Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.05.1972, Page 23

Heimilisblaðið - 01.05.1972, Page 23
Það á rödd þinni, að þér líkaði ekki hvernig eg talaði um Natalie. Hvers vegna?“ „Ég fylgist alls ekki með, Bob.“ >.Þú getur ekki haft neina andúð á henni. Það þætti mér leitt. Ég hefi ráðið hana sem aðstoðarstúlku á læknisstofunni minni.“ „Aðstoðarstúlku þína?“ >>Já. Ég bauð henni starfið í dag og hún Þáði það. Eins og þú manst, ætlar ungfrú Munsford að fara að gifta sig. Þú hafðir aldrei neitt á móti ungfrú Munsford," bætti hann við í léttari tón og brosti. Hún brosti einnig, en aðeins með vörunum. >>Nei, — en ungfrú Munsford hefur ekki hastaníubrúnt hár og hún hefur heldur ekki stór, brún augu, og þar að auki er varla hægt að kalla hana snotra, hvað þá meira.“ >>Það kemur þessu máli ekkert við,“ sagði hann ergilega. „Þegar Natalie byrjar að vinna hjá mér, er starf hennar ekkert umfram það venulega. Það má næstum segja, að þá hætti hún að vera annað en hver og ein hjúkrunar- hona. í augum okkar læknanna eru þær eins °g sjálfvirk tæki, sem framkvæma fyrirskip- anir okkar. >>Það held ég ekki, Bob. Það segir enginn fnaður, að kona sé hrífandi, og lítur jaf.n- íramt á hana sem „sjálfvirkt tæki.“ >>En sá þvættingur. — Þegar ég sagði, að hún væri hrífandi — eða hvað ég nú sagði — var ég aðeins að segja frá staðreyndum. Þú sPurðir mig hvernig hún liti út, og ég reyndi að lýsa henni fyrir þér. Ég viðurkenni að ég hefi áhuga fyrir henni. Það hefi ég haft allar götur síðan hún var barn. Ég var læknir °mmu hennar. Hún var aðlaðandi og skemmti- Ég gömul kona og þegar hún dó, átti barnið engan að, og ég vorkenndi því. Það var ég, Sem fékk talið hana á að fara á barnaheimilið. Éún sagði mér í dag, að það hefði verið ég, sem hefði vakið löngun hennar til þess að verða hjúkrunarkona. Og svo að ég segi eins °S er, lofaði ég henni því, að ef hún yrði það, shyldi ég útvega henni starf, og þess Vegna .. ..... lætur þú hana fá starfið, sem þú lofaðir henni,“ endaði Marjorie setninguna fyrir hann. Síðan varð óþægileg þögn, sem virtist fela í sér áframhaldandi deilu milli þeirra. „Alveg rétt.“ Það var hann sem rauf þögn- ina brosandi. „Og þar með er öll sagan sögð. Þú hlýtur að skilja hvað það er heimskulegx af þér að vera mótfallin því, að ég réði hana á læknisstofuna.11 „Þú virðist hafa áhuga á að hún verði að- stoðarstúlka þín?“ „Já. Hún er bæði vel fær í starfi sínu og áhugasöm. Þar að auki fannst mér ekki rétt gert af mér að valda henni vonbrigðum. Það er eins og hún hafi .... hafi treyst á það, sem ég lofaði henni fyrir mörgum árum síðan.“ Marjorie hneigði höfuðið lítið eitt. Hún var rauð í andliti og alvarleg. „Ég skil,“ sagði hún lágt. Við eigum sem sagt að deila þér á milli okkar.“ Hann eldroðnaði og djúpblá augun leyftr- uðu, en hendurnar krepptust. „Hvern fjand- ann ert þú að tala um, Marjorie?" „Hún verður með þér allan vinnutíma þinn, Bob,“ sagði Marjorie lágt. „Og vinnan mun áreiðanlega taka mestan hlutann af lífi þínu.“ „Hún verður hjá mér sem systir, aðstoðar- stúlka, hjúkrunarkona, eða hvað sem hægc er að kalla það. Þú verður konan mín. Geturðu ekki séð að það er mikill mismunur á því? Ég skil bara ekki hvaða hugarórar þetta eru í þér.“ „Ég ætlaði ekki að segja neitt heimsku- legt, Bob.“ Hún hafði einnig roðnað í andliti. „Ég meintí aðeins----------.“ Hún yppti öxl- um. „Það þýðir ekkert að vera að tala um það. Ég meinti aðeins, að með starfi sínu fær hún hlutdeild í þér í starfi þínu, sem ég fæ ekki. Hún fær hlutdeild í þekkingu þinni og sigr- um, en ég ekki. Er þetta ekki satt?“ „Ef til vill. En þannig myndi það vera, hverja sem ég réði til mín sem systur. Ég skil ekki hvað þú hefur allt í einu mikinn áhuga á þeim hluta lífs míns, sem helgast starfinu. Ég hélt að þinn áhugi og ánægja beindist að því að skapa mér heimili, taka á móti vinum mínum, og fara út með mér þegar tími og tækifæri eru til.“ Hún hallaði sér þreytulega fram á borðið, hrædd við eitthvað í rödd hans þessa stund- ina. „Já, Bob, ég verð ánægð með það. Ég — ég vissi ekki almennilega hvað ég var aö segja áðan — ég er víst dálítið þreytt núna, af öllu þessu stússi við innkaupin-------það var heimskulegt af mér að vera með þessa ímyndun. Þessi Norrisstelpa verður áreiðan- H E I M I L I S B L A Ð IÐ 111

x

Heimilisblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.