Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.05.1972, Síða 19

Heimilisblaðið - 01.05.1972, Síða 19
NATALIA Framhaldssaga eftir Jennyfer Ames Systirin þagnaði og horfði skelfd á Natalie. ..Systir Natalie. Hvað er að yður? Eruð þér veik?“ Natalie gat engu svarað. Hún hné niður á gólfið. Skerandi hræðsluóp systur Garsons, fékk Bob til þess að líta upp. Hann sá strax, að ein af hjúkrunarkonunum hafði sýnilega fallið í yfirlið, og hraðaði sér yfir í hornið, þar sem Natalie lá á gólfinu. „Hvað er að, systir?“ spurði hann lágt. ,Ekkert alvarlegt, herra Bradburn. Það leið yfir einn hjúkrunarnemann. Ef til vill er hún ofþreytt. Ég skal ná í vatn .. . “ Meðan hún hljóp eftir vatni kraup Bob niður við hlið Natalie og lyfti höfði hennar. Við það rann hvíti, stífaði kappinn af höfði hennar. Hann sá nú kastaníubrúnt hárið og formfagra andíitsdrættina. ..Hvað .. . Natalie, Natalié litla, hálf hróp- aði hann. Um leið fann hann eins og straum af gleði fara um sál sína. Hann starði ákafur °g athugull á andlit hennar. Natalie opnaði augun og brosti. „Doktor Brad.“ hvíslaði hún. Nú kom systir Garson með vatnið, baðaði enni hennar og gaf henni ofurlítið að drekka. „Þetta líður hjá eftir augnablik, herra Brad- burn,“ sagði hún. „Tefjið yður ekki lengur. Þetta var mjög nærgætið af yður.“ Hann stóð á fætur. ,Viljið þér vera svo góð- ar, að senda systir Norris inn til mín, þegar hún hefur jafnað sig. Ég verð á skrifstofu f ramkvæmdast j órans. “ Systir Garson varð undrandi, en gerði engar athugasemdir. Þegar hann var farinn, hjálpaði hún Natalie á fætur. „Heyrðuð þér hvað hann sagði? Herra Brad- burn vill tala við yður í skrifstofu fram- hvæmdastjórans.1 »Ég heyrði það,“ hvíslaði Natalie, lágri, óstyrkri röddu. „En ég ... ég held að ég fari ekki. Annars líður mér ágætlega." „Þér ættuð að fara. Eftir smá stund hafið þér jafnað yður alveg. Það kom fyrir, að það leið yfir mig, þegar ég var yngri. Það er ekkert alvarlegt, og fyrst herra Bradburn vill tala við yður, væri það heimskulegt að gera það ekki. Þér ljúkið senn námi hér . . . og skurðlæknir getur hjálpað hjúkrunarkonu á ýmsan hátt. Fyrst hann kvænist ríkri konu, fær hann sér sjálfsagt aðsetur í Harleystræti, og verður einn af þeim fínu. Hann getur ef til vill út- vegað yður gott starf. Já, það væri heimsku- legt af yður, að fara ekki og tala við hann.“ „Jæja, ég skal fara,“ sagði Natalie og strauk hendinni þreytulega yfir ennið. Hún gerði það ósjálfrátt því hún vissi naumast hvað hún sagði, eða gerði. Hún hugsaði um það, sem systir Garson hafði sagt. Að doktor Brad . .. doktor Brad hennar ætlaði að kvænast. Kvæn- ast Marjorie Daw, ungu stúlkunni, sem hún hafði séð heima hjá honum, kvöldið eftir dauða Beste. Stúlkunni með ljósa hárið, sem virtist næstum hvítt, og sérkennilegu, græn- leitu augun, fallegu, glaðværu stúlkunni, sem hafði kallað hann kærasta og sagst hafa kcmið til borgarinnar, til þess að vera hjá honum. „Líður yður betur núna, systir Norris?“ „Já ... já, þakka yður fyrir,‘ flýtti hún sér að svara. „Nú er allt í lagi. Ég ætla að fara niður til herra Bradburn strax ef þér getið verið án mín,“ bætti hún rólega við. Bob stóð við gluggann, þegar Natalie kom inn. Hann sneri sér samstundis við, brosti og rétti henni báðar hendurnar. „Natalie. Mikið ert þú orðin breytt. Ég ætl- aði varla að þekkja þig.“ „Auðvitað hefi ég breytzt," svaraði hún og endurgalt bors hans. „Þú gast varla búist við HEIMILISBLAÐIÐ 107

x

Heimilisblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.