararstjóri hennar er þá hinn fyrnefndi Lontzen. 1 fylgd með hon- um er frænka hans, ung stúlka að nafni Boa- dica Treves að nafni (kölluð Bó). Lontzen hafði einmitt ætlað sér að reyna að hafa upp á Caverley og fá hann til að gerast leiðsögumaður hans 1 eyði- mörkinni áleiðis til olíulinda nokkurra í Tíbestí. Lontzen þykist öruggur á þessu ferðalagi og með öllu óhultur fyrir árás af Tagars hálfu, þar eð hann hefir með sér son Tagars, hinn unga Sídí Sassí, er hefir stundað nám í Norðurálfu árum saman, síðan hann var barn að aldri. Tagar Kreddache er ókunnugt um þetta og ræðst því á ferðamennina að næturlagi til að myrða þá og ræna. Sídíinn.fellur fyrir einni kúlu manna föður sins, og Lontzen verður dauðskelkaður og tekst að flýja undan á fóthvötum úlfalda. Aður en ræningjarnir ráðast á sjálfan tjald- staðinn, tekst Caverley að grafa sjálfan sig, Bó Treves og líkið af höfðingjasyninum niður í sand- inn, svo að ræningjarnir verða þeirra ekki varir, er þeir láta greipar sópa um iifangastaðinn. Caverley klæðir sig nú í hinn skrautlega bún- ing Sldíans, rakar skegg sitt og klippir á Ara- abavísu, lætur Bó klæðast fataleppum þræla- drengs, er hafði fallið, og svo halda þau á stað til tjaídbúða Tagars, og Caverley tekst að telja honum trú um, að hann sé sonurinn heimkomni, sem nú er orðinn fulltíða maður og vel að sér á margar hátt á hvítra manna vísu. Hin víggirta borg Tagars f eyðimörkinni heitir Gazim. Upp- áhaldskona Tagars, ung og glæsileg, Nakhla að nafni, þekkir Caverley aftur, en lofar honum samt því, að hún skuli ekki ljósta upp um hann, ef hann vilji drepa Tagar, áður en mánuður sé liðinn Tagar hefir frétt. að hvítur maður hafi sezt að hjá erfðaóvini hans, höfðingjanum Zaad f Khadrim. Tagar heldur að þetta sé strokuþræll sinn, en það er I rauninni Carl Lontzen. Tagar gerir nú út leiðangur til að ráðast á Zaad og ná þrælnum aftur. — — —■ Þessa nótt var ekki tjaldað öðru en hinu litla ferðatjaldi Tagars. Allir hinir vöfðu sig inn í kápur sínar og sváfu undir beru lofti — og blikandi stjörnum. Mansor og Caverley og Alí Móhab voru á fótum fyrir dögun. Bó Treves var líka komin á fætur. Síðan Bó hafði sagt Cav- erley það skýrt og skorinort, að hún myndi reyna að flýja, undir eins og tækifæri gæf- ist, hélt hann auga með henni seint og snemma. Hann hafði líka ásett sér að taka hana með í leiðangur þann, sem nú stóð fyrir höndum. Hún myndi auðvitað verða honum til mikils farartálma, og það hafði hann líka sagt henni, en honum þótti það öruggara að hafa hana nærri sér. Og þad var einnig bezt hennar vegna. Það var alt af áhætta við það að skilja hana eftir hjá Tagar og piltum hans. Alí Móhab hafði ekkert á móti drengn- um, en á hinn bóginn þótti honum það ein- kennilegt, að Sídíinn skyldi vilja hafa einka- þjón sinn með sér á þessháttar ferðalagi. og hann leyfði sér að láta undrun sína í ljósi yfir þessu. »Hvaða gagn er svo sem í drengnum?« spurði hann, er þeir voru ferðbúnir. »Eg er orðinn svo vanur því að hafa hann nærri mér, þegar of heitt er í veðri, og ég er of latur til að hafast nokkuð að sjálfur,« sagði Caverley og ypti öxlum. »Það er enginn hans jafningi í skegg-snyrt- ingu og þessháttar.« Alí Móhab var kominn á bak úlfalda sín- um. Hann tók fast í taumana og leit glott- andi um öxl til Caverley. »Þegar Sídíinn hefir eignast tvær — þrjár konur og er búinn að stúta fáeinurn óvinum, þá býst ég við, að hann fari að hirða minna um skeggið á sér.« Skömmu eftir að þeir voru riðnir af stað í sárbitrum morgunsvalanum, sneri Móhab sér við í hnakknum og mælti: »Ef við skyldum þurfa á tálbeitu að halda handa Zaad, þá getum við látið hann fá þenna litla náunga, sem er svo duglegur að greiða skegg!« — Njósnararnir voru vel ríðandi. Úlfaldar þeirra voru af hinu grannvaxna, háfætta kyni, sem að líkamsbyggingu minnir ofur- lítið á veðhlaupahunda. Þetta voru blá-

x

Heimilisblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.