Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.05.1972, Síða 16

Heimilisblaðið - 01.05.1972, Síða 16
Nancy sat og hélt í hönd Philips. Hann lá með lokuð augun. Það var þögult og hálf- rokkiið í sjúkrastofunni. Frá stólnum gat Nancy séð út gegnum gluggann, þar sem ljós- kerin og húsþökin teygðu sig upp í dökkan næturhimininn. Skömmu síðar voru dyrnar opnaðar og maður gekk inn að skerminum. Nancy leic upp. Þetta var faðir Philips. Hann heilsaði þegjandi og setti sig á annan stól við rúmið. Tíminn sníglaðist áfram. Það kom læknir og þreifaði á slagæð sjúklingsins og sprautaði hann í handlegginn. Öðru hvoru beygði faðir Philips sig fram og horfði á meðvitundar- lausan son sinn. Það fór að birta til utan við gluggann. Svo var slökkt á götuljósunum, og um sama leyti slokknaði einnig lífsljós Philips. Þau stóðu niðri í anddyri sjúkrahússins, faðir Philips og Nancy. Hann er bugaður maður, hugsaði hún, og minnti nú ekki á hinn stranga og virðulega forstjóra á skrifstofun- um. ,Þér eruð góð kona. Aðeins góð kona hefði komið hingað eftir allt sem á undan er geng- ið.“ Hann þagnaði augnablik og stundi við. „Við höfum verið óvinir, sonur minn og ég, í meira en ár. Hann kom aldrei heim.“ Nancy skildi hvað hann meinti. Það var auðvelt að leiða hinn veiklundaða son hans út í ýmislegt — og faðirinn sjálfur ósveigjan- legur. Það hafði aldrei ríkt skilningur milli þeirra, og engin ástrík móðir til að lægja öldurnar og bera sáttarorð milli þessara ólíku feðga. Faðir Philips leit skyndilega framan í hana. „Mér yfirsást einnig hvað yður snerti. Hann elskaði yður og þér voruð góð kona. Ég hefði átt að láta hann kvænast yður. Þá væri hann vafalaust á lífi nú.“ Nancy lagði hendi sína varlega á handlegg hans, en hún var ekki hrædd við hann lengur. Henni fannst sem hún mundi aldrei óttast neitt héðan í frá. Auðæfi og hroki mundu aldrei framar blinda augu hennar fyrir líð- andi og stríðandi mannverum. „Það held ég ekki. Ég álít að enginn geti haft svo sterk áhrif á aðra manneskju að það geti gjörbreytt eðli hennar.“ „Ég hefði getað gert það,“ sagði gamli 104 maðurinn og laut höfði. Ég hefi alla tíð verið of strangur við son minn. Ég krafðist þess að sonur minn væri eins og ég sjálfur. En nú skil ég, að það er ekki hægt að gera sömu kröfur til annarra og maður getur gert til sjálfs sín. Kringumstæðurnar eru oft svo breytielgar að maður verður óréttlátur. Ég elskaði drenginn minn, en hann vissi það ekki — fann það ekki.“ Það eru til sorgir, sem ekki er hægt að gera léttbærari, og Nancy gekk hljóðlega út úr anddyrinu. Sólin skein glatt þegar hún kom út fyrir hina stóru vængjahurð sjúkrahússins. Hún nam staðar augnablik og andaði að sér fersku morgunloftinu. „Maður, sem beðið hafði fyrir utan sjúkra- húsið klukkutímum saman, gekk til hennar. „Nancy, ég skammast mín. Ég var afbrýði- samur, en því vil ég loía þér, að það skal aldrei framar verða.“ Þetta var Andrew. Hún sá að hann var samkvæmisklæddur undir frakkanum. Hún vissi að hann hafði ekki getað lagst til svefns. Hann var órakaður, en einhver nýr blær í and- litsdráttunum. Það var sálarfriður. „Þú þarft heldur ekki að hafa ástæðu til þess framar. Hann er dáinn.“ Svo kastaði hún sér grátandi í faðm hans og fékk þar útrás sorg sinni og örvæntingu. Síðan leiddust þau burt eins og tvö börn. „Ég elska þig,“ sagði Andrew hátíðlega. „Og ég elska þig,“ svaraði hún. Báðum fannst þeim þessi margtöluðu orð hefðu fengið nýja og dýpri þýðingu. Þú ert góður og hlýr. Þú bit- ur mig ekki? HEIMILISBLAÐIÐ

x

Heimilisblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.