Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.05.1972, Blaðsíða 26

Heimilisblaðið - 01.05.1972, Blaðsíða 26
nýjum, gráum fötum, tilbúinn að hjálpa henni inn. Það var keki laust við að hann væri ofur- lítið taugaóstyrkur. Gestiarnir stóðu umhverf- isis vopnaðir skrautböndum og grjónum. En Marjorie hentist allt í einu niður tröppurnar og inn í bifreiðina, áður en nokkur gestanna gat áttað sig. „Verið þið bless!“ hrópaði hún út um glugg- ann um leið og þau óku í burtu. „Hérna er koss handa þér, pabbi. Gríptu hann.“ Bob greip hana í faðm sér. „Marjorie Daw, —• ég elska þig.“ Netta andlitið hennar varð skyndilega al- varlegt. Það var eins og hún hefði kastað grímu. , Ég elska þig líka, Bob. Við skulum alltaf elska hvort annað á þennan hátt. Lífið getur ekki brugðist okkur, ef við gerum það.“ „Nei, það er satt, Marjorie.“ Marjorie varð fyrir vonbrigðum yfir því að Bob skildi ekki kasta sér út í samkvæmislífið af lífi og sál um borð í skipinu. En sjálf sat hún lengst af á háum rauðum stól við barinn. „Maður þarf ekki annað en sjá þennan bar, til þess að allar áhyggjur fjúki út í veður og vind. Þetta verkar iens og kampavín í góðum félagsskap," sagði hún. „Stemningin vex með hverjum tappanum sem skýzt upp úr flösk- unum.“ Bob tók öðru hvoru þátt í samkvæmislífinu, en virtist vera því fegnastur, þegar hann gat dregið sig í hlé. Honum þótti gaman að dansa, en dansaði eingöngu við Marjorie eða stóð •álengdar og horfði yfir iðandi hópinn á gólf- inu. Hann hafði ekkert á móti því að fá sér glas, en vildi helzt drekka það í friði og ró með nokkrum herrum, og Marjorie varð furðu lostin þegar hún uppgötvaði, að hann hafði tekið með sér fulla tösku af tímaritum um læknisfræði. „Þú hefur enga hæfileika til að skemmta þér, Bob. En sleppum þvi.“ Hún beygði sig áfram og kyssti hann. ,Mér skal takast að kenna þér það. En með þinni hjálp. Vertu nú góður og reyndu að vera kátur, elskan." Hann lagði armana utanum hana og lofaði að gera sitt bezta, þótt það væri honum móti skapi. Og Marjorie varð hamingjusöm, og trúði því, að hann skemmti sér reglulega vel. Að vissu marki gerði hann það líka. En það komu einnig þær stundir sem hann hataði andrúmsloftið er þarna ríkti. Stundum læddist Marjorie niður í herbergi sitt og grét. Ekki vegna þess að hún efðist um að Bob væri mjög hamingjusamur, en það voru viss atriði í háttum hennar, sem hann gat ekki skilið, og sem hann virtist ekki vera ánægður með. Það var tilhneiging henn- ar til að fá sem mest af hlátri og skemmtun- um út úr lífinu. Hlátur og skemmtun, — það var að vera glaður og hamingjusamur. En Bob hugsaði um aðra hluti. Um vinnu sína og þessi andstyggilegu læknisfræðitímarit sín. Þegar mesti gállinn var á henni, tók hún eftir því, að hann var eirðarlaus og þungbú- inn einkumef aðrir karlmenn sýndu henni áberandi áhuga. Bob gat þó ekki búizt við öðru en að kona eins og hún vekti eftirtekt og áhuga annarran en hans sjálfs. Sjálf mundi hún sálast úr leiðindum, ef hún gerði það ekki. En hvað sem öllu þessu leið, var hveiti- brauðsferðalagið mjög svo ánægjulegt, og þegar hún var í einhverjum vafa, minntist hún þess, sem faðir hennar hafði sagt: „Hveiti- brauðsdagarnir er reynslutími, jafnvel fyrir þá hamingjusömustu. Vertu ekki með neinar áhyggjur, Marjorie. Það er framhald hveiti- brauðsdaganna sem mestu máli skiptir. Það eru þeir, sem eiga að veita manni hina full- komnu hamingju.“ Þrátt fyrir það að hún var stundum óánægð með hvað lítinn þátt Bob tók í gleðskapnum átti lífið um borð í skipinu mjög vel við hana. Hún varð leið, þegar hún kom aftur til Lon- don, og hugsaði sér að Bob væri það einnig. „Já, ég hefði gjarnan viljað að ferðin hefði staðið lengur," sagði hann. En fyrsta morg- uninn, sem hann kom á skrifstofuna sína eftir ferðalagið, fann hann til ienhvers léttis, svo hann varð órólegur, — jafnvel dálítið smeyk- ur. 9, kafli. Natalie beið hans viðskri fborðið, en skrif- stofan og biðstofan voru samliggjandi. Þegar hann britist í dyrunum, hrökk hún við og ná- fölnaði. Andlit hennar varð eins hvítt og búningurinn. Kastaníubrúnt hárið var hulið undir hvítum kappanum. Þegar Bob sá hana sitja þarna á gamalkunnum stað, fékk hann þá undarlegu tilfinningu, að nú væri hann loks 114 HEIMILISBLAÐI8

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.