Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.05.1972, Page 25

Heimilisblaðið - 01.05.1972, Page 25
,>En þér geðjast að honum, og slíkt endar °ft með ást. Þess vegna er það hættulegt fyrir eins laglega stúlku og þú ert, að vinna stöðugt með manni sem er eins álitlegur og þessi iseknir. Ef ég man rétt, er hann sérstaklega glæsilegur. Hvað er hann gamall?“ „Ég veit það ekki. Um þrítugt, hugsa ég. Ekki mikið eldri en ég. En þetta er hrein f jar- stæða, sem þú heldur fram.“ Natalie talaði nú í æsingi. „Vertu ekki svona æst,“ sagði Annabel hlægjandi. „Þrítugsaldurinn er hættulegur serstaklega fyrir stúlkur eins og þig, sem tekur lífinu alvarlega og lítur þar að auki mjög vel út. Það er öruggara að svipuðum eldri og maður sjálfur, og taka ekki lífinu elvarlega. Hvað heldurðu að konunni hans ^omi til með að sýnast um þig?“ „Ekkert. Ég--------“. Natalie gat ekki var- lst hlátri. „Hún tekur ábyggilega ekki einu sinni eftir mér. Ekki virtist hún taka eftir mér, síðast þegar hún sá mig.“ , En það mun hún áreiðanlega gera núna,“ svaraði Annabel stríðnislega. 8. kafli. Natalie las um brúðkaup Bobs í morgun- blöðunum daginn eftir. Brúðkaupið var haldið a heimili brúðurinnar. Stephan Daw hafði viljað svo hafa. Að vísu hafði hann frekar haft horn í síðu dóttur sinnar árum saman, eri eftir því sem nær dró brúðkaupinu, varð ^arm „bara föðurleguh", eins og Marjorie orð- aðl það sjálf. „Þetta er alveg eins og áhrifamikil leik- sýning,“ sagði hún brosandi við Bob. , Hann Veit alls ekki hvað hann á að gera án mín. Neimilið verður tómt og gleðisnautt, þegar hlátur minn heyrist ekki lengur. Elsku Bob. þú ekki hreykinn af því að þér hefur tekizt að ræna þessum dýrmæta demanti frá ^anrla manninum?“ „Litli kjáninn þinn,“ sagði hann hlægjanai-. get ekki skilið hvers vegna hann bakar Ser allt þetta umstang, þegar hann loksins er að losna við þig. Og það veit hamingjan, að eg veit ekki hvað ég á að gera með þig þegar eg loksins hefi eignast þig.“ Þótt hann segði Petta í gamni, og meinti það sem spaug, lá HEXmi nokkur sannleikur að baki orðanna. Hann gat tæpast hugsað sér Marjorie — eða jafnvel nokkur önnur kona — myndi falla inn í þann ramma, sem hann hafði myndað um líf sitt. Hann hafði mjög lítinn frítíma, og næstum enga löngun í samkvæmislífið, en þessa hvort- tveggja ætluðust ungar konur gjarnan til af eiginmönnum sínum. Og Marjorie lifði sýni- lega í þeirri trú, að hjónaband þeira yrði glaumur og gleði. Hann yrði að reyna að gera henni til hæfis eftir beztu getu. Og þegar þau voru gefin saman í gömlu kirkjunni, var hún svo falleg þegar hún gekk upp að altarinu, að hann hefði getað fallið á kné og tilbeðið hana. Mættu allar góðar vættir gefa honum styrk til að bregðast ekki vonum hennar, hugsaði hann, og fannst hann sjálfur bæði auðmjúkur og lítilfjörlegur við hlið hennar — já í öllu þessu tilgerðarmikla um- stangi sem tilheyrði þessu brúðkaup þeirra. Meðan vígslan fór fram, sá hann aðeins vangasvip hennar. Það var eins og hún af ráðnum hug starði stöðugt á prestinn, en liti aldrei til hliðar, eins og hún drykki í sig hvert orð, sem presturinn ságði, og reyndi að gera þau að hluta af sjálfri sér. En þegar hendur þeirra mættust, fann hann að hönd hennar skalf lítið eitt. Það hafði undarleg áhrif á hann, því Marjorie var alltaf svo sjálfsörugg. En ef til vill var hún það ekki á þessari stundu, frekar en hann. Þessi tdhugsun tengdi hann henni enn fastari böndum en hjúskaparheitið. Hann langaði mest til að faðma hana að sér og hrópa: „Við skulum forða okkur héðan. Við skulum flýja á einhvern stað þar sem við getum verið ein.“ En þótt Marjorie hefði virkað undarlega fjarræn í kirkjunni, varð hún eins og venju- lega, þegar athöfninni var lokið, og tók heilla- óskunum með sinni venjulegu gamansemi. Hún drakk nokkrum kampavínsglösum of mikið, og svaraði sjálf með nokkrum þakkar- orðum, þegar skál brúðurinnar var drukkin — öllum til mikillar undrunar, en þó sérstak- lega Bob. Hann heyrði glaðværan hlátur hennar gegn- um gluggann, meðan hún fór úr brúðarskart- inu. og klæddist ferðafötunum með aðstoð brúðarmeyja. Fyrir framan dyrnar á heimili föður brúð- arinnar stóð glæsileg bifreið og Bob, klæddur LISBLAÐI.Ð 113

x

Heimilisblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.