Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.06.1934, Síða 14

Heimilisblaðið - 01.06.1934, Síða 14
96 HEIMILISBLAÐIÐ »Mér hefir liðið ágætlega,« svaraði Nancy. »Mér er sagt að þú ætlir að fara í kvöld.« »Já,« svaraði hún, »ég ætla að fylgjast með dr. Ferris til New York. Ég er nú búin að dvelja hér lengi — tvær heilar vikur.« »Þú hefir orðið fyrir vonbrigðum. Það er engin upplyfting í að horfa á björninn í búri sínu. Það hefði ég nú getað látið þig vita, ef þú hefðir gefið mér tíma til að svara bréfi þínu. Þetta hryggir mig. Ég vildi að ég hefði getað sýnt þér hetj- una — mér tókst það ekki. Ef til vill get- ur þú ekki trúað því, að mér hefir tekist að hafa meira vald á framkomu minni meðan þú varst hér en áður. Gagnslaust er að afsaka — eða gefa skýringar. Þú verður að taka mig eins og ég er. Þú áttir betri meðferð skilið. Ég hefi litlu við þetta að bæta, Nancy.« Þetta voru kveðjuorð hans til hennar. Þegar hún kom inn til að kveðja hann, var útlit hennar þannig, að það vakti hjá honum séi’staka vanþóknun. Aldrei haíði hún tekið eftir því, að samkomulag þeirra var betra, þegar hún var í inni-búningi en þegar hún var í úti-búningi. Ekkju- blæan, sem fór henni svo vel, en sem í hans vitund var einungis leikaraskapur, var eins og þyrnir í augum hans, og samkomulagið fór því alveg út um þúfur, þegar hún bar hana. Jafnvel nú, gat hann ekki að því gert að verða stífari í framkomu, þegar hún. birtist í dyrunum albúin til brottfarar. Hún staðnæmdist fyrir framan hann. »Vertu sæll, Lynn frændi,« sag'ði hún og horfði í augu hans. »Mér þykir leiðin- legt, hvað þú hefir verið hræddur við mig. Eg kom ekki til að aumkva þig — - ég hef enga meðlíðan með þér — eða, ef ég á að vera hreinskilin — þá mundi ég ekki aumkva þig hið allra minsta, ef þú gæfir mér ofurlítið tækifæri til að gera nokkuð annað fyrir þig. En það hefir þú ekki vilj- að gera. En ég held að þér gangi betur að ráða við sjálfan þig, ef þú gætir unt þér að njóta meira. Vertu sæll. Skyldir þú nokkurntíma kæra þig um, að ég kæmi til þín aftur, þá láttu mig vita. En vissulega á ég enga von á því. Nú — úr því ég býst ekki við að koma aftur —«. Hún beygði sig niður, og áður en hann vissi, hvað hún ætlaði sér að gera, var hún búin að kyssa hann á þunnu, sam- anklemdu varirnar. Eftir að hún var far- in, fann haún mjúkan þrýsting'inn af vör- um hennar á sínum, sem hvorki voru sam- anklemdar né þunnar, en sem voru eir.s og hún sjálf, hlýjar og unaðslegar. XIII. Nancy hugsaði með sjálfri sér á leið- inni á stöðina: »Auðvitað átti ég ekki að gera þetta. Hvernig sem því var farið, gat ég ekki að því, gert. Mér fanst ég \era móðir hans — veslingsins, bardagamanns- ins. Eða dóttir. Það var skylda mín að gefa honum eitthvað; annað gat ég ekki skilið eftir hjá honum. Ef til vill verðr.r honum erfitt að hugsa til, að ég komi aft- ur. Eða léttara — ekki gott að vitá hvort heldur. XIV. Doktor Lynn Bruce hugsaði með sjálf- um sér, þegar Nancy var farin: »Ö, Drott- inn minn! Því þurfti hún að taka upp á þessu? Eins og ekki væri við nóg að stríða samt, þó þetta þyrfti ekki að bætast við. Iivernig getur maður þolað að lifa, þegar alt er farið? Þessir bannsettir fífíar. Ég þoli þá ekki! Þeir hæðast að mér — þeir hæða mig — Pat — farðu burt með þessi blóm! - Jeg mundi ekki, að hann fór með henni á stöðina. Þá verða þeir að vera kyrrir.« XV. Patrick Spense sagði við frú Coon um kvöldið: »Það er eins og húsið sé autt, frú Coon.« Frú Coon svarar: »Autt, hvað segirðu? Bjánahátturinn er farinn úr þvi. Ég er uppgefin á að lykta stöðugt af þessu dufti og þessháttar rusli.« Pat: »Ég fann aldrei þessa duftlykt. Það ilmaði af yndisleik og góðleik.« Frú Coon: »Skyldi hún þér eftir nokkra peninga?« Pat: »Það'gerði hún. En hún skildi mér eftir annað betra — endurminninguna um sig.« Frú Coon: »Heldur kysi ég peningana hennar en endurminninguna um hana. Altaf þetta, að reyna að fara í kringum hann. Ég hefði nú getað sagt henni, að það hefði nú ekki mikla þýðingu.« Pat: »En hún fór nú samt í kringum hann, ha, ha!« Frú Coon: »Hvernig dettur þér það í

x

Heimilisblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.