Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.05.1972, Blaðsíða 12

Heimilisblaðið - 01.05.1972, Blaðsíða 12
» VALID * Þungamiðja þessarar sögu, eftir Janet Gordon, er afbrýðisemi manns og ást konu. Eftir Janet Gordon „Þetta er hamingjan," hugsaði Nancy. Trén í rökkrinu, himininn baðaður í millj- ónum ljósa stórborgarinnar, svanirnir, sem hljótt og virðulega bárust hægt eftir síkinu. Allt þetta þekkti hún, en samt var eins og hún sæi þetta nú í fyrsta sinn. Henni brá, þegar maðurinn við hlið hennar sneri sér skyndilega að henni. Þau voru á gangi í garðinum, þar sem hún hafði gengið með Andrew Morrison á hverjum sunnudegi í seinni tíð. Hún leit á hann. Andrew hafði í huga sínum undirbúið langa ræðu, sem hann ætlaði að halda yfir henni en hann sagði ekki annað en nafn hennar: „Nancy .... “, og svo var hún í faðmi hans. Þetta var fyrsti kossinn þeirra, og hann gat aðeins hvíslað: „Nancy. .. . ó, Nancy.“ „Þetta er dásamlegasta augnablik lífs míns “ svaraði hún blíðlega. Andrew faðmaði hana svo fast að sér, að hana kenndi til. Svo sagði hann lágt: „Er þetta satt?“ „Já, það er satt.“ Þau kysstust aftur, og hún tók höfuð hans milli handa sinna og horfði á hann. „Þú mátt trúa mér þegar ég segi þér nú, að tilfinningar mínar til Philips, allt sem var á milli mín og hans, því er lokið-----algjör- lega lokið.“ Hann hrukkaði ennið, en hún hélt áfram. „Skilurðu ekki að það bezta sem við gerum, er að tala út um þetta. Þú veizt vel, að ég var einu sinni hrifin af Philip. Það vissu allir a Og nú les ég hér í blaðinu, að tveim rúm- enskum læknum, hafi tekiztað lækna heila- blæðingar, með því að sprauta í þá blóði úr malaríusjúklingum. Sé þetta satt, er þetta stórtjón fyrir viðskiptagrein okkai. skrifstofunni, og ég skammast mín ekkert fyrir það,“ sagði hún ákveðin, þegar hann gerði tilraun til að færa sig frá henni. ,Þú verður að skilja, að ég var hrifin af Philip, og hefði hann verið öðruvísi, hefðum við getað orðið hamingjusöm. En nú er það að- eins einn maður í öllum heiminum sem ég virði og treysti algjörlega í einu og öllu. Aðeins einn maður, sem mér finnst fullkom- inn eins og nokkur getur verið, og það ert þú.“ Með tárin í augunum bætti hún við: „Elsku, hjartans vinur. Láttu ekki þennan skugga vara á milli okkar, þegar ég elska þig svona heitt — elska þig af öllu mínu hjarta.'1 Hún bæði hló og grét, þegar hann þrýsti henni aftur að sér. Varir þeirra mættust aft.ur og hann hvíslaði ljúfum orðum í eyra henni og sagði, að hún væri ástin hans og allt hans líf. En samt sem áður var hún ekki örugg með að hann tryði henni. Hafði hann losað sig við tilhugsunina um fortíðina, eða mundi hann aldrei geta gleymt henni? Ó, þetta var til- gangslaust og skammarlega óréttlátt, ef að þessi skuggi átti að fylgja henni gegnum allt lífið. Hún hafði ekkert gert sem hún þurfti að álasa sig fyrir. Þau leiddust gegnum garðinn. Hún gat ekki látið vera að halla kinn sinni öðru hvoru að öxl hans, eins og til þess að sækja þangað styrk, traust og öryggi. Þau fóru að tala um framtíðaráform þeirra. Brúðkaupið vildu þau halda sem fyrst. Þau Því sjáðu til. Það eru aðeins brjálaðar mannsekjur, sem virkilega hafa vit á að kaupa málverk." ★ 100 HEIMILISBLAÐIÐ

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.