Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.09.1948, Blaðsíða 14

Heimilisblaðið - 01.09.1948, Blaðsíða 14
154 heimilisblaðið Englandi. Það fór um mig kuldalirollur, er ég leit á liann; ég fann til ógleði, skjálfta og ills hugboðs. Hvað var það, sem litli klæð- skerinn sagði? Að ég ætti — en hvað var þetta, hann þekkti þetta ekki. Hvað þekkti hann til slíkra hluta? Ef ég léti hér staðar numið, vrði ég að drepa mann á hverjum degi eða flýja úr veitingahúsinu og París að öðrum kosti, og deyja úr hungri. — Ég bið vður mikillega afsökunar, sagði ég alvarlega, um leið og ég dró sverð mitt úr slíðrum og tók mér stöðu. — Hann var að rukka mig. Mér þykir fyrir því, að mann- fýlan skyldi hremma mig, þegar svona illa stóð á. En nú getum við byrjað, ef yður þókn- ast. Hann heilsaði, og við brugðum sverðunum og byrjuðum. En ég vissi strax frá upphafi, liver úrslit leiksins mundu verða. Hann stóð að vísu dálítið betur að vígi en ég, vegna sleipunnar og myrkursins, en ég hafði ekki fyrr bægt frá mér fyrsta lagi lians en ég vissi, að liann var enginn skylmingamaður. Hann hafði kannske notið tíu til fimmtán kennslustunda í skylmingum, og síðan æft það sem hann hafði lært með einhverjum Eng- lendingi, þungum og klaufalegum, eins og hann var sjálfur. önnur var kunnátta hans ekki. Hann gerði nokkrar æðisgengnar, klaufa- legar árásir og þverbrá í sífellu. Þegar ég hafði gert þennan bægslagang hans að engu, var ég úr allri liættu og hafði hann alveg á yaldi mínu. Ég skylmdist dálitla stund við hann og horfði á svitann spretta fram á enni hans og andlit hans hverfa lengra og lengra inn í skuggann af kirkjuturninum, eins og það væri skuggi tortímingarinnar, sem væri að svelgja hann í sig. Guð veit, að ég dró þetta ekki á langinn af grimmd, því ég hef aldrei hneigzt til þeirrar villu, lieldur fann ég nú í fyrsta skipti á ævinni, að ég var kynlega ófús að veita banastunguna. Lokkarnir loddu við enni hans; liann tók andann á lofti; ég heyrði mennina hak við mig tauta og einn eða fleiri hölva; og þá rann ég — rann, og skall endilangur á hægri hliðina, og oln- hoginn rakst svo óþyrmilega á gangstéltar- hrúnina, að allan mátt dró úr handleggn- um fram í úlnlið. Hann nam staðar. Ég heyrði margar radd- ir hrópa: — Þama, nú er hann á yðar valdi! En hann stóð kyrr. Hann hafði stigið aftur á bak og beið. Hann gekk upp og niður af mæði og hélt sverðinu tilbúnu, þangað til eg var staðinn upp aftur og hafði tekið mér stöðu. — Nú er nóg komið! Nú er nóg komið! kallaði ómjúk rödd á bak við mig. — Þer gerið manninum ekki mein eftir þetta. — Viðbúinn, herra minn! sagði ég kulda- lega, því hann virtist vera á báðum áttum- -— Þetta var óheppni. Það skal ekki konia fvrir aftur. — Svívirða! hrópuðu nú margar raddir og ein kallaði: — Bleyða! En Englending- urinn steig áfram og blá augu lians voru ákveðin. Hann tók sér stöðu, án þess að segja nokkurt orð. Ég las það í fölu og teknu andliti lians, að hann var viðbúinn liinu versta, og ég dáðist svo að liugrekki hans, að ég hefði feginn viljað geta sett einhvern áhorfendanna — hvern sem vera skyldi af áhorfendunum — í spor hans, en það var ekki hægt. Ég liugsaði því um, að veitingalius Zatons mundi verða mér lokað, ég hugsaði um móðgunarorð Pombals, um glottið og lít- ilsvirðinguna, sem ég liafði svo lengi orðið að þola; og við þessar lnigsanir varð ég svo ofsareiður, að ég gerði skjmdiárás, renndi sverðinu yfir vörn hans, sem var orðin htil- fjörleg, og stakk hann í brjóstið. Þegar ég sá hann liggja þarna á steinstett- inni, fallinn, með hálflokuð augun og gljé" andi andlit í skímunni, fann ég til samvizku- bits, sem ég átti ekki að venjast. Ég sá hann aðeins sem snöggvast, því á næsta augnabliki hafði hópur manna kropið niður í kring um hann. En þessi tilfinning hvarf á svip- stundu, því allt í kring um mig sá ég reiði- leg andlit manna, sem stóðu álengdar og hvæstu að mér, bölvandi og ógnandi, og kölluðu mig Svarta morðingjann og öðrum slíkum nöfnum. Þetta voru mestmegnis lægri stéttar menn, sem höfðu þyrpzt að, meðan á einvíginu stóð, og horft á það sem fram fór liinum megin frá grindverkinu. Sumir þeirra urruðu a mér eins og úlfar og kölluðu mig slátrara og launmorðingja eða hrópuðu, að Berault væri enn einu sinni farinn að stunda uppáhalds- iðjuna sína; aðrir hótuðu mér liefnd kardín- álans, minntu mig á tilskipunina gegn em-

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.