Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.05.1972, Qupperneq 7

Heimilisblaðið - 01.05.1972, Qupperneq 7
„Hvaðan eruð þér?“ spurði Diana. , Frá Suður-Ameríku. Ég hefi starfað þar á stórri hestauppeldisstöð.“ „Hafið þér einhver meðmæli? “ ,Nei, því miður. Það er ekki venja að gefa meðmæli í Argentínu. Meðmæli geta líka verið fölsk, en starf manns sannar bezt getu hans °g kunnáttu." Diana leit á hann dálítið undrandi. „Þetta getur rétt verið,“ sagði hún, ,,en í hreinskilni sagt hafa fimmtán þegar sótt um starfið, en enginn þeirra viljað það, vegna þess, að ég hefi ekki efni á að greiða venju- leg laun.“ .Vesalings stúlkan,“ hugsaði John, en upp- hátt sagði hann: „ Hvað hafið þér marga menn í hesthús- unm?“ „Engan,“ svaraði Diana. „Ég hefi reynt að vinna þetta allt sjálf, en það er mér ofviða. ‘ John leit undan, til þess að hún sæi ekki vorkunnsemina í augum hans. , Hvaða laun bjóðið þér?“ spurði hann. „Þegar ég segi yður það, takið þér áreið- anlega til fótanna,“ sagði Diana. „Ég get að- eins greitt 35 krónur á viku og ókeypis hús- næði.“ „Það er prýðilegt. Ef þér haldið að þér get- ið notað mig vil ég gjarnan fá starfið." Diana leit snöggt á hann. „Gott,“ sagði hún stuttaralega. „Þér eigið að búa i litla húsinu, sem þér sjáið þarna fyrir handan. Ég vona að yður falli starfið vel.“ Næsta morgun tók John til starfa, eftir að hafa sótt farangur sinn, og komið sér fyrir. Hann og Diana skiptust ekki á mörgum orð- Urn, en unga stúlkan gat ekki leynt því, að hún var hrifin af að hafa fengið svona duglegan hunnáttumann í hesthúsin. Hún fann að það var henni mjög erfitt að vera eigandi að land- areign feðra sinna, því eftir dauða föður síns, varð hún að greiða háan erfðaskatt, fyrir utan onnur gjöld. Lögfræðingur hennar hafði marg- °ft ráðlagt henni að selja búgarðinn, en Diana Sat ekki slitið sig frá bernskustöðvum sínum. Éún áleit að hún gæti grætt fé með því að ala upp og selja hesta, en skattar og skuldir urðu ekki greitt nema í reiðufé. Þegar nábúi Diönu, Amold Baxter, hafði hoðist til að lána henni 80.000 krónur, gegn veði í eigninni, hafði hún þegið það. Baxter hafði alla tíð verið framúrskarandi vingjarnlegur við Diönu, og hún hafði vanizt á að líta á hann sem velgjörðamann. En í seinni tíð hafði framkoma hans orðið önnur. Hann var farinn að sýna henni ástleitni. en þegar Diana brást hin versta við öllu slíku, greip hann til þess ráðs, að minna hana á þá fjárhagshjálp, sem hann hafði veitt henni. Næsta skipti sem hann kom til Selcombe Grange, og gerði boð fyrir hana, neitaði hún að tala við hann, og nú gekk hún með stöð- ugan ótta við að hann kæmi og kræfist endui- greiðslu skuldarinnar. „En ég skal berjast þar til yfir lýkur,“ sagði Diana harðákveðin. Gorridge komst fljótlega að því, að Diana átti í miklum erfiðleikum. Dag einn, þegar hann hafði lokið vinnu sinni í hesthúsunum, rakst hann á lítinn, skorpinn karl sem var að koma heiman frá húsunum. „Gott kvöld,“ sagði sá ókunni smeðjulega. John kinkaði kolli. „Gott kvöld. Hvert er erindi yðar?“ „Ég er nú ekki velkominn gestur,“ var svar- ið. „Ég heiti Blawn og kem frá Crawthorn & Co. með reikning upp á 1.700 krónur, fyrir korn. Ungfrúin getur ekki borgað reikninginn. Ég var að tala við hana, og ég sagði henni að ég færi ekki fet héðan, fyrr en ég fengi pen- ingana.“ John leit í kringum sig. „Bíðið þér augnablik,“ sagði hann, og hljóp yfir að litla húsinu, þar sem hann bjó. Fimm mínútum síðar kom hann til baka og rétti manninum ávísun fyrir 1.700 krónum. „Hér eru peningarnir,“ sagði hann. „Gjörið svo vel og látið mig fá kvittunina." Sá ókunni starði forviða á hann „Hver i ósköpunum eruð þér?“ „Ég er hestasveinn ungfrú Orbridge." „Hvernig á ég að vita að það sé innistæða til fyrir þessari ávísun?“ John steig skrefi nær honum. „Ef yður er annt um beinin í skrokknum á yður fáið þér mér kvittunina á stundinni," sagði hann ógnandi. ,Og forðist það, að segja ungfrúnni frá því að ég hafi greitt þennan reikning.“ Sá horaði hraðaði sér að ná í kvittunina og rétta honum hana. „Þér eruð sá furðulegasti hestasveinn, sem Heimilisblaðið 95

x

Heimilisblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.