Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.05.1972, Qupperneq 20

Heimilisblaðið - 01.05.1972, Qupperneq 20
því, að ég væri ennþá með gömlu flétturnar mínar.“ „Það er ekki eingöngu það. Þú ... “ Hann þagnaði snögglega, því hann var næstum búinn að segja: „Þú ert svo framúrskarandi falleg." En í stað þess bætti hann við: „Þú er orðin fullþroskuð stúlka.“ En fallegu, vingjarnlegu augun hans, sáu fleira en það, þótt þau virtust ekki horfa beint rannsakandi á hana. Þau sáu að andlit hennar, sem nú hafði jafnað sig, var svo forkunnar fagurt, að honum kom ekki annað orð í hug, til þess að lýsa því, en yfirnáttúrulegt. Augu hans sáu einnig að bak við fullkomna ró henn- ar, bjó heit og viðkvæm sál, en jafnframt staðfesta og kjarkur. Hún brosti við honum og sagði: „Einhvern tíma verða allir fullþroskaðir, doktor Brad ... ó, en nú má ég auðvitað ekki kalla yður Doktor Brad lengur." „Hvers vegna ekki? Mér finnst það ágætt. Annars hefur margt gerzt, síðan þú varst vön að kalla mig doktor Brad.“ Hún játaði, en í raun og veru fannst henni, eins og ekkert hefði gerzt. Alls ekkert, síðan hún stóð frammi fyrir honum í risherberginu þeirra Beste, . .. stóð frammi fyrir honum ná- kvæmlega eins og nú. Kringumstæðurnar höfðu breytzt, en það eina, sem hafði raun- verulega þýðingu, var hið sama. Þá, var hann það eina, sem máli skipti fyrir hana, og nú? Nú var hann það enn eins og áður, sem öllu skipti fyrir hana. Þá og nú ... allt annað var eins og flöktandi skuggar liðins tíma. Hún heyrði að hann var að tauta eitthvað um það, hvað honum þætti leitt að hafa ekki . litið meira til hennar síðustu árin, heyrði hann segja eitthvað um það, að hann hefði aldrei haft stund aflögu fyrir sjálfan sig. „Ég hefi ekki einu sinni hitt Marjorie oftar en tvisvar eða þrisvar sinnum í heilt ár.“ „Ég man eftir henni,“ sagði Natalie stilli- lega. „Um kvöldið . . . heima hjá yður.“ Hann starði á hana. Daufur roði færðist yfir enni hans. „Hugsa sér, að þú skulir muna það.“ Hún hló, en hann gat ekki skilið, hvers vegna hún fór að hlægja. Var það svo fráleitt að hún gæti munað það. „Er hún alltaf jafn falleg?" spurði hún gætilega. Hann kinkaði kolli og bláu augun ljómuðu. „Hún er alltaf eins. Hún er ein af þessum manneskjum, sem tíminn setur ekki spor sín á. í raun og veru er hún barn, og mun halda áfram að vera eins og bam. Það er eitt af því, sem gerir hana svo heillandi. Það er unun að tala við hana, þegar maður er þreyttur eða áhyggjufullur. Hún fær mann til að gleyma öllum áhyggjum, og hverfa inn í hennar heim. Heim, sem að vísu er óraunverulegur, en þægi- legur meðan hann varir.“ Hann andvarpaði. „Já ég get vel skilið þetta,“ sagði hún hljóð- lega. „Hún er eins og kampavín." Hann leit snöggt til hennar. Þetta hafði hann einmitt ætlað að fara að segja. Það var næstum dularfullt, hversu fljót hún var að skilja hann. Jafnvel á meðan hún var barn, var eins og hún hefði hæfileika til að lesa hugsanir hans — dálítið skemmtilegir eigin- leikar hjá barni, en það gerði hann ofurlítið órólegan, að þessi fullþroskaða kona, sem stóð hjá honum, skildi ennþá geta gert það. „Vilt þú ekki fá þér sæti og segja mér eitt- hvað um sjálfa þig. Það eru fimm til tíu mín- útur þangað til ég þarf að fara á skurðstof- una. Ég vil gjarnar líta á herra Barnstorm." „Þakka yður fyrir,“ sagði hún og setti sig dálítið óstyrk á ystu brún bakhás stóls, og spennti greipar yfir um hnéð. Hversu oft, . . . já ótal sinnum, hafði. hún ímyndað sér sig í þessum kringumstæðum, hugsað sér, hvernig þau myndu horfa hvort á annað, gert sér í hugarlund að hún myndi ganga til hans ófeimin og brosandi, og segja: „Jæja. Nú hefi ég lokið náminu, doktor Brad, og ég er komin til þess að minna yður á loforð yðar.“ En nú var hún enn á ný haldin þessum bjánalega veikleika, sem alltaf hafði kvalið hana, þegar hann kom í heimsóknir á „Heimilið“. Þá hafði hún ekki skilið, hvers vegna henni vafðist tunga um tönn. Það hafði verið bæði bjánalegt og ástæðulaust. Nú skildi hún, hvað lá að baki þessu. Það var hugsunin um Marjorie Daw. „Var það ekki ég, sem kom með þá uppá- stungu, að þú yrðir hjúkrunarkona?“ Rödd Bobs vakti hana af draumum sínum. „Jú, það er áreiðanlegt. Við vorum að tala saman í herberginu hennar ömmu þinnar. Þú spurðir mig, hvað þú ættir að gera, til þess að verða einhverjum til góðs í heiminum, og ég 108 HEIMILISBLAÐIÐ

x

Heimilisblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.