Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.09.1948, Síða 6

Heimilisblaðið - 01.09.1948, Síða 6
146 HEIMILISBLAÐIÐ HALLDÖR SIGURÐSSON: Sofandi barn Hver blundar svo rótt og blítt í húmi nœtur? Barniö mitt, þú sefur vœrt í nótt. En úli vakir einhver sem a'ö grœtur örlög sín, barniö mitt------en sofSu rótt, því yfir þér vakir ástarstjarnan bjarta, og augu mild þín gœta, vinur minn. Og auömýktin, sem er í þínu hjarta opnaö getur sjálfan himininn. Pig dreymir barn mitt .. . Blika í noröurljósum bláar stjömur næturhimni frá. Þaö fellur niöur regn af hvítum rósum á rúöu litla stokknum þínum hjá. Og í dýrö, sem aöeins draumalönd þín geyma droltning nœturinnar hljóölátt fer og opnar hulda œvintýraheima, sem aöeins voru byggöir handa þér. Hún kémur til þín, hvítar rósir anga, og krýpur engilbjört viö stokkinn þinn, þrýstir mjúkum koss á munn og vanga og mildar hendur strjúka þér um kinn. Hún hvíslar aö þér. — Hvíl í örmum mínum. Aö kynjaströndum nýjum ]>ig ég ber ... Ó, barn mitt góöa, gleym ei draumum þínum. — Geym œvintýriö vel í brjósti þér. Eftirtektarvert er það', að táknið stendur alltaf í dularfullu sambandi við vatn. I Egyptalandi trúðu menn því, að Osirts notaði krossmerkið til að kalla fram hina ár- legu vatnavexti x Níl, en þeir höfðu stórkost- lega þýðingu fyrir afkomu alls landsins. Þa var krossmerkið táknmynd fyrir babylonisku regnguðina og fyrir þá guði í Mið-Ameríku, sem létu rigna yfir bitabeltisbéruðin. Fornnorræna krossmerkið, lianiar Þórs, var einnig táknmynd fyrir þrumur og eldingar, sem voru samfara regni. Leiti maður að uppruna þessa gamla tákns, sem hefur verið tignað og tilbeðið í liinuxn gamla og nýja Iieimi, er ekki fjarri sanni að álíta, að það sé komið frá ættlandi menn- ingarinnar, landinu, sem sökk í sæ, " Atlentis. Paradís Grikkja, „garður Hesperidesar , átti að vera í vestri „í liafinu bak við súlur Heraclesar“ (Gíbraltar). Sama var að segja um paradís Norðurlandamanna, „Ásgarð“. Fólkið trúði því að til væri frjósamt og gott land. Þar „draup mjör af liverju strai » og þar voru aldrei þurrkar eða kuldar, held- ur eilíf sumur og sæla. Platon segir ýtarlega frá fegurð og menn- ingu sokkna meginlandsins í Atlantsliafi. Þa<) er hverjum og einum í sjálfsvald sett, hversti miklu hann trúir af þessum ævintýraleg11 frásögnum, sem færðar voru í letur mörgum öldum fyrir Krists burð. Þó að ritgerð þessi geti ekki orðið lengr* vegna takmarkaðs rúms í blaðinu, hefur hun ef til vill orðið nógu löng til að sannfmra lesandann um, að sögnin um Atlantis hvíbr á traustum grunni, og ]>að séu miklar líkur fvrir því, að meginlandið, sem sökk í sæ " hafi verið til. Kennarinn: — Úr hverju er jöráin sköpuð? Lítil stúlka: ■— Engu. Kennarinn: — Rétt — og livaiV er ekkert? Þögn. Kennarinn: — Núnú? Litla stúlkan: — Ekjeert er jafn dásanilegt skennntiganga í tunglsskini.

x

Heimilisblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.