Alþýðublaðið - 28.04.1923, Qupperneq 2
2
ALÞYÐUBLAÐIÐ
Alþpnlraðaerðin
Munið að panla
Kökur og Tertur
tíl fes’mingarismas* í fæka tíðl
ÍfflHT Alt af bezt í Aiþýðubpauðgerðmsi. ’-^gBjg
íslenzkt smjðr og ega
hezt hjð Kanpfélaginn.
Hver viil rétta
hjálpafhBnd?
Reykvíkingar hafa orð á sér
fyrir hjáipseíni, og er sjaldan
árangurslaust til þeirra leitað um
samskot til bágstaddra JÞví hug-
kvæmdist mér, að verið gæti, að
einhverf viidi hjálpa tjölskyldu
þeirri, sem hér segir frá, ekki
um peninga, heldur um húsnœði
með sæmilegu verði.
Fyrir nokkuð löngu siðan skrir-
aði einn af læknum bsejarins grein
um húsnæðisvándræðin hér í bæn-
um. Vakti sú grein mikla eftir-
tekt. Lýsti hann þar íbúð þess-
arar fjölskyldu, en hún býr þar
enn og hefir verið þar í 4 */2 ár.
Hún býr í norðurherbergi í nið-
urgrötnum kjaliara. Það er 4 x/2
og 4^/4 álnir og 3 álnir undir loit.
En skorsteinn og kióakpípa, sem
eru 'i herberginu, taka töiuvert
af þessu rúmi. Þarna búa hjón
með 6 börnum á 3—14 ára aldri;
sjöunda barnið hafa þau látið
frá sér, af því þau komu því
ekki fyrir, en eitt barn hafa þau
mist. Maðutinn er í siglingum
og kemur ekki heim nema fáa
daga með löngu millibili.
Menn geta ímyndað sér þreng-
slin, þegar búið er að búa um.
Elzti drengurinn sefur á gólfinu
milli rúmsendans og kommóð
unnar, og er það bil að eins 16
þuml. breitt, en fæturna hefir
dreogurinn nndir ofninum, sem
verður þó að leggja í, þegar ka]t
er. Vatnsrör liggja um loftið í
herbergi þessu, og lekur alt af
af þeim, þó sí og æ séu þau
þurkuð, en konan vill ekki veíja
þau tii þess að forðast vonda
lykt, sem af því leiddi. Glugg-
arnir eru svo grautfúnir, að ó-
mögulegt er að opna þá; rennur
vatn einatt inn í þá og niður í
gegn um fúnar kisturnar og undir
gólfið, sem er fúið og heþr verið
bætt með pjátursplötum. Slagi er
svo mikill, að rúmbotninn og
madressurnar hafa orðið ónýt, og
er þetta þó alt af tekið alveg
upp, þegar búið er um. Vatn er
leitt inn í herbergi þetta, og er
kraninn yfir höfðalagi á legu-
bekk, sem tvö börn sofa á, og
getur hver kona hugsað sér,
hvað það muni vera þægilagt.
Það má nærri geta, hvað kalt
er í þessu herbergi, þar sem
aldrei sér sól.
Konan eldar á »pritnus< í
gluggalausri kompu, sem er svo
lítil, að naumast verður komist
inn í hana, en alt skólp ber hún
út í rennu i götunni.
Kona þessi er kunn að þrifn-
aði og myndarskáp, og bera
börn hennar vott um það. Eng-
inn þarf að óttast að hýsa haná
þeirra hluta vegna, og er óhætt
að fullyrða, að hjá henni yrði
betri umgengni en hjá mörgu
barnlausu fólki og húsaleiga
skilvíslega greidd. Ein telpan
hennar hefir haft veika brjóst-
kirtla og verið á spítala sér til
heiisubótar, en orðið að fara
heim aftur í þessi hýbýli. Sagði
iæknirinn, að konan yrði annað-
hvort að leysa upp heimilið eða
útvega sér betra húsnæði. Hing-
að til hefir henni ekki tekist að
fá það, enda á einyrkjakona, sem
á að sjá um 6 börn, erfitt með
að leita uppi húsnæði, en mað-
urinn er sjaldan og stutt heima,
og enginn virðist vilja leigja
þeim, sem eiga mörg börn.
Er nú enginn í allri Reykja-
vík, sem getur leigt þessari
konu? Þeir, sem þiggja af sveit,
eiga þar sitt neyðarathvarf og
eru látnir sitja fyrir húsnæði
þvf, sem bærinn á ráð á. En
hvers eiga þeir að gjalda, sem
eru að berjast við að koma upp
stórum barnahópi án þess að
ieita ti! sveitarinnar? Þó lækn-
árnir kvarti og heilbiigðisíull-
Afgreiðsla
blaðsÍDS er í Alþýðuhúsinu við
Ingólfsstræti.
Sfmi 988.
Auglýsingum sé skilað fyrir kl. 8
að kveldinu fyrir útkomudag þang-
að eða í prentsmiðjuna Bergstaða-
stræti 19 eða í síðasta lagi kl. 10
útkomudaginn.
Áskriftargjald 1 króna á mánuði.
Auglýsingaverð 1,50 cm. eindálka.
Ústölumenn eru beðnir að gera
skil afgreiðslunni að minsta kosti
ársfjórðungslega.
trúinn mæli, þá situr við samá
keip.
Þeir, sem lesa þetta, mega
trúa því, að þessi frásögn er
ekki ýkt, og alþýðan veit, að
það er iangt frá því, að þetta
sé einsdæmi. Ég ætla ekki að
fjölyrða um kjör þessarar konu,
en vona, að einhver, sem húsum
á að ráða, finni svo til þeirra,
að hann Jáni henni betra húsa»
skjól með því verði, sem henni
væri ekki ókleift að borga. Þessi
hýbýli eru ekki dýrum hæf,
hvað þá barnafólki.
Afgreiðsla biaðsins gefur nán-
ari upplýsingar. Kona.
Naáturlæknír í nótt Konr. R.
Konráðsson, Þingholtstræti 21,